Freyr - 15.09.1979, Qupperneq 30
Hermann Guðmundsson flutti einnig aðra
tillögu framleiðslunefndar:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn í
Stykkishólmi dagana 1,—3. september 1979,
styður eindregið þá áskorun stjórnar Stéttarsam-
bands bænda til landbúnaðarráðherra, að hann
beiti sér fyrir því, að bændur sitji fyrir um kaup á
graskögglum og korriið verði ájöfnun áflutnings-
kostnað þeirra. Verði skipting á magni grasköggla
miðuð við þarfir einstakra héraða.
Búnaðarfélagi íslands verði falið að hafa um-
sjón með þeirri skiptingu.
Einar Þorsteinsson minnti á stórfelldar
sveiflur ísölumöguleikum á graskögglum og
kvaðst ekki styðja tillöguna óbreytta.
Tillagan var samþykkt með öllum greidd-
um atkvæðum.
Enn flutti Hérmann Guðmundsson tillögu
frá framleiðslunefnd um eflingu sauðfjár-
ræktar.
Sigfús Þorsteinsson vildi breytatillögunni,
og Gunnar Guðbjartsson lagði til, að mælt
yrði með, að RALA hefði með höndum um-
ræddar tilraunir.
Afgreiðslu tillögunnar var frestað og
nefndin tók hana til athugunar.
Össur Guðbjartsson mælti fyrir tillögu
framleiðslunefndar um hugsanlega fækkun
búpenings í haust.
Þá var kl. 224S og gefið hálftíma kaffihlé.
Að því loknu ræddi Gunnar Guðbjartsson
um tillöguna. Hann sagði, að þar væri fjallað
um starf, sem ekki yrði leyst á skrifstofum,
heldur þurfi til að koma samstarf ráðunauta
úti á meðal bænda.
Jón Guðmundsson, Óslandi, lagði fram
orðalagsbreytingar, og SigurðurSigurðsson
tók undir orð formanns.
Framleiðslunefnd tók tillöguna í endur-
skoðun og afgreiðslu hennar var frestað.
Tryggvi Stefánsson flutti þessa tillögu
framleiðslunefndar:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979, hald-
inn í Stykkishólmi dagana 1.—3. september, ár-
éttarog ítrekarfyrri samþykkt um, að hraðað verði
úttekt á þjóðhagslegu gildi svonefndrar um-
framframleiðslu búvöru.
Samþykkt samhljóða.
Hermann lagði þá fram endurskoðaða til-
lögu nefndarinnar um eflingu sauðfjárrækt-
ar. Hún var á þessa leið:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 ályktar
vegna erindis Rannsóknastofnunar landbún-
aðarins um eflingu sauðfjárræktar m. a. með hlið-
sjón af auknum útflutningsmöguleikum.
Fundurinn telur hugmyndir, sem þar koma
fram, athyglisverðar og mælir með, að Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins framkvæmi þessa
tilraun, enda fáist til þess nauðsynlegt fjármagn.
Samþykkt samhljóða.
Þórður Pálsson flutti tillögu fram-
leiðslunefndar um framleiðslustjórnun:
A. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979,
haldinn í Stykkishólmi dagana 1.—3. spetember,
ákveður að beita framleiðslukvóta á mjólkur-
framleiðslu ársins 1980 og kjötframleiðslu, er
kemur í sláturhús á sama ári, eftir því, sem nauð-
syn krefur.
Því óskar fundurinn þess, að Framleiðsluráð
landbúnaðarins láti nú þegar hefja gagnasöfnun
um framleiðslumagn og bústofn á lögbýlum og
hjá þeim búvöruframleiðendum öðrum, er hafa
meiri hluta tekna sinna af búvöruframleiðslu, sbr.
2. málsgr. b-liðar laga frá 6. apríl sl. og 1. málsgr.
5. gr. reglugerðar frá 22/8 1979. Fáist ekki nauð-
synleg gögn frá skattstjórum, verði leitað til
bænda sjálfra um nauðsynlegar upplýsingar.
Við beitingu kvótans verði framleiðendum
ívilnað að 300 ærgildaafurðamagni þannig, að
þeir fái fullt verð fyrir þáframleiðslu samkvæmt 5.
málsgr. a-liðar áðurnefndrar reglugerðar. Þó er
heimilt, fari verðskerðing annararframleiðslu yfir
10% grundvallarverðs, að dreifa viðbótarskerð-
ingu á, alla framleiðsluna.
Fundurinn gerir þá kröfu til rikisvaldsins, að
þessar aðgerðir bænda til framleiðslustjórnunar
594
FREYR