Freyr - 15.09.1979, Blaðsíða 14
sumar. En þess bæri að geta, að bændur
hefðu aldrei verið betur undir búnir að mæta
harðindum en einmitt nú vegna góðra tekna
síðasta ár og heybirgða. Hann spurði, hverj-
um þetta væri að þakka, og nefndi búnaðar-
löggjöf Búnaðarfélag íslands, leiðbeininga-
þjónustu og tilraunastarfsemi. Hann kvað
bændur nú þurfa að laga sig að breyttum
aðstæðum og fara inn á nýjar brautir að
ýmsu leyti. Óskaði hann þess, að Stéttar-
sambandið verði bændum skjöldur og sverð
á ókomnum árum sem hingað til.
6. Símskeyti til fundarins.
Fundarstjóri las símskeyti, er borist hafði á
fundinn, svohljóðandi:
Stéttarsamband bænda, Stykkishólmi.
Stjórn Kvenfélagasambands íslands
sendir fulltrúum á aðalfundi Stéttarsam-
bands bænda bestu kveðjur og þakkar gott
samstarf og árnar ykkur allra heilla.
María Pétursdóttir,
formaður.
7. Nefndakosningar.
Fundarstjóri lagði fram tillögur stjórnar um
kosningar í nefndir. Voru þær allar sam-
þykktar og fulltrúum skipt í 6 nefndir. Urðu
þær þannig skipaðar:
Verðlagsnefnd:
Jón Guðmundsson, Óslandi, Kristófer
Kristjánsson, Kristinn Bergsveinsson,
Sveinn Björnsson, Þórarinn Þorvaldsson,
Ragnar Guðmundsson, Sigurður Jónsson,
Kastalabrekku, Gísli Andrésson.
Allsherjarnefnd:
Böðvar Pálsson, Jón Guðbjörnsson, Einar
Þorsteinsson, Grímur Jónsson, Ingimundur
Ásgeirsson, Sigurður Sigurðsson, Jón Gísli
Jónsson, Eysteinn Gíslason.
Fjárhagsnefnd:
Júlíus Jónsson, Sigurjón Sigurðsson, Engil-
bert Ingvarsson, Sigurður Líndal, Sigurður
Jónsson, Efralóni.
Framleiðslunefnd:
Hermann Guðmundsson, Magnús Sigurðs-
son, Stefán Á. Jónsson, Jón Bjarnason, Öss-
ur Guðbjartsson, Þórður Pálsson, Hermann
Sigurjónsson, Þorsteinn Geirsson, Einar
Magnússon, Jón M. Guðmundsson, Tryggvi
Stefánsson.
Lánanefnd:
Jón Kr. Magnússon, Stefán Valgeirsson,
Unnsteinn Eggertsson, Ingólfur Björnsson,
Sveinn Guðmundsson.
Laganefnd:
Helgi Jónasson, Sveinn Jónsson, Sigfús
Þorsteinsson, Sigurður Þórólfsson, Kristján
Guðmundsson.
Kaffihlé.
8. Umræður um skýrslur og reikninga.
Fyrsturtók til máls Jón Guðbjörnsson. Þakk-
aði hann stjórn og starfsmönnum Stéttar-
sambandsins góð störf og hvatti til samstöðu
bænda út á við í hagsmunabaráttu sinni.
Hann minnti á, að þessa dagana væri haldið
sambandsþing U. M. F. í. og óskaði þess, að
stéttarsambandsfundurinn sendi þvi kveðju
sína. Sagði Jón, að ungmennafélög og
kvenfélög væru burðarásar í félagslífi
byggðanna.
Jón taldi aukafund Stéttarsambandsins sl.
einna eftirminnilegastan allra funda, er hann
hefði setið. Síðan ræddi hann afkomu
bænda og niðurstöður búreikninga. Benti
hann á, að stærð búreikningabúsins væri á
við 11/2 vísitölubú og vinnutíminn á við 80
vinnuvikur, 40 stunda, eða tveggja ára starf í
dagvinnu. Hann taldi mjög slæmt, að
verðákvörðun landbúnaðarvara var frestað
nú.ogýtti það undirýmsaspákaupmennsku.
Jón þakkaði landbúnaðarráðherra mikil
störf og góðan hug í landbúnaðarmálum.
Þórður Pálsson tók undir þau orð land-
búnaðarráðherra, að harðindin mættu ekki
stjórna samdrætti í framleiðslunni, en móta
þyrfti framkvæmd þeirra mála áður en ár-
578
FREYR