Freyr - 15.09.1979, Qupperneq 27
Fjárhagsnefndin að Ijúka störfum. Pað var ekki svo erfitt að gera tillögur um það hvernig tekjum Stéttarsam-
bandsins skyldi varið á næsta ári. Her sjást þeir Sigurður á Efralóni, Sigurjón í Traðarkoti, Júlíus í Norðurhjáleigu
og Sigurður á Lækjamóti.
bandsins, að hún láti kanna skattalögin að því, er
þetta snertir, og geri kröfur um réttmætar
leiðréttingar eftir því, sem hún telur ástæðu til.
Samþykkt samhljóða.
Breytingar á samþykktum Stéttarsam-
bands bænda.
Helgi Jónasson gerði grein fyrir tillögum
laganefndar um þetta efni, en þær væru að
mestu byggðar á tillögum milli-
fundarnefndar, en þær hafa fyrir nokkru
verið kynntaröllum stéttarsambandsfulltrú-
um.
Tillögur laganefndar voru svo:
3. gr. orðist svo:
í hverju búnaðarfélagi skal annað hvert ár kjósa
þrjá menn, er mynda skulu trúnaðarmannaráð
innan hverrar sýslu. Þeir nefnast kjormenn og
samkomur þeirra kjörmannafundir. Nú eru fleiri
búnaðarfélög en eitt í sama hreppi, og kjósa þau
þá þrjá menn sameiginlega.
í búnaðarfélögum, þar sem 3—8 menn hafa
kosningarrétt og kjörgengi samkv. 6. gr., skal þó
kjósa tvo kjörmenn, en þar, sem færri en 3 eru,
skulu þeir kjósa með nálægu búnaðarfélagi sam-
kvæmt ákvörðun viðkomandi búnaðarsambands.
Verkefni kjörmanna er:
a) Að kjósa fulltrúa á fundi Stéttarsambandsins
nema annað verði ákveðið, sbr. ákvæði b-liðar
5. gr.
b) Að vera trúnaðarmenn sambandsins gagnvart
félagsmönnum og félagsmanna gagnvart því.
Þeim ber að kynna félagsmönnum sínum þær
upplýsingar um verkefni sambandsins, sem
stjórn þess og aðalfundarfulltrúar.leggja fyrir
þá á fundum eða á annan hátt. Þeim ber og að
koma á framfæri við nefnda aðila þeim erind-
um, sem félög þeirra vilja bera fram, og að
vinna að sem nánustum tengslum milli
stjórnar Stéttarsambandsins og bænda
almennt, einnig að stuðla að vakandi stéttar-
vitund meðal bænda.
4. gr. orðist svo:
Stjórnir búnaðarsambandanna boða til kjör-
mannafunda, skulu þeir boðaðir formönnum
búnaðarfélaganna með minnst fjögurra daga
fyrirvara, og er slík boðun fullgild, hvort heldur er
FREYR
591