Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2006, Síða 38
54 FÖSTUDAGUR 18.ÁGÚST2006
Veiðimál DV
Byrjaði á bryggjunni á Flateyri
Góð veiði Jakob meö fallegan afla úr Steinsmýrarvötnum.
veiða hérna á vesturhorninu" segir
Jakob um þetta frábæra svæði sem
hægt er að mæla með.
Sjóbirtingsveiði alltaf að
verða vinsælli
„Það er nú líka þannig að sjó-
birtingsveiðin er alltaf að verða
vinsælli og vinsælli og alltaf fleiri
að átta sig á því hvað birtingurinn
getur verið skemmtilegur. Hann
tekur oft af slíkum krafti að menn
gleyma tökunum aldrei. En þetta
svæði geymir gríðarlega mikið af
fiski og þeir geta verið verulega
vænir þarna og til að mynda lenti
veiðimaður í því í fyrra að missa
fisk eftir 20 mínútna baráttu þar
sem hann sá fiskinn aldrei og þeg-
ar flugan kom til baka var búið að
rétta úr öllum krókunum á henni.
Þar fór einhver höfðingi og það er
gaman að vita af svona fiskum á
svæðinusegir Jakob.
Veidimenn.is
Jakob er búin að reka vefsíðuna
veidimenn.is í rúm tvö ár og hefur
hún verið mjög vinsæl. Á síðunni
eru fréttir, heilræði, greinar, við-
töl og mikið magn af myndum og
það er alltaf gaman að skoða veiði-
myndir. Eitt af því vinsælasta á síð-
unni eru svokölluð heilræði en þar
eru gefin góð ráð varðandi stang-
veiðar. Jakob segist vera búinn að
fara víða að veiða í sumar og nefn-
ir meðal annars Þingvallavatn þar
sem hann veiddi stóran urriða í
vor og góða ferð í Grafará þar sem
veidd var væn sjóbleikja.
Jakob Hrafnsson er einn af þessum litlu leigutökum sem einbeitir sér að skemmtilegum sil-
ungsveiðisvæðum. Mikil tækifæri eru í silungsveiðinni þegar laxveiðileyfin hækka í verði.
„Ég byrjaði að stunda veiði fyrir
rúmlega 20 árum. Ég fór með pabba
í veiði hingað og þangað auk þess
sem ég stundaði mjög metnaðar-
fullar veiðar af bryggjunni á Flat-
eyri við Önundarfjörð þar sem ég
ólst upp," segir stórveiðimaðurinn
og veiðaleyfasalinn Jakob Hrafns-
son um fyrstu kynni sín af veiði-
gyðjunni. „Þarna kviknaði áhuginn
virldlega og ég hef ekki losnað við
bakteríuna síðan og það stendur
ekki til," segir Jakob.
Veiðimaður vikunnar að
þessu sinni er trommuleikar-
inn og veiðimaðurinn Birgir
Nielsen. Birgir framleiðir,
ásamt bræðrum sínum, flug-
ustangir undir nafninu Nielsen
og hafa stangirnar verið að fá
góða dóma í erlendum veiði-
tímaritum.
„Ég fór í Norðurá í júní og
það var bara sviss miss (litað
vatn) og mikið vatn og leið-
indaveður. Sú veiði var nú ekki
neitt til að hrópa
húrra yfir en það
er alltaf gaman að
koma í Norðurá;
flott veiðihús og að-
staða. En svona er
bara veiðin stund-
um. Ég fór svo í
Vatnsdalinn núna
um daginn og reisti
nokkra laxa en náði
reyndar engum. Ég
náði í flottan sjóbirt-
ing og hann tók ég á
tvíhenduna. Þetta er
fyrsta sumarið sem ég
byrjaði að nota hana.
Svo eru við nokkr-
ir popparar að fara
saman í Grímsá en
við höfum alltaf far-
ið saman einu sinni á
ári. Þetta eru strákarn-
ir úr Landi og sonum
og fleiri, alltaf rosalega
skemmtilegar ferðir."
Veiðirá allt
„Ég veiði á allt og nota flugu,
maðk og spún ef þarf. Ég hef hins
vegar mest gaman af fluguveiði og
hef stundað hana að mestu leyti í
um 10 ár. Ég hef líka ofsalega gam-
an af maðkveiði og þá sérstaklega
ef ég er á stöðum þar sem ég get
sjónrennt á fisk. Það getur verið al-
veg svakalega gaman," segir Jakob
um þær veiðiaðferðir sem hann
notar.
Öflugur veiðileyfasali
Jakob hefur selt veiðileyfi
í nokkur ár og tala menn vel um
hann varðandi verðlagningu en
mikil umræða hefur verið seinustu
ár um óhóflega verðlagninu á veiði-
leyfum. „Ég er að seija veiðileyfi í
Miðdalsá í Steingrímsfirði en það
er falleg tveggja stanga sjóbleikjuá.
Þar veiðast líka á hverju ári nokkrir
laxar. Miðdalsá er mjög falleg á og
það eru skemmtilegir veiðistaðir í
henni.
Svo er ég með Grafará eða Deild-
ará eins og sumir vilja meina að
hún heiti við Hofsós. Þar er líka sjó-
bleikja og í þessu gríðarlega fallega
umhverfi í Skagafirðinum er gam-
an að veiða og þarna getur bleikj-
an verið væn, til dæmis veiddist 9
punda bleikja í ánni fyrir tveim-
ur árum. f ánni er líka lítill laxa-
stofn og á hverju ári veiðast nokkr-
segir Jakob greinilega stoltur af
ám sem hann er með á sínum
snærum.
Steinsmýrarvötn koma sterk
inn
„Ég er líka með Steinsmýrar-
vötn austur í Landbroti en þetta
svæði er alltaf að verða vinsælla
og vinsælla. Þarna veiðist sjóbirt-
ingur, bleikja og urriði og það er
nóg af fiski og fáir sem fara það-
an fisklausir. Þar hefur veiðin
einmitt verið mjög góð í sumar
eru menn að fá mjög væna sil-
unga sem oft eru jafn stórir eins
árs löxunum sem við erum að
Fallegar bleikjur Þaö veiöast oft mjög
vænar og fallegar bleikjur I Steinsmýrar-
vötnum.
Umsjón: Jón Mýrdal (myrdal@dv.is)
Allarábendingar eru vel þegnar; veiðisögur,
óvænt veiði, hverjir voru hvar við veiðar...
Allt sem við kemur veiðum og veiöimennsku.
Veitt og sleppt Jakob að sleppa 10 punda
urriða úrÞingvallavatni.
Þokkaleg veiði í
Brynjudalsá
Þokkaleg veiði er i Brynjudatsá í Hvalfirði
þessa dagana. Veiðimaður sem varí
Brynjudalsá núí vikunni náði í tvo laxa fyrir
ofan efri foss á litla Hairy Mary. íheild eru því
komnir 78 laxar á land í Brynjudalnum.
Veiðimenn hafa séð töluvert aflaxi bæði fyrir
ofan foss og á fossasvæðinu sjálfu. En er hægt
að nálgast veiðileyfi i Brynjudalsá á agn.is.
Góð veiði hefur verið í Hraunsfirði í sumar. Blaðamaður Veiðimála Mýrdals kom með öngulinn í rassinum
eftir ferð þangað um seinustu helgi.
Fullt aflaxi í Hraunsfirði
Blaðamaður var á ferð um
Snæfellsnes um helgina og kíkti í
Hraunsfjörðinn. Veðrið á nesinu
var mjög gott og fjörðurinn spegil-
sléttur. Ekki sást fiskurinn vaka þó
að vatnið væri slétt. Keyrt var inn
fjörðinn og reynt að sveifla flugu-
stönginni á hinum ýmsu stöðum
en það var alveg sama hvað var
reynt, ekki tók bleikjan. Blaða-
maður hitti á nokkra veiðimenn
sem höfðu verið innarlega í firðin-
um þar sem áin rennur í vatnið og
höfðu þeir fengið nokkrar bleikjur.
Þessir veiðimenn höfðu verið vik-
una áður og þá mokað bleikjunni
upp.
Fullt af laxi fyrir neðan
stífluna
Keyrt var til baka að stíflunni
og gleraugun tekin upp og skoð-
að í svokallaða fiskigönguleið sem
stíflan afmarkar. Þegar fór að falla
að mátti sjá bæði bleikjur og laxa
bunka sér á þessum stað bíðandi
færis eftir því að ganga inn fjörð-
inn. Taldi blaðamaður um 40 flotta
laxa sem biðu eftir að ganga í vatn-
ið og slatta af bleikju. Bannað er
að veiða á þessum stað og bíða því
veiðimenn hinum megin við stífl-
una eftir fisknum. Þegar blaða-
maður yfirgaf staðinn hafði eng-
inn fiskur komið á land þótt nóg
væri af honum.
Veiddi vel á galdrafluguna
Það er greinilegt að það er ekki
sama á hvaða tíma menn eru að
veiða í Hraunsfirði því við fengum
mynd frá Svavari Ásgeiri þar sem
hann sýnir okkur morgunveiði í
Hraunsfirði í seinustu viku og má
sjá að hann náði sér í flottar bleikj-
ur á skömmum tíma. Við fjöll-
uðum lítillega um veiði Svavars í
seinustu viku og sögðum frá því að
hann hefði fengið allar bleikjurn-
ar á svokallaða galdraflugu og við
birtum því mynd af henni og upp-
skrift frá höfundi hennar honum
Ólafi M. Að sögn Ólafs hefur þessi
fluga reynst vel í bleikju, sjóbirt-
ingi og lax.
Galdraflugan Hefur
virkaö velí bleikju,
sjóbirting og lax.
Uppskrift að galdraflugunni
Skott: Svört starrafjöður.
Búkefni: Aftast er vafíð rauðri ull og
endinn látinn lafa svolítið niður
(rauðu lappirnar). Síðan er notað
„Smart"-garn, grásvart-yrjótt,
litakóði 3071, fæst í Hagkaupum.
Skegg: Svört hanahálsfjöður.
Vængur: Starri.