Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1979, Page 30

Freyr - 15.09.1979, Page 30
Hermann Guðmundsson flutti einnig aðra tillögu framleiðslunefndar: Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn í Stykkishólmi dagana 1,—3. september 1979, styður eindregið þá áskorun stjórnar Stéttarsam- bands bænda til landbúnaðarráðherra, að hann beiti sér fyrir því, að bændur sitji fyrir um kaup á graskögglum og korriið verði ájöfnun áflutnings- kostnað þeirra. Verði skipting á magni grasköggla miðuð við þarfir einstakra héraða. Búnaðarfélagi íslands verði falið að hafa um- sjón með þeirri skiptingu. Einar Þorsteinsson minnti á stórfelldar sveiflur ísölumöguleikum á graskögglum og kvaðst ekki styðja tillöguna óbreytta. Tillagan var samþykkt með öllum greidd- um atkvæðum. Enn flutti Hérmann Guðmundsson tillögu frá framleiðslunefnd um eflingu sauðfjár- ræktar. Sigfús Þorsteinsson vildi breytatillögunni, og Gunnar Guðbjartsson lagði til, að mælt yrði með, að RALA hefði með höndum um- ræddar tilraunir. Afgreiðslu tillögunnar var frestað og nefndin tók hana til athugunar. Össur Guðbjartsson mælti fyrir tillögu framleiðslunefndar um hugsanlega fækkun búpenings í haust. Þá var kl. 224S og gefið hálftíma kaffihlé. Að því loknu ræddi Gunnar Guðbjartsson um tillöguna. Hann sagði, að þar væri fjallað um starf, sem ekki yrði leyst á skrifstofum, heldur þurfi til að koma samstarf ráðunauta úti á meðal bænda. Jón Guðmundsson, Óslandi, lagði fram orðalagsbreytingar, og SigurðurSigurðsson tók undir orð formanns. Framleiðslunefnd tók tillöguna í endur- skoðun og afgreiðslu hennar var frestað. Tryggvi Stefánsson flutti þessa tillögu framleiðslunefndar: Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979, hald- inn í Stykkishólmi dagana 1.—3. september, ár- éttarog ítrekarfyrri samþykkt um, að hraðað verði úttekt á þjóðhagslegu gildi svonefndrar um- framframleiðslu búvöru. Samþykkt samhljóða. Hermann lagði þá fram endurskoðaða til- lögu nefndarinnar um eflingu sauðfjárrækt- ar. Hún var á þessa leið: Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 ályktar vegna erindis Rannsóknastofnunar landbún- aðarins um eflingu sauðfjárræktar m. a. með hlið- sjón af auknum útflutningsmöguleikum. Fundurinn telur hugmyndir, sem þar koma fram, athyglisverðar og mælir með, að Rann- sóknastofnun landbúnaðarins framkvæmi þessa tilraun, enda fáist til þess nauðsynlegt fjármagn. Samþykkt samhljóða. Þórður Pálsson flutti tillögu fram- leiðslunefndar um framleiðslustjórnun: A. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979, haldinn í Stykkishólmi dagana 1.—3. spetember, ákveður að beita framleiðslukvóta á mjólkur- framleiðslu ársins 1980 og kjötframleiðslu, er kemur í sláturhús á sama ári, eftir því, sem nauð- syn krefur. Því óskar fundurinn þess, að Framleiðsluráð landbúnaðarins láti nú þegar hefja gagnasöfnun um framleiðslumagn og bústofn á lögbýlum og hjá þeim búvöruframleiðendum öðrum, er hafa meiri hluta tekna sinna af búvöruframleiðslu, sbr. 2. málsgr. b-liðar laga frá 6. apríl sl. og 1. málsgr. 5. gr. reglugerðar frá 22/8 1979. Fáist ekki nauð- synleg gögn frá skattstjórum, verði leitað til bænda sjálfra um nauðsynlegar upplýsingar. Við beitingu kvótans verði framleiðendum ívilnað að 300 ærgildaafurðamagni þannig, að þeir fái fullt verð fyrir þáframleiðslu samkvæmt 5. málsgr. a-liðar áðurnefndrar reglugerðar. Þó er heimilt, fari verðskerðing annararframleiðslu yfir 10% grundvallarverðs, að dreifa viðbótarskerð- ingu á, alla framleiðsluna. Fundurinn gerir þá kröfu til rikisvaldsins, að þessar aðgerðir bænda til framleiðslustjórnunar 594 FREYR

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.