Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Side 29
DV Helgin FÖSTUDAGUR 18.ÁGÚST2006 29 Glæsikerra kemur á nokkurri ferð inn á torgið á Stokks- eyri. Út úr bílnum stígur Sjöfn Har listakona, búin að slíta sig svo vel frá 101 Reykjavík að hún sagðist ekki koma í viðtal nema við kæmum austur. Hún eldist vel, klædd röndóttum bol og gallabuxum og heldur á sambýlismann- inum í sérútbúinni handtösku. Sá heitir Moli og er að verða þriggja ára. Kannski sá sem fært hefur henni mesta innri ró af þeim sem hún hefur búið með. „Já, ég held ég geti sagt það með sanni að ég fylltist einhverri innri ró við að eignast þennan hund," segir hún og brosir við. „Moli fer með mér allt; á tónleika, veitingahús og í bíó og eftir að ég eignaðist hann er ég aldrei einmana." Sjöfn Har er litríkur karakter sem eftir hefur verið tekið í þjóðfélag- inu. Þið getið því rétt ímyndað ykkur hvort hún komi ekki með ferskan blce í kyrrlátt sjávarþorpið. „Ég finn að ég er velkomin hér," segir hún. „Reyndar hafði ég svolít- ið gaman af því þegar ég keypti fyrr- verandi verslunarhús Kaupfélagsins hér við torgið á Stokkseyri til að setja upp vinnustofu og sýningarsal og komst að því að það stendur á milli Draugasetursins og kirkjugarðsins. Ég er nefnilega svo myrkfælin!" segir hún kímin. „Þess vegna fékk ég séra Úlfar Guðmundsson til að vera með húsblessun þegar ég opnaði gallerí- ið." Sígauni í eðli sínu Gallerí Sjafnar er í tæplega tvö hundruð fermetra húsnœði og því fylgja fjórtán bílastœði og tvœrflagg- stangir, auk byggingarréttar á 150 fermetrum. Spurð hvers vegna hún sé svona rík svarar hún að bragði: „Ég er ekkert rík. Ég hef bara hagnast vel á fasteignaviðskiptum. Fyrir hálfum mánuði afhenti ég lykl- ana að húsinu mínu að Skólavörðu- stíg 25a, þar sem galleríið mitt var til fjögurra ára, og það var æðislega skemmtilegur tími. Ég hafði reynd- ar hugsað mér að minnka við mig, en fékk tilboð sem ekki var hægt að hafna. Fyrir söluna gat ég greitt upp húsnæði mitt hér á Stokkseyri, gall- eríið og vinnustofuna og mitt ynd- islega 170 fermetra einbýlishús og á jafnvel afgang fyrir litlu galleríi í Reykjavík ef mig langar." En það er ekki það sem hana lang- ar. Hana langarfrekar í húsbíl. „Ég er svo mikill sígauni. Vil helst alltaf vera að keyra og ferðast milli staða!" segir hún um leið og hún vippar sólstólum og borðum á stéttina við galleríið. „Hins veg- ar á ég hvorki húsbíl né hjólhýsi, en verk mitt á morgnana var að líta út um gluggann á herberginu mínu við Skúlagötuna í Stykkishólmi og at- huga hvernig sjórinn leit út. Sjór- inn stjórnaði því hvernig fötum ég klæddist og í hvernig skapi ég ædaði að vera." ínánd viðnunnur Hún var strákastelpa sem hjólaði um bceinn, keppti í sundi og dorgaði við höfnina. Mikil ömmustelpa og segir umhverfið og uppeldið hafa sett sterkan svip á lífsitt. „Æskuheimili mitt stóð mitt á milli St. Franceskuspítalans og Hvítasunnusafnaðarins og í miðjum bænum stendur kirkjan. Innan um mismunandi trúarbrögð mótuðust lífsviðhorf mín. Nunnurnar í Klaustr- inu höfðu mikil áhrif á mig. Hjá þeim lærði ég að lesa, fór í saumatíma og sótti sunnudagaskóla. Þær létu okk- ur krakkana fá skapandi verkefni. Amma var í saumaklúbbi í Fíló - eins og við kölluðum Hvítasunnusöfnuð- inn - og með henni fór ég á bæna- stundir og samkomur og sótti svo til Þjóðkirkjunnar það sem þurfti. Kannski þetta uppeldi hafi gert mig víðsýnni. Ég var sjálfstæð, veiddi á bryggjunni, hjólaði mikið, teiknaði og orti; var sjálfri mér nóg." En það var samt í þessu örugga umhverfi sem Sjöfn fór að verða myrkfœlin. „Amma sá fylgjur og ég gat veitt upp úr henni hvað „fylgja" var!" seg- ir hún og hlær smitandi hlátri. „Eg ólst upp við dulúð, lá í þjóðsögunum hans afa og einhverra hluta vegna hef ég aldrei losnað við myrkfæln- ina. Ég var forvitin, spurði margs og var í klíkunni hjá gamla manninum sem stjómaði bíóinu í Stykkishólmi. Harm hleypti mér inn bakdyrameg- in og þar sá ég svo skelfilega drauga- mynd að síðan hef ég verið myrk- fælin. Ég hef náttúrlega alltaf haft brjálað ímyndunarafl!" bætir hún við. „En gott ef þetta hefur ekki bara lagast heilmikið eftir að ég plantaði mér niður hér milli Draugasetursins og kirkjugarðsins!" Reykjavík hafði engan þann sjarma til að bera að unglinginn „Ég hefekkilifað hefðbundnu fjölskyldulífi, ver- ið gift einum manni og átt börn og buru. Ég hef átt nokkra samferðarmenn í misjafnlega langan tíma. Allir þessir menn sem ég hefverið með eru úrvalsmenn. Svo komu upp árekstrar og sam- böndin slitnuðu." ég á kúlutjald og get því sest niður með skissublokk við Hlíðarvatn eða Heklurætur, grillað og komið heim á morgun - eða eftir nokkra daga; eftir því hvernig ég er stemmd!" Sjórinn hefuráhrif á skapið Sjöfii Har segist vera komin af „vondufólki, svo vitnaðséíséraÁrna", fœdd og alin upp í Stykkishólmi, elst sjö barna Guðrúnar Gunnarsdóttur og Haraldar S. Gíslasonar rafverk- taka, ogsegist oft hafa verið hundleið á krakkaskaranum. „Þá hugsaði ég oft um hvað einka- böm hefðu það gott. Nú sé ég hvað ég er rík að eiga öll þessi systkini og systkinabörn. Það voru forréttindi að alast upp í Stykkishólmi, sem í mínum huga er eins og Róm, fallegt bæjarstæði frá náttúrunnar hendi. Sjóndeildarhringurinn, eyjarnar og Breiöafjörðurinn eru ólýsanlega fallegir staðir sem ég skildi ekkert í hvers vegna útlendingar voru að mynda í bak og fyrir þegar ég var lít- il. „Þetta hefur alltafverið hér!" sagði ég, tíu ára, við þá sem voru að stilla upp vélum á þrífótum og súmmlins- um á fallegu sumarkvöldi. Ég skildi ekki fyrr en ég var búsett í Danmörku í nokkur ár hversu auðug við íslend- ingar erum að búa við þessa feg- urð. Sjórinn var viðmið mitt. Fyrsta Sjöfn langaði að búa þar. „Við fórum til Reykjavíkur að kaupa skólaföt á haustin og svo þeg- ar leita þurfti lækninga sem ekki var hægt að veita í Stykkishólmi. Það er af sem áður var, nú er í Stykkishólmi veitt bakverkjameðferð á heims- mælikvarða, sem færri en vilja kom- ast í! Reykjavík hafði ekkert sem Stykkishólmur hafði ekki að mínu mati. Það var ekki fýrr en eftir lands- próf, þegar mig langaði í listnám, sem hugurinn stefndi til höfuðborg- arinnar." Hugguleg húsmóðir á Akureyri? En það var nám sem faðir Sjafn- ar var ekki hrifinn af. Systkinin áttu að lcera eitthvað nytsamlegt og pabbi hennar sagði henni hreint út að það vceri ekki hcegt að lifa aflistinni. „Hann sagði nú bara að það væru ekkert nema fyllibyttur, eiturlyfja- neytendur og aumingjar sem gerð- ust listamenn!" segir hún þar sem við göngum í átt að fjörunni á 77 ára fæðingardegi föður hennar, sem lést fyrir sjö árum. „Það gæti bara einn af hverjum milljón lifað af list. Ég átti að fara á Menntaskólann á Akureyri og þurfti að berjast hart til að fá mínu framgengt. Það get ég í raun þakkað Sigrúnu heitinni Jónsdóttur kirkju- „Movie like" brúðkaupsdagur„Það tók mig tíma að vinna mig út úrhjónaskilnaðinum. Ég saknaði samverunnar.“ LiiriKur rerni „tzgneran uzriKan, personu- legan ferit, en alltafverið sjálfri mér samkvæm." Listræn systkini Sjöfn segir listrænu systkina sinna koma fram á fallegum heimilum þeirra. Magnea, fatahönnuður íSviss, Albert, skipstjóri á Kanaríeyjum, Valdfs Hulda, Sigrlður Inga, Sif, Htöðver, útgerðarmaður I Cape Town I Suður-Afríku, og Sjöfn. Flutt úr Reykjavík Farin að undirbúa elliárin og segist ekki geta verið langhlaupari alltllfið. listakonu sem kom vestur í Hólm og hélt námskeið. Hún hvatti mig til að fara í listnám og ítrekaði þá skoðun við foreldra mína." Eti þá komu kennarar Sjafnar til sögunnar. Þeir sögðust skilja að hún vildi ekkifara í menntaskóla, en hún cetti endilega að lcera til kennara. „Þannig gat ég platað pabba til að samþykkja að ég færi í Myndlista- og handíðaskólann. Ég fann Viku með ítarlegu viðtali við Hörð Ágústs- son, skólastjóra MHÍ, sem var mik- ill fræðimaður og strangur skóla- stjóri. Benti pabba á að ég gæti orðið myndmenntakennari og þá varð leiðin greiðari." Sjöfn stóð við orð sín og að loknu námi frá myndlistaskólanum gerð- ist hún meðal annars kennari við Kvennaskólann í Reykjavík og við Víðistaðaskóla íHafnarfirði. „Svona var tíðarandinn þegar ég var ung," bætir hún við. „Ég veit nú reyndar ekki hvers vegna pabbi var svona á móti þessu námi; hann fór sjálfur að dútla við að mála síðustu árin sín og hafði gaman af. Síðar hélt ég til náms við Akademíuna í Kaup- mannahöfn og lauk þaðan námi með kennarapróf á æðri stigum. En Guð veit hvað hefði gerst hefði ég farið í Menntaskólann á Akureyri. Ég væri kannski bara hugguleg húsmóðir á Akureyri og formaður kvenfélagsins þar. Gifst huggulegum lækni og látið stúdentsprófið nægja. En ég þreifst ekki við þessa hugsun þá. Núna er ég hins vegar að íhuga að ganga í kven- félagið á Eyrarbakka, því kellurn- ar þar eru bæði menningarlegar og skemmtilegar. Þær eru búnar að lofa mér að ég þurfi ekki að baka fyrir út- farir, ég gæti nýst í margt annað!" Myndrænt brúðkaup Og sennilega ekki margir sem þekkja til Sjafnar sem sjá hana fyrir sér sem virðulega og rólega frú. „Nei, en það er sífellt verið að tala um „mennina mína“. Ég hef sko bara verið gift einu sinni!" segir hún og brosir kankvíslega. „Já, ég átti „movie like" brúð- kaupsdag árið 1993," segir hún og brosir svo innilega að þrátt fyrir hjónaskilnað er ljóst að sá dagur er bjartur í minningunni. „Ég gifti mig með stæl í Hallgríms- kirkju þegar ég var fertug. Magnea systir mín, sem er hönnuður, hann- aði brúðarkjólinn. í hann fóru þrjá- tíu metrar af silki og hann var saum- aður á brúðarkjólastofu á ítalíu undir stjórn Magneu. BrúðkaupsdagUrinn var eins og mig hafði dreymt um; fer- tug stúlkan í sérhönnuðum Marilyn Monroe-kjól og Grace Kelly-kápu og með margra metra slóða. Mig lang- ar að gefa Þjóðminjasafninu þennan kjól, því ekíd á ég dætur til að nota hann. Þetta var óskaplega mynd- rænt - brúðkaup aldarinnar!" segir hún og fær hressilegt hlámrskast. Hamingjulaus glæsileiki Ógleymanlegur brúðkaupsdagur, en skammvinnt hjónaband. Stóð í fjögur ár. „Ég kynntist eiginmanninum, Ármanni Ármannssyni útgerðar- manni, meðan ég bjó í Danmörku en var stödd á íslandi að kynna vegg- mynd á spítalann í Stykkishólmi. Eg hafði alls ekki ætlað mér að flytja aft- ur heim, en féll fyrir þessum víkingi. Við kynntumst árið 1987, ári seinna lenti ég í bílveltu við Stykkishólm sem breytti lífi mínu og lífsviðhorfi. Þá hætti ég að vinna með mósaík og keramik og sneri mér alveg að mál- verkinu." Saman í tíu ár, gift ífjögur og ný- fráskilin listakonan flutti í glœsilega íbúð íListhúsinu íLaugardal. En þar var hamingjuna ekki að finna. „Nei, veistu það að innan um all- an glæsileikann fannst mér ég aldrei vera heima í þeirri íbúð," segir hún. „Ólíkt því sem ég finn hér í húsinu mínu á Stokkseyri. Það tók mig nokk- urn tíma að jafna mig eftir skilnað- inn og þá leigði ég mér aðstöðu á Eyrarbakka og dvaldi þar jafn mikið og í Reykjavík." Eigingirni listamanna En hvað með þessar sögur um þig ogalla karlmennina ílífiþínu...? „Sjáðu til, ég hef kannski átt per- sónulegan, litríkan feril en alltaf verið sjálfri mér samkvæm," segir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.