Freyr - 01.12.1971, Blaðsíða 19
HANNES PÁLSSON:
JARÐRÆKTAX
og bygginga-
framkvœmdir
bœnda 1970
Um undanfarin ár hefur það verið venja,
að FREYR birti yfirlit yfir framkvæmdir
bænda næstliðins árs í megindráttum.
Yfirlit það, sem hér fer á eftir, nær yfir
framkvæmdir ársins 1970 og í því sambandi
er gerður samanburður á magni fram-
kvæmda við hliðstætt árið 1969. Við þann
samanburð geta menn svo hugleitt hvernig
háttað er þróun ræktunarmála í hinum
einstöku héruðum, sveitum og landshlut-
um, og þá um leið hver virðist framtíð
hlutaðeigandi byggðarlaga.
Ræktun
Árið 1970 voru jarðabótamenn alls 3.387
en árið 1969 voru þeir 3.360. 1970 var ný-
rækt alls 3.242 ha en var 4.124 ha árið 1969.
Nýræktin var því 882 ha minni 1970
heldur en 1969 og nær því helmingi minni
en hún hefur mest orðið á einu ári.
Endurvinnsla túna varð árið 1970 alls
858 ha, en var 1969 samtals 771 ha. Þessi
mikla endurvinnsla stafar vitanlega af
hinum ægilegu kalskemmdum, sem tún
urðu fyrir á þessum árum. Grænfóðurakr-
ar urðu 3.459 ha en voru 1.941 ha 1969.
Grænfóðurakrar jukust því um 1.518 ha
frá 1969, en sá galli var á gjöf Njarðar,
að uppskera grænfóðurs varð mjö lítil á
stórum hluta landsins árið 1970.
Árið 1970 var grjótnám 16594 m3 en 1969
var það 15871 m3.
Girðingar um ræktað land 1970 urðu alls
664.383 m en voru 669.660 árið 1969. Árið
1970 voru vélgrafnir skurðir 5.105.283 m3
en voru 1969 alls 4.302.963 m3.
Framræslan hefur því aukizt um 802.320
m3 frá 1969, og er það vel, því sennilega
gefur engin jarðabót jafnmikinn nettó-
hagnað eins og framræslan.
Árið 1970 voru gerð plógræsi, sem námu
4.992 km en árið 1969 voru lagðir 4.821 km.
1970 voru gerð 5461 m af lokræsum en
1969 8241 m.
Handgrafnir skurðir 1970 voru grafnir,
sem nam 1128 m3, en 1969 voru grafnir
8.019 m3.
Byggingar
Byggingaframkvæmdir urðu þessi ár, sem
hér segir:
1970 voru byggðar 5452 m3 þvaggryfjur
en slíkar byggingaframkvæmdir voru 3786
m3 1969.
Áburðarhús urðu 18.255 m3 1970 en voru
23.978 m3 1969. Segja má því að árið 1970
hafi verið byggt 4057 m3 minna af áburðar-
geymslum en 1969.
Árið 1970 voru þurrheyshlöður byggðar
sem nam 56.115 m3 en 1969 voru byggðar
80.726 m3. Þessi tegund framkvæmda
minnkaði því um 24611 m3.
Árið 1970 voru byggðar 11.094 m3 af vot-
heyshlöðum, en árið 1969 voru þær aðeins
3748 m3. Vegur sú aukning nokkuð á móti
minnkandi byggingu á þurrheyshlöðum.
Árið 1970 var súgþurrkunarkerfi með
blásara sett í 15.598 m2 en 1969 var súg-
þurrkunarkerfi með blásara sett í 34.331
m2 gólfflöt.
Auk þess var súgþurrkunarkerfi án blás-
ara sett á 1583 m2 1970, en 1969 á 1766 m2
flöt.
Garðávaxtageymslur urðu 3.670 m3 árið
1970, en voru 4.734 m3 1969.
* * *
F R E Y R
483