Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST2006 Fréttir DV Fréttaskýring Samkvæmt heimildum DV tók Siv Friðleifsdóttir ákvörðun fyrir þremur vikum að fara í framboð til formanns Framsóknarflokksins. Kosningabarátta hennar hefur farið leynt og eflaust hefur það komið mörgum í opna skjöldu að hún tilkynnir framboðið svo skömmu fyrir landsfund. Siv líklegur sigurvegari Margir túlka það sem sterkan leik hjá Siv að skella sér í formanns- slaginn núna og meina að hún hafi miklu meira fylgi innan flokks- ins en Halldórsarmurinn geri sér grein fyrir. Það gæti því stefnt í tvísýna kosningu nú um helgina. Flestir telja að þingflokkurinn muni fylkja sér um Jón Sigurðsson að frátöldum Guðna Ágústs- syni og Kristni H. Gunnarssyni. Kristinn þykir reyndar óræð stærð í þessum slag og bíður kannski á hliðarlínunni fram á síðustu stundu með sínu liði. Framboð hans í ritarastöðuna kann að vera liður í kosningabandalagi við Siv og Guðna. Alþingiskonurnar Dagný Jóns- dóttir og Jónína Bjartmarz umhverf- isráðherra hafa báðar þegar lýst yfir stuðningi við Jón opinberlega með- an aðrir þingmenn hafa verið sparir á yfirlýsingar. Margir vilja meina að það sé að undirlagi Jóns sjálfs, sem ekki vildi skerpa á andstæðum inn- an flokksins. Þá er sú skoðun viðtekin meðal heimildamanna DV að stólaskiptin í ríkisstjórninni á vormánuðum hafl verið liður í „hrókeringum" Halldórs til að tryggja stöðu síns manns í for- mannskjörinu. Nær öruggt er tal- ið að Magnús Stefánsson, Valgerður Sverrisdóttir, Guðjón Ólafur Jóns- son, Jón Kristjánsson og Hjálmar Árnason styðji öll framboð Jóns Sig- urðssonar. Margir vilja hins vegar meina að forystusveit Halldórs hafi fjarlægst grasrótina og sé ekki í takt við nýja tíma og áherslur í þjóðfélag- inu. Sif og Guðni séu mun líklegri til að tryggja flokknum fylgi í komandi kosningum og að kynslóðaskipta og áherslubreytinga sé þörf. Það er á þeim forsendum sem Siv og Guðni munu sækja fram á landsfundin- um meðan Jón og Jónína standa fyr- ir gömul viðtekin gildi framsóknar- stefnunnar. Baráttan snýst því um hverjir séu líklegastir til að leiða Framsóknarflokkinn úr þeirri fylgis- kreppu sem hann hefur verið í und- anfarið og tryggja flokknum viðun- andi fylgi í kosningunum 2007. Teiur Framsókn best borgið með Siv sem formann Það er löngu ljóst að Björn Ingi Hrafnsson styður Jón en hins veg- ar gæti það reynst tvíeggað sverð því Framsóknarmönnum á landsbyggð- inni er ekk- ert sérlega hlýtt Jón Sigurðsson Veröurhann landsfaðirinn eins og nafni? til hans og telja að hann setji eig- in metnað ætíð ofar hagsmunum flokksins. Framsóknarforystan í borginni er þó langt í frá að vera ein- huga um formannsefnið. „Það er löngu ljóst hvar ég stend í þessu kjöri en það er mjög erfitt að spá um úrslit, ég held að þetta geti orðið tvísýnt. Kosningafyrirkomu- lagið gerir það að verkum að ef karl- maður er kosinn formaður aukast líkurnar á að kona verði kosin vara- formaður. Ég held að Siv eigi meira inni en menn gera sér grein fyrir. Það er oft þannig að menn eiga létt- ara með að að gefa upp stuðning við þann sem borin er upp af „vald- inu" heldur en að lýsa stuðningi við áskorandann. Þingflokkurinn fékk reyndar gula spjaldið á síðasta mið- stjómarfundi og var bent á að halda sér hægum. Þar logaði allt í illdeilum og ef hann ætlar eitthvað að fara að beyta sér í þessum kosningum gæti það virkað þveröfugt. Ég tel að Krag- inn muni skila sér vel tíl Sivjar enda sterkt að hafa formanninn og ég tel að menn þar muni kjósa praktískt," segir Óskar Bergsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík. Margir gamlir framsóknarmenn hafa lýst þeirri skoðun að Jón Sig- urðsson hafl ekki nægilega hörku í embættið. Hann skorti olbogana í pólitík. Siv hins vegar hefur sýnt að hún getur haft hvassa olboga og þann skörungsskap sem nauðsyn- legur sé hverjum leiðtoga í jafn erf- iðu hlutverki. Vill að framsóknarmenn fylki sér um sigurvegar- ann „Það hefur aldrei ver- ið lögð nein lína hjá okk- ur í félaginu, það greiðir hver og einn atkvæði á sín- um forsendum. Þau eru náttúrulega bæði í okk- ar kjördæmi þó Jón búi í Kópavogi. Mikilvægast er náttúrulega að góð sátt náist um formann- inn og að menn fýlki sér um þann sem sigr- ar. Ég vil ekki gefa neitt upp um mína afstöðu en þau eru bæði mjög frambærilegir stjórnmála- menn. Ég á reyndar erfltt með að skilja að fólk sækist eftír þessu embætti því formannshlutverk í stjórnmálaflokki er afar erfitt verkefni. Kynjaskipting og jafn- Jónína Bjartmarz Dreymirum aö leggja Guöna I varaformannsslagnum. réttissjónamið eru afar ofarlega á baugi í Framsóknarflokknum og það gætí skipt máli hvernig formanns- kjörið fer hvað gerist í valinu um hin embættin. Ég held að þetta verði afar jöfn kosning en ég myndi tippa á að Guðni eigi mesta möguleika á að ná kjöri. Ég held reyndar líka að ef kosið væri í öll embættin í einu yrði niður- staðan jafnvel önnur en með núver- andi fyrirkomulagi. Það er náttúru- lega ritarinn sem sér um samskiptín við flokksfélögin og Siv hefur verið mjög öflug í því en það má heldur ekki vanmeta hvað Jón er búinn að starfa lengi innan flokksins og gegnt þar lykilhlutverki," segir Ómar Stef- ánson bæjarfulltrúi Framsóknar- flokksins í Kópavogi. Kosningafyrirkomulagið hefur áhrif á niðurstöðuna 878 fulltrúar eiga rétt tíl setu á þessu 29. flokksþingi Framsókn- arflokksins á Hótel Loftleiðum um helgina. Miklu fleiri félagsmenn munu hafa sýnt áhuga á að sækja þingið en pláss er fyrir. 707 fulltrúar eru kosnir vegna félagsmannafjölda en hvert félag hefur rétt á því að senda einn full- trúa fyrir hverja byrjaða 15 félags- menn. Aðildarfélög flokksins sem hafa rétt tíl að senda fulltrúa eru 89. Að auki eru 171 aðalmenn í mið- stjórn sem eru sjálfkjörnir á þingið eða samtals 878. Flestir fulltrúar eru úr Norðvesturkjördæmi eða 181, þá úr Norðausturkjördæmi eða 165. Þá kemur Suðurkjördæmi með 146 full- trúa, Suðvesturkjördæmi með 142, Reykjavík suður með 139 og loks Reykjavík norður með 105. Fram- sóknarmenn sem DV ræddi við segja allir að félagsmenn gangi óbundnir til kosninga og hver og einn geri það upp við sjálfan sig og sína samvisku Kristinn H. Gunnarsson Vill hafa á hreinu þó húnséf hina áttina. hvern þeir kjósa. Aðrar upplýsingar segja að venjulega sé það einhvers konar niðurstaða sem náist í hverju félagi fyrir sig og að félagsmenn hh'ti henni. Merkilegt þykir að framsókn- arfélagið í Reykjavík norður eftirlét stjórn félagsins að velja þingfulltrúa sem telja má víst að sé Jóni Sigurðs- syni í vil. Siv vinnur í tvísýnustu kosningum íslandssögunnar Blaðamenn og stjórnmálaskýr- endur reikna blákalt með að Siv eigi stuðning Kristins H. Gunnarsson- ar vísan, sem þýðir vænan meiri- hluta fulltrúa norðvesturkjördæm- is. Þar telja margir sig eiga Halldóri grátt silfur að gjalda vegna kvóta- kerfisins og þess að kjördæmið hef- ur verið látið sitja á hakanum. Þeir telja víst að Guðni og þar með suður- kjördæmið fýlgi Siv. Þá reikna menn með að Siv hafi meirliluta atkvæða í Kraganum og að í Reykjavík suður sé tvísýnt hvar meirihlutinn liggur. Val- gerður Sverrisdóttir þykir ekki hafa stjórn á sínu fólki í Norðausturkjör- dæmi en reikna Jóni þó meirihluta þar nema á Tröllaskaganum norð- anverðum. Það gætu því orðið Aust- firðingar, austfirskir sjómenn líkt og þegar Vigdís var kjörin forseti, sem ráða úrslitum þessara kosninga. Harðnandi og óvægnari átök Síðustu daga hefur baráttan ver- ið að harðna og menn reynt að giska á hver sé í bandalagi með hverjum, hverjir halda fundi saman og hverj- ir ekki. Sumir vilja meina að Birkir J. Jónson hafi hallast á sveif með Siv og telji sínum frama innan flokks- ins betur borgið með hana sem for- mann. Skemmst er að minnast frétta af fundi þeirra og Guðna á ísafirði með framsóknarmönnum í vikunni. Hins vegar hafa allir „kategórískt" neitað bandalagamyndum og funda saman þvert á allar samsæriskenn- Birkir J. Jónsson Hvert hallast Birkir Jón um helgina? ingar. Heimildarmenn DV herma að Guðni hafi róið í sínu fólki að styðja Siv enda myndi sigur hennar gull- tryggja varaformannsembættið fyr- ir hann. Ef Siv tapar fyrir Jóni telja margir að skorað verði á Siv að bjóða sig fram í varaformanninn, sem væri þá sem rýtingsstunga í bak Guðna að hálfu Sivjar. Engu að síður er ljóst að allir frambjóðendur róa nú lífróður fyrir pólitískri framtíð sinni og ljóst að þeir sem tapa eiga þunga daga fyrir höndum. Hætta á að flokkurinn klofni Einn viðmælandi DV taldi að Jón myndi sigra Siv í formannskjörinu og að atkvæði myndu falla u.þ.b. 60 - 40 meðan Guðni væri nokkuð öruggur í varaformanninn. Það galopnar fýrir Sæunni Stefánsdóttur í ritarastöðuna enda mun henni vera teflt fram í til- felli að slík staða kæmi upp. Hins veg- ar skiptir mestu máli fyrir Siv að tapa með sem minnstum mun fyrir Jóni því að það gefur henni möguleika á sterku endurframboði að tveim- ur árum liðnum þegar Jón er búinn að klúðra kosningunum á næsta ári. Flestir álitsgjafar DV eru sammála um að þótt Jóni takist að koma á sátt- um innan flokksins eigi hann sáralitla möguleika á að halda eða auka fýlgi frá síðustu kosningum. Hvernig sem fer er hætta á að flokkurinn klofni. Sigri Siv er alsend- is óvíst að hægri vængurinn í flokkn- um sættí sig við þá niðurstöðu og eins er ákomið fyrir Siv, Guðna og Kristni H. Gunnarssyni. Úrslit kosn- inganna geta allt eins orðið kveikj- an að því að ósættí fýlkinga innan flokksins komi upp á yfirborðið fyr- ir alvöru. Það hefur reynt verulega á flokkshollusta ákveðinna framá- manna innan flokksins á síðustu misserum og óánægja með mörg stefnumál og áhersluatriði kraumað undir yfirborðinu. kormakur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.