Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.1971, Qupperneq 51

Freyr - 01.12.1971, Qupperneq 51
Súrsaður iiskur og íiskúrgangur Þess var getið í FREY fyrir alllöngu, að Græniendingar geymi fiskúrgang og fisk til fóðurs í sýru. Af þessu tilefni hafa borizt fyr- irspurnir um verkunar- og geymsluaðferðir á nefndan hátt. Freyr leitaði til sérfræðings um þetta efni í Noregi og hefur hann — Ein- ar Fyrileiv — sent prentað mál, sem hér fer á eftir í íslenzkri þýðingu. Bæði fisk og fiskúrgang er hægt að geyma langtímum saman í sýru eða lút. Súrsun er algengust og skal henni lýst í eftirfarandi: Sýruverkun Bezt er að nota maurasýru til þess að varð- veita fisk og fiskúrgang gegn skemmdum og til fóðurs síðar. Þegar öskumagn í þessu fóðri er um 2% þarf að nota 1,3 lítra sýru 1 hver 100 kg af fiski og fyrir hvert prósent sem öskumagnið er fram yfir 2% þarf 0,4 lítra í 100 kg. Þegar um ræðir þorsk og síld þarf að nota 1,8 1 og í úrgang, eftir flök- un, þarf 2,6—2,8 lítra í 100 kg. Til þess að auðvelda blöndun sýrunnar í hráefnið er rétt að þynna maurasýruna með vatni í hlutíallinu 1:1 þannig, að vökvamagnið tvöfaldist. Verkunaraðferðin Við umrædda votverkun með sýru er bezt að haga athöfnum þannig: í fyrsta lagi þarf hæfilega stóra kvörn til þess að mala hráefnið, ílát til að blanda saman möluðu hráefninu og þynntri sýru og í þessu skal hræra með tréstaut. Nauðsynlegt er að hafa vog til þess að vega hráefnismagnið og mæli til þess að mæla sýrublönduna og hann svo nákvæman, að hann sýni desi- lítrafjölda. Þegar hráefninu og sýrunni hef- ur verið blandað vel saman má hella því upp í trétunnur til varðveizlu en málmílát má ekki nota þegar um ræðir sýruverkun. Lögð skal áherzla á að blanda ekki í stóra skammta í senn. Hæfa vel skammtar, er vega svo sem 10—20 kg og hella svo í tunn- urnar smátt og smátt eftir sýruíblöndun. Lokun íláta Þegar fóðrið er súrsað er ekki nauðsynlegt að loka loftþétt eins og ef lútverkað er. En loftaðgang er rétt að takmarka svo að fita þráni ekki né flugur komist að. Búfé þolir vel það fóður, sem súrsað er með maurasýru. Nota skal helzt úrgang úr mögrum fiski hand mjólkandi skepnum, því að súrsaður feitur fiskur getur orsakað slæmt bragð af mjólk. Framleiðnisjóður landbúnaðarins var stofnaður með lögum nr. 89 frá 17. des- ember 1966 í þeim tilgangi að veita styrki og lán til framleiðniaukningar og hagræð- ingar í landbúnaði og atvinnurekstri á bújörðum. Stofnframlag ríkissjóðs til Framleiðnisjóðs var 50 millj. króna, en af þeirri upphæð voru 20 millj. kr. greiddar strax árið 1966, en þeirri fjárhæð var ráð- stafað samkvæmt ofangreindum lögum til vinnslustöðva landbúnaðarins vegna end- urbóta, sem gerðar höfðu verið á árinu 1966. Eftirstöðvarnar af stofnfjárveitingu F R E Y R ríkissjóðs voru greiddar með jöfnum ár- legum greiðslum á árunum 1967—1969. Að frátöldum vöxtum af útlánum voru Fram- leiðnisjóði ekki ætlaðar aðrar tekjur en að ofan greinir. Sjóðurinn veitir lán og styrki til einstak- ra bænda, vinnslustöðva, ræktunarsam- banda og vísindastofnana, en af því fé, sem ráðstafað verður úr sjóðnum á ári hverju eftir 1966, má eigi verja meiru en % hluta til styrkveitinga. Lán sjóðsins hafa verið á 6Vz% vöxtum til 12 ára með annúitetsfyrir- komulagi. Fjármálatíðindi. 515 L
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.