Freyr - 15.09.1979, Side 11
2. Reikningar Stéttarsambands bænda
1978.
Steinþór Gestsson lagði fram reikningana
og skýrði þá. Tekjur á rekstrarreikningi voru
alls kr. 89.549.562, þar af frá Búnaðarmála-
sjóði kr. 47.453.013.
Gjöldin voru alis 55.496.665 kr. og tekju-
afgangur kr. 34.052.897.
Efnahagsreikningur sýndi eignir upþ á kr.
622.465.397, þar af var eignarhluti Bænda-
hallarinnar kr. 411.058.397.
Um tekjuafgang lét Steinþór fylgja þessa
greinargerð:
Tekjur umfram gjöld eru taldar á rekstrar-
reikningi kr. 34.052.897. Samkvæmt sam-
þykktum sambandsins er framiag til Trygg-
ingarsjóðs ákveðið 15 milljónir króna árið
1978. Það, ásamt framlagi til Byggingasjóðs
og vaxtatekjum Tryggingarsjóðs, tekur upp
þann tekjuafgang, sem talinn er hér að
framan, sbr. yfirlit nr. 22 um höfuðstól.
Reikningarnir höfðu verið endurskoðaðir
af kjörnum endurskoðendum án athuga-
semda.
Þá var gefið matarhlé til hádegisverðar.
3. Skýrsla erindreka.
Árni Jónasson flutti skýrslu um nokkur þeirra
mála, er hann hafði unnið að. Ræddi hann
fyrst um setningu laga um breytingu á lausa-
skuldum bænda í föst lán, undirbúning
þeirra og gagnasöfnun. Kvað hann bændur
nokkuð hikandi að sækja um þessi föstu lán
sökum þess, að þau væru að fullu
verðtryggð.
Þá ræddi hann um ýmiss konar ósamræmi
og misrétti í skattalögum, þar sem hallaði á
landbúnaðinn, svo sem varðandi sölu-
hagnað af ófyrnanlegum eignum á bújörð-
um. Síðan greindi hann frá könnun sinni á
fiutningskostnaði áburðar og kjarnfóðurs og
kvað kostnaðinn við áburðinn að miklu leyti
jafnaðan.
Erindrekinn sagði frá tveggja ára athugun
á rafmagnskostnaði sveitabýlis, þar sem
ekkert virtist koma fram, sem stutt gæti
kröfugerð til sexmannanefndar.
Þá ræddi hann um veiðimál, sölu veiðileyfa
og arð af laxveiði, sem yfirleitt færi vaxandi.
Árni ræddi um kjötmatið nýja og ýmsa
reynslu af því, meðal annars af sölu hinna
tveggja nýju flokka dilkakjöts, er metnir voru
FREYR
575