Freyr - 15.09.1979, Blaðsíða 15
Ekki eru þau auðveld til úrlausnar vandamálin. i ræðustól er Kristófer í Köldukinn.
ferðiö stóreykur framleiðsluna á ný. Menn
þyrftu að fá að vita, hvaða magn þeim yrði
greitt á-fullu verði og hvað með afföllum.
Þetta ætti helst að liggja fyrir við ásetning í
haust. Þórður kvað nauðsyn að stöðva ekki
endurbyggingu á jörðum, þar sem hús væru
úr sér gengin.
Hann tók undir orð formanns um frest
þann, er ríkisstjórnin setti til ákvörðunar um
verðlagningu.
Fundarstjóri las skeyti, erfundurinn sam-
þykkti að senda:
31. þing Ungmennafélags íslands, Stóru-
tjarnaskóla.
Bestu kveðjur og árnaðaróskir.
Aðalfundur Stéttarsambands bænda.
Sigurður Sigurðsson sagði, að störf for-
manns og landbúnaðarráðherra mundu
seint fullþökkuð, hvað þá metin sem skyldi.
Hann gerði að umtalsefni skattlagningu á
tekjur bænda, þar sem hjón vinna bæði fyrir
tekjunum, og mismun þann, sem væri á
þeirri skattlagningu og svonefndra útivinn-
andi kvenna. Hann taldi einnig þörf að
leiðrétta reglur um fyrningu og fasteigna-
mat.
Hann sagði, að fundurinn þyrfti að mót-
mæla kröftuglega frestun verðákvörðunar.
Tryggvi Stefánsson tók undir mótmæla-
kröfu Sigurðar. Hann taldi að tryggja bæri
rétt þeirra, sem hefðu landbúnað að aðal-
atvinnu, og þar með afkomu þeirra. Hann
benti á þá nauðsyn, að bændur væru vel
menntuð stétt, og hvatti til að efla til-
raunastöðvarnarog einbeita rannsóknum að
vissum verkefnum.
Einar Þorsteinsson kallaði það meiri háttar
afrek, hvernig bændur hefðu staðist harð-
indin á síðastliðnu vori. Hann þakkaði nú-
verandi ríkisstjórn og þeirri næstu á undan
viðbótarframlög til útflutningsbóta. Hann
þakkaði einnig niðurfellingu söluskatts, lög
um forfallaþjónustu í sveitum, aðstoð í
FREYR
579