Freyr - 15.09.1979, Page 22
Jón Guðbjörnsson flutti þessa tillögu frá
allsherjarnefnd og ræddi m. a. um félags-
málanámskeið ungmenna- og kvenfélaga:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 telur,
að góð félagsmálafræðsla sé nauðsynleg til að
viðhalda og efla félagsstarfsemi sveitanna. Sjálf-
sagt er, að slík fræðsla veitist öllum nemendum
bændaskólanna. Þá bendir fundurinn á, að bæði
ungmennafélögin og kvenfélögin hafa beitt sér
fyrír félagsmálafræðslu, sem hefur staðið öllum
opin.
Hins vegar væri æskilegt að fá að bæta í það
námsefni, sem þar er notað, þáttum, sem varða
landbúnaðinn.
Beinirfundurinn því til stjórnarsambandsinsað
kanna þann möguleika og leita eftir samstarfi við
ofangreind samtök þar um.
Árni Jónasson bar saman námsefni fé-
lagsmálaskóla U. M. F. í. og K. í. við þ:ð
námsefni, sem unnið hefur verið og ætlað
bændafræðslunni.
Jón Bjarnason sagði nefndina taka efnið
nokkrum öðrum tökum en hann ætlaðist til,
en gott væri, að hreyfing kæmist á málið.
Sveinn Jónsson mælti með tillögunni og
taldi affarasælt að hlúa að og auka þá
félagsmálafræðslu, sem fyrir er.
Kristján Guðmundsson fagnaði tillögunni
og studdi mál Sveins.
Tillagan var borin undir atkvæði og sam-
þykkt samhljóða.
Jón Guðbjörnsson mælti fyrir tillögu alls-
herjarnefndar um orlofsmál:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 telur
fyllilega tímabært, að bændafólk eigi kost á að
njóta sumarleyfis við góðar aðstæður í fögru um-
hverfi, og minnir á samþykkt aðalfundar 1977 um
þetta efni. Felur fundurinn stjórn sambandsins að
kanna, á hvern hátt megi koma upp orlofsaðstöðu
fyrir bændur og starfsfólk þeirra. Kanna þurfi
einnig hugsanlegt samstarf við önnur félaga-
samtök um nýtingu slíkrar aðstöðu.
Gunnar Guðbjartsson fagnaði tillögunni,
en kvað á margt að líta í þessu sambandi.
Hann kvað bændur gjarna vilja ferðast um í
orlofi sínu og erfitt að koma upp orlofsað-
stöðu fyrir þá á einum stað. Hann varpaði
fram þeirri hugmynd að nota skólahús að
sumarlagi til þessararaðstöðu og mætti þáe.
t. v. koma á félagsmálafræðslu um leið.
Tillagan var síðan samþykkt samhljóða.
Böðvar Pálsson flutti tillögu alls-
herjarnefndar um kortagerð og greindi frá
gerð svokallaðra orthokorta og hlutverki
þeirra. Tillagan var svo:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 skorar
á ríkisstjórn og Alþingi að hækka fjárveitingu til
Landmælinga íslands, svo að unnt verði að Ijúka
gerð svokallaðra orthokorta af landinu á næstu 5
árum.
Samþykkt samhljóða.
Böðvar Pálsson flutti enn tillögu alls-
herjarnefndar um byggingafulltrúa.
Helgi Jónasson efaði gildi tillögunnar, og
Jón Guðmundsson, Óslandi, óskaði lagfær-
inga á henni.
Stefán Valgeirsson ræddi setningu nýrra
byggingalaga og fyrirsjáanlega erfiðleika
smærri hreppa að njóta byggingafulltrúa og
Gunnar Guðbjartsson tók í sama streng. Enn
tók til máls Hermann Guðmundsson og Stef-
án Valgeirsson aftur.
Síðan fór tillagan aftur til nefndar og af-
greiðslu hennar var frestað.
Sigurður Sigurðsson mælti fyrir tillögu
allsherjarnefndar um fasteignamat og sölu-
verð bújarða.
Þórarinn Þorvaldsson óskaði viðbótar við
tillöguna um sölu lausafjármuna og
bústofns, og Árni Jónasson benti á að greina
þurfi á mllli fyrnanlegra og ófyrnanlegra
eigna.
Tillagan fór aftur til nefndar og afgreiðslu
hennar var frestað.
Klukkan 16 vargefið kaffihlé. Fundurhófst
að nýju kl. 1655.
586
FREYR