Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2006, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2006, Síða 27
PV Helgin FÖSTUDAGURINN 28. JÚLl2006 27 Margrét Kristín Sigurðardóttir eða söng konan Fabúla eins og hún kallast einnig elskar grillmat og bakaðar kartöflur. Mar- grét býr á efstu hæð í miðborginni og er þvi með útsýnið yfir Tjörnina þegar hún situr og nýtur grillmatarins. Margrét bauð DV í heimsókn. Eldhúsið mitt E! I g er mjög mikill sælkeri og mik- il kjötæta. Ef ég hef ekki feng- lið kjöt í einhverja daga verð ég eins og hungrað rándýr," segir Mar- grét Kristín Sigurðardóttir tónlistar- kona hlæjandi en Margrét þekkist einnig sem söngkonan Fabúla. Mar- grét segist alltaf hafa verið mikið fyrir kjöt. „Meira að segja þegar ég var lítil og við fjölskyldan fórum í ísbíltúr var alltaf komið við á Bæjarins bestu svo ég gæti fengið pylsu á meðan syst- ir mín borðaði ísinn," segir Margrét brosandi og bætir við að hún hugsi um hollustuna í törnum. „Ég tek mig á af og til og borða þá mikið af fersku spínati og dett inn á Grænan kost þegar ég er á hlaupum." Óskiljanlegt sushi-æði Margrét segist borða flestan mat en hún sé ekki mikið fyrir kæst eða súrsað. „Ekki er ég heldur sérlega sólgin í sushi þótt ég borði það nú al- veg," segir hún og bætir við að hún skilji ekki þetta sushi-æði sem hafi gripið stóran hluta þjóðarinnar. Aðspurð segist Margrét hafa gam- an af því að halda veislur og duncfa sér í eldhúsinu. „Mér finnst það skemmtilegt þegar ég hef nægan tíma. Ef ég fæ útlendinga í mat býð ég upp á góðan fiskrétt eða lambalæri og er með súkkulaðiköku sem lek- ur í eftirrétt. Ég fann uppskriftina af þessari köku í Gestgjafanum og hún er algjört dúndur. Vanalega skipa ég einhvern gestanna sem tímavörð því það skiptir öllu máli að kakan sé ekki lengur í ofninun en 11 mínútur." Blár brjóstsykur á barnum Margrét býr ásamt fjölskyldu sinni í miðborg Reykjavfkur og því freista veitingastaðirnir hennar oft. „Þegar ég ætla að fara eitthvað verulega fínt er Humarhúsið í mestu uppáhaldi en þegar ég fer meira hversdags verða Vegamót, Grænn kostur og Asía fyrir valinu en börnin mín elska núðlurn- ar á Asíu. Ég er mjög hrifin af eldhús- inu á Vegamótum og börnin kunna vel að meta bláa brjóstsykurinn á barnum." Betra að borða utandyra Uppáhaldsmaturinn hennar Mar- grétar er humar, lambakjöt og hakk- boilur með hvítlauk og rauðri papr- iku, sem vinur hennar matreiðir af mikilli snilld. „Já, og ekki má gleyma kjötsúpunni hennar mömmu, hana leikur enginn eftir," segir hún bros- andi og bætir við að hún reyni að borða mikið af grænmeti og ávöxt- um. „Spínat er í uppáhaldi hjá mér, rauð paprika, ferskur ananas og jarð- arber. Ég þarf þó stundum að minna mig á að borða meira af ávöxtum." Margrét og fjölskylda hennar búa á efstu hæð á Grundarstígnum. Grillið er staðsett á svölunum það- an sem fjölskyldan er með útsýni yfir Tjörnina. „Ég elska grillmat og fæ bakaðar kartöflur á heilann á sumr- in. Það er líka magnað hvað allt verð- ur ljúffengara þegar borðað er utan- dyra." indiana@dv.is Margrét Kristín „Splnat er I uppáhatdi hjá mér, rauð paprika, ferskur ananas og jarðarber. Ég þarfþó stundum að minna mig á að borða meira afávöxtum.“ Sælkeri sem elskar kjöt Fabúla „Ég tek mig á afog tii og borða þá mikið affersku spínati og dettinn á Grænan kostþegarég eráhlaupum." isjui i cinnvciju uuyu veru ey ems Grískt lambalæri 1 stk. lambalæri 3-4 hvítlauksrif salt, pipar, oregano brætt smjör sftrónusafi Meðlæti: Kartöflur, köld og/eða heitsósa og fersktsalat. „Skerið raufar í lambalærið og setjið hvít- lauksrif í raufarnar (3-4 rif skorin langs í sneiðar). Kryddið lærið með salti, pipar og oregano. Penslið með bræddu smjöri blönd- uðu safa af hálfri sítrónu (sleppi stundum sítrónunni). Setjið lærið í ofnskúffu eða stór- an ofnpott. Skrælið glás af kartöflum og sker- ið í bita og setjið í ofnskúffuna með lærinu. Hellið afganginum af smjör-sítrónu blönd- unni yfir kartöflurnar. Hellið einum bolla af sjóðandi vatni yfir kartöflurnar. Steikið við 200°C í 2x45 mínútur (þ.e. 45 mín. á hvorri hlið, fýrst á hvolfi) Köld sósa: Hrærið saman sýrðum rjóma, rif- inni agúrku og hvítlauk. Heit sveppasósa: Smjörsteikið sveppi. Hellið yfir rjóma og ostrusósu frá Blue Dragon. Smakkið'til. Einföld en nammi." Búðu til þína eigin pitsu og prófaðu eitthvað öðruvísi Girnileg rjómaostapítsa Búðu til pítsudeig eða keyptu tilbúið deig og flettu það út. Veldu uppáhaldshráefnið þitt og settu það í ríkulegum skömmtum á pítsuna. Mjög góð og vinsæl samsetning er að setja pepperone, skinku og niðurskoma sveppi saman á pítsuna. Ananas bragðast líka vel á hvítri pítsu. Dreifðu rifnum mozzar- ella-osti yfir pítsuna og ricotta-osti. Þú getur einnig notað góðan rjómaost í staðinn fýrir ricotta. Gott er að velja eitthvað gott pestó og setja örlítið út í rjómaostinn. Kryddaðu með ítölsku pítsukryddi og settu pítsuna í ofriinn. Mundu að á þessa pítsu notarðu enga tómats-pítsusósu. Bakaðu pítsuna í ofninum þangað til osturinn er bráðinn og hefur fengið fallegan gylltan lit. Prófaðu næst að setja áleggið undir ostinn. V Rjómaosta- pítsa Engin tómats- p/tsusósa er notuð á þessa pltsu sem er allt öðruvlsi en venjuleg pltsa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.