Freyr - 15.09.1979, Side 26
Jón Kr. Magnússon flutti 5. tillögu lána-
málanefndar.
Sveinn Guðmundsson óskaði orðalags-
breytinga, og var það tekið til greina.
Tillagan var þá þannig:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 ítrekar
fyrri kröfur um úrbætur varðandi rekstrar- og af-
urðalán til bænda.
Sérstaklega vill fundurinn benda á, að sett tak-
mark ríkisstjórnarinnar í þeim efnum er enn víðs
fjarri.
Fundurinn leggur því rfka áherslu á, að tekið
verði fullt tillit til tillagna afurðalánanefndar frá
síðasta vetri um, að hluti uppgjörslána verði eftir-
leiðis færður fram og greiddur út með afurðalán-
um í desembermánuði.
Samþykkt samhljóða.
Unnsteinn Eggertsson flutti þessasíðustu
tillögu lánamálanefndar:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 beinir
þeirri áskorun til stjórnar Framkvæmdastofnunar
ríkisins, að Byggðasjóður láni til uppbyggingar á
þeim svæðum, sem skortur er á landbúnaðar-
afurðum, og að einstökum byggðarlögum, sem
höllum fæti standa, sé veitt aðstoð til að tryggja
þar eðlilega búsetu. Fundurinn telur, að góð
reynsla sé þegar fengin af slíkri aðstoð.
Þá krefst fundurinn þess, að sinnt verði áður
framkomnum óskum Stéttarsambandsins um, að
sjóðurinn taki upp nýjan lánaflokk, er veiti sér-
staka aðstoð þeim bændum, sem hefja búskap.
Samþykkt samhljóða.
Þá flutti Sigurður Sigurðsson tillögu alls-
herjarnefndar um byggingarlög og bygg-
ingafulltrúa, en nefndin hafði haft hana til
nýrrar meðferðar. Hún var svo:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 beinir
því til stjórnar Stéttarsambandsins og Búnaðar-
félags íslands að athuga, hver áhrif ný bygg-
ingarlög hafa á aðstöðu bændastéttarinnar og á
hvern hátt hægt er að koma við nýju skipulagi á
ráðningu byggingafulltrúa í sveitum.
Stefán Valgeirsson taldi, að hér þyrfti
skjótra aðgerða, og vildi fela þær sýslu-
nefndum og búnaðarsamböndum.
Böðvar Pálsson taldi seinvirkt að skjóta
þeim til sýslunefnda.
Framsögumaður skýrði sjónarmið
nefndarinnar.
Gunnar Guðbjartsson studdi tillöguna og
taldi eðlilegt, að búnaðarsamböndin beittu
sér í þessum efnum.
Magnús Sigurðsson sagði frá fyrri af-
greiðslu Búnaðarþings á þessi máli.
Síðan var tillagan samþykkt samhljóða.
Sigurður Sigurðsson fiutti einnig þessa
tillögu allsherjarnefndar:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 felur
stjórn sambandsins að láta kanna ítarlega verð-
breytingar, sem orðið hafa á söluverði bújarða í
hlutfalli við breytingar á söluverði fasteigna í þétt-
býli með það fyrir augum, að framreikningur fast-
eignamats geti verið annar á bújörðum en á öðr-
um fasteignum í landinu.
Jafnframt þarf að kynna bændum nauðsyn þess
að aðgreina í sölusamningum jarða verð íbúðar
frá verði á öðrum hlutum eignarinnar.
Samþykkt samhljóða.
GrímurB. Jónsson lagði fram þessatillögu
allsherjarnefndar, sem var breytt frá fyrri
gerð:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 telur,
að aukin framleiðsla grasköggla og annars inn-
lends fóðurs sé stórmál fyrir landbúnaðinn.
Leggur fundurinn áherslu á, að tillögur fóður-
iðnaðarnefndar, sem hún skilaði í febrúar 1977
um uppbyggingu graskögglaverksmiðju og
verðjöfnun á graskögglum, verði samþykktar, og
skorar á landbúnaðarráðherra að vinna að fram-
gangi þeirra svo fljótt sem kostur er á.
Samþykkt samhljóða.
14. Tillögur laganefndar.
Sigurður Þórólfsson flutti þessa tillögu lag-
anefndar um skattlagningu á bændur:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 telur,
að ýmis ákvæði laga nr. 40/1978 um tekju- og
eignaskatt geti leitt til skattlagningar á bændur
umfram aðra skattgreiðendur.
Fundurinn beinir því til stjórnar Stéttarsam-
590
FREYR