Freyr

Årgang

Freyr - 15.09.1979, Side 31

Freyr - 15.09.1979, Side 31
verði metnar og ríkisvaldið tryggi fullt verð fyrir framleiðslu ársins 1979. Verði hins vegar Framleiðsluráð að leggja á hana verðjöfnunargjald, er því heimilt að beita ákvæðum c-liðar áðurnefndrar reglugerðar um mishátt framleiðslugjald, þó þannig, að komi til mismunandi mikillar bústofnsskerðingar vegna fóðurskorts, verði greitt fullt verð fyrir kjöt, sem til fellurvið skerðingu bús umfram 5%, samanber4. málsgr. d-liðar 2. gr. reglugerðar. Athugað verði við framkvæmd ofangreindra atriða, hvaða leiðir séu hagkvæmastar til þess að tryggjanægamjólktil nevslu hvarvetnaálandinu. b. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979, haldinn í Stykkishólmi dagana 1.—3. september, samþykkir í samræmi við b-lið laga frá 6. aþríl 1979og 3. gr. reglugerðarvið sömu lög að heimila Framleiðsluráði að leggja gjald á innflutt kjarn- fóður á árinu 1980, er nauðsynlegra gagna hefur verið aflað. Gjald þetta má vera allt að 60% af cif-verði. Þeir búvöruframleiðendur, sem eiga rétt til þess að fá kjarnfóður án gjaldtöku samkvæmt b-lið áðurnefndra laga, fá það endurgreitt á þriggja til sex mánaða fresti samkvæmt 3. gr. reglugerðar frá 22. ágúst 1979. Við endurgreiðslu verði tekið fullt tillit til þess erfiða heyskaparástands, sem hefur verið. Frá áramótum til næsta aðalfundar Stéttarsam- bandsins skal lágmarksmagn af gjaldfrjálsu kjarnfóðri miðað við ársnotkun vera sem hér segir: Fyrir 1 lítra mjólkur ................ 250 g Fyrir 1kg kindakjöt .................. 700 g Fyrir 1kg nautakjöt .................. 850 g Fyrir 1kg kjúklinga .................. 3500 g Fyrir 1kg svínakjöt .................. 6 kg Fyrir 1 stk. varphænu ................... 42 kg Fyrir 1 stk. kjöthænu ................... 55 kg Fyrir 1 stk. 6 mán. ungi ................ 10 kg Fyrir 1 stk. 2 mán. lífungi .............. 3 kg og hliðstætt á eldri lífunga. Fyrir 1 stk. söluhross ............... 100 kg Framsögumaður gerði ítarlega grein fyrir tillögunni með samanburði við reglugerðina. Stefán Valgeirsson mælti með tillögunni og gerði þó smá athugasemdir. Engilbert Ingvarsson andmælti seinni lið. Sveinn Björnsson gerði athugasemd við heimilaða verðskerðingu á alla fram- leiðsluna, ef verðskerðing færi yfir 10%. Gunnar Guðbjartsson svaraði spurning- um, er fram höfðu komið. Einar Þorsteinsson kvað þetta mál það, sem flestir vildu frétta um eftir fundinn, og nauðsyn, að fundarmenn gætu gefið sem öruggastar fréttir af. Framsögumaður tók undir orð Einars og skýrði tillöguna frá sjónarhóli nefndarinnar. Gunnar Guðbjartsson lagði áherslu á, að mörkin fyrir mishátt verðjöfnunargjald verði það lág, að unnt verði að-standa við þau. Enn tóku til máls: Tryggvi Stefánsson, Árni Jónasson, Einar Þorsteinsson, GunnarGuð- bjartsson og Þórður Pálsson. Engar breyt- ingartillögur voru lagðar fram. A-liður tillögunnar var samþ. með 39 samhlj. atkv. B-liður tillögunnar var samþ. með 28:2 atkv. Össur Guðbjartsson lagði þá fram breytta tillögu frá framleiðslunefnd um hugsanlega fækkun búpenings: Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 sam- þykkirvegna hugsanlegrarfækkunar búþeningsá hausti komanda sökum fóðurskorts, að stjórn Stéttarsambandsins beiti sérfyrir því í samráði við stjórn Búnaðarfélags íslands, að það verði gert sem skipulegast með tilliti tiJ fram- leiðsluhagkvæmni og markaðsskilyrða, enda verði fullt tillit tekið til byggðasjónarmiða. Samþykkt samhljóða. Júlíus Jónsson flutti endursamda tillögu fjárhagsnefndar um markaðsmál: AðalfundurStéttarsambands bænda 1979 heimil- ar stjórn sambandsins að verja verulegri fjárhæð til kynningar á framleiðsluvörum landbúnaðarins og markaðsleitar fyrir þær. Einnig heimilar fundurinn stjórninni að verja alltað lOmilljónum krónaíverðlauntil þessaðila, er útvegar samningsbundinn markað erlendis fyrir kindakjöt eða ost, a. m. k. 300 tonn á ári, er FREYR 595

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.