Freyr - 15.09.1979, Qupperneq 20
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 tekur
undir ályktun Búnaðarþings frá 1978 um ferða-
kostnað dýralækna og skorar á yfirvöld að hrinda
málinu í framkvæmd.
Samþykkt samhljóða.
Einar Þorsteinsson lagði fram þessa til-
lögu allsherjarnefndar:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979, hald-
inn í Stykkishólmi 1.—3. september, beinir því til
stjórnar Stéttarsambandsins og Framleiðsluráðs
að auka upplýsingastreymi um verðlags-, fram-
leiðslu, og sölumál landbúnaðarins til hvers ein-
staks bónda. Bendirfundurinn á, að út verði gefin
sérstök fréttabréf eða skrif um þessi mál aukin í
Frey.
Jafnframt þakkar fundurinn formanni sam-
bandsins og starfsmönnum fyrir mikið starf við
fyrirlestrahald á almennum bændafundum og
kjörmannafundum.
Samþykkt samhljóða.
Einar Þorsteinsson flutti einnig þessa tillögu
frá allsherjarnefnd og rökstuddi hana:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn í
Stykkishólmi 1.—3. seþtember, 1979, beinir þeim
eindregnu óskum til ríkisstjórnarinnar, að ráðinn
verði á vegum utanríkisráðuneytisins sérstakur
verslunarfulltrúi, er sinni einvörðungu markaðs-
málum íslenskra búvara erlendis.
Samþykkt samhljóða.
Grímur Jónsson flutti tillögu alls-
herjarnefndar um uppbyggingu gras-
kögglaverksmiðju og verðjöfnun á gras-
kögglum. Hann taldi mikla nauðsyn að hraða
þessari uppbyggingu.
Sveinn Guðmundsson kvað ekki vert að
biðja um meira fjármagn en vonlaustværi að
fá á einu ári.
Gísli Andrésson vakti athygli á sérstöðu
þeirra graskögglaverksmiðja, sem eru í
einkaeign.
Sigurður Jónsson, Kastalabrekku, lagði
höfuðáherslu á, að verksmiðjunum verði
dreift um landið, en Árni Jónasson minnti á
álit nefndar, sem starfaði fyrir nokkru, og
taldi meginatriði varðandi hagkvæman
rekstur, að árlegur starfstími verksmiðjanna
væri sem lengstur.
Tillagan var síðan tekin til nánari athugun-
ar í nefndinni.
Grímur Jónsson flutti einnig þessa tillögu
allsherjarnefndar:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979, hald-
inn í Stykkishólmi dagana 1.—3. september, sam-
þykkir að skora á landbúnaðarráðherra að beita
sérfyrirákveðnum aðgerðum til uppbyggingar og
aukinnar starfsemi á bændaskólanum á Hólum í
Hjaltadal með auknum fjárveitingum, endur-
skoðuðum starfsháttum, breyttu skipulagi og
öðrum þeim leiðum, sem nauðsynlegar kunna að
reynast.
SigurðurSigurðsson fagnaði tillögunni og
ræddi stöðu Hólaskóla og Hermann Guð-
mundsson tók undir við Sigurð.
Síðan var tillagan
samþykkt með samhljóða atkv.
Jón G. Jónsson talaði fyrir þessari tillögu
allsherjarnefndar:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn í
Stykkishólmi 1.—3. september 1979, mótmælir
harðlega nýbyggingargjaldi á útihús á bújörðum,
sem lagt var á með lögum nr. 117/1978. Fundur-
inn gerir kröfu til, að Alþingi og ríkisstjórn felli
tjaldið niður.
Samþykkt samhljóða.
Þá var klukkan 1230 og gefið matarhlé, en
að því loknu, kl. 14, var haldið áfram af-
greiðslu mála.
Jón Gísli Jónsson flutti tillögu alls-
herjarnefndar um fæðingarorlof kvenna.
Hún hlaut nokkrar orðalagsbreytingar og var
borin undir atkvæði á þessa leið:
Aðálfundur Stéttarsambands bænda 1979 ítrekar
fyrri tillögur sínar um rétt allra kvenna til fæð-
ingarorlofs og skorar á stjórnvöld að lögfesta
hann.
Samþykkt samhljóða.
584
FREYR