Freyr - 01.12.1971, Qupperneq 56
Dætur bóndans
segja irá
Sinn er siður í landi hverju, segir máitækið.
Þó að margt væri á annan veg fyrr á árum
en nú gerist, mun óþekkt hér á landi það
viðhorf, sem greinir í eftirfarandi frásögn
finnskra bændadætra, er segja frá gömlum
dögum.
í lok síðustu aldar voru jafnan margir
bændur á jarðnæði stórbændanna í Finn-
landi. Bóndi einn átti þrjár dætur, tvær
þeirra eru á lífi og búa enn á sama stað
og þær fæddust, önnur þeirra er 86 ára,
hún gegnir útiverkum heimilisins, hefur í
ár ræktað bæði kartöflur og steinselju —
hin er 85 ára og bakar brauðið og sinnir
almennum störfum innanhúss. Látum þær
segja frá lífsháttum fyrir 70—80 árum.
AMMA var vinnustúlka hjá námueig-
anda á æskuárum. Á hverjum morgni
skyldi hún kyssa pilsfald frúarinnar. Það
þótti eftirsóknarvert að komast í vist stór-
bændanna í þá daga, þar voru húsmæðra-
skólar þeirra tíma. Síðan fór hún í vist
hjá stórbóndakonunni, sem var dóttir
námueigandans. Það var líka leið til frama.
Þar mætti hún vinnumanni, það var afi
minn.
STÓRBÓNDAFRÚIN hélt brúðkaups-
veizlu þeirra. Vinnukonan fékk brúðar-
skart og meðgjöf til heimilisstofnunar..
Fyrsta árið eftir brúðkaupið var afi ráðs-
maður á útjörðum stórbýlisins. Þeirra
gætti hann eins og væru þeir í sjálfseign
hans. Allir hlutir skyldu vera í röð og
reglu. Aldrei fengu börn leyfi til að tína
upp og borða epli eða aðra ávexti, er fallið
höfðu til jarðar, nema að fá leyfi til þess
áður. Afi fór með ávextina á markað í
borginni á haustin. Hann fór á árabáti og
í bátnum gisti hann, þótt ekki væri yfir-
byggður, til þess að spara hótelkostnað.
Fljótlega fengu ungu hjónin svo eina af
útjörðum stórbóndans til ábúðar.
LAND jarðarinnar var um 18 ha að
stærð. Landleigan var 30 mannsdagsverk,
8,5 kg smjör, hálf tunna söltuð síld og 25
teningsföðmum af skógviði, höggnum og
stöfluðum, skyldi hann skila á tilsettum
stað, en timbrið var þó úr skógi stórbónd-
ans. Þetta var árlegt eftirgjald og þar að
auki skyldi hann sjá um viðhald húsanna.
En fleiri kvaðir fylgdu. Afi varð ævin-
lega að hlýða kalli og vinna hjá stórbónd-
anum þegar þar voru annir og vinnuafl
skorti, en sú vinna var þó borguð. Engum
datt í hug að neita þegar kall kom, jafnvel
þótt það væri eftir háttatíma, þá var bara
að fara á fætur eldsnemma til að vera
kominn á stórbýlið við upphaf vinnudags,
með birtingu. Þar byrjaði vinnudagurinn
klukkan 5, en afi þurfti að ganga 10 km
til vinnunnar.
LEIGULIÐINN gat sjaldan skipulagt
heimastörf næsta dags því að aldrei var
að vita hvenær kall kæmi frá landeiganda.
Járnið, úr námu stórbóndans, varð að
flytja til hafnar áður en ár og vötn lögð-
ust undir ísa. Að vetrinum var nóg að gera
með hesta og sleða því að þá var bæði
járn og timbur að flytja. Erfiðustu ferð-
irnar voru á landi því að hvert hlass var
tilbúið að morgni og það fór eftir akfæri
hvort hesturinn hafði þrek til að draga 4
—5 tonna hlass til áfangastaðar yfir dag-
inn, og oft kom fyrir að hver ferð stóð í
þrjá daga. En afi var hraustur og hann
kvartaði aldrei. Hann hafði reyndar aðrar
áætlanir um tíma en að þræla hjá öðrum
meginhluta ævinnar, en lét þó til leiðast
að fara stöðugt sömu slóðina. Ekki voru
520
F R E Y R