Freyr - 15.09.1979, Page 31
verði metnar og ríkisvaldið tryggi fullt verð fyrir
framleiðslu ársins 1979.
Verði hins vegar Framleiðsluráð að leggja á
hana verðjöfnunargjald, er því heimilt að beita
ákvæðum c-liðar áðurnefndrar reglugerðar um
mishátt framleiðslugjald, þó þannig, að komi til
mismunandi mikillar bústofnsskerðingar vegna
fóðurskorts, verði greitt fullt verð fyrir kjöt, sem til
fellurvið skerðingu bús umfram 5%, samanber4.
málsgr. d-liðar 2. gr. reglugerðar.
Athugað verði við framkvæmd ofangreindra
atriða, hvaða leiðir séu hagkvæmastar til þess að
tryggjanægamjólktil nevslu hvarvetnaálandinu.
b. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979,
haldinn í Stykkishólmi dagana 1.—3. september,
samþykkir í samræmi við b-lið laga frá 6. aþríl
1979og 3. gr. reglugerðarvið sömu lög að heimila
Framleiðsluráði að leggja gjald á innflutt kjarn-
fóður á árinu 1980, er nauðsynlegra gagna hefur
verið aflað. Gjald þetta má vera allt að 60% af
cif-verði.
Þeir búvöruframleiðendur, sem eiga rétt til þess
að fá kjarnfóður án gjaldtöku samkvæmt b-lið
áðurnefndra laga, fá það endurgreitt á þriggja til
sex mánaða fresti samkvæmt 3. gr. reglugerðar
frá 22. ágúst 1979.
Við endurgreiðslu verði tekið fullt tillit til þess
erfiða heyskaparástands, sem hefur verið.
Frá áramótum til næsta aðalfundar Stéttarsam-
bandsins skal lágmarksmagn af gjaldfrjálsu
kjarnfóðri miðað við ársnotkun vera sem hér
segir:
Fyrir 1 lítra mjólkur ................ 250 g
Fyrir 1kg kindakjöt .................. 700 g
Fyrir 1kg nautakjöt .................. 850 g
Fyrir 1kg kjúklinga .................. 3500 g
Fyrir 1kg svínakjöt .................. 6 kg
Fyrir 1 stk. varphænu ................... 42 kg
Fyrir 1 stk. kjöthænu ................... 55 kg
Fyrir 1 stk. 6 mán. ungi ................ 10 kg
Fyrir 1 stk. 2 mán. lífungi .............. 3 kg
og hliðstætt á eldri lífunga.
Fyrir 1 stk. söluhross ............... 100 kg
Framsögumaður gerði ítarlega grein fyrir
tillögunni með samanburði við reglugerðina.
Stefán Valgeirsson mælti með tillögunni
og gerði þó smá athugasemdir.
Engilbert Ingvarsson andmælti seinni lið.
Sveinn Björnsson gerði athugasemd við
heimilaða verðskerðingu á alla fram-
leiðsluna, ef verðskerðing færi yfir 10%.
Gunnar Guðbjartsson svaraði spurning-
um, er fram höfðu komið.
Einar Þorsteinsson kvað þetta mál það,
sem flestir vildu frétta um eftir fundinn, og
nauðsyn, að fundarmenn gætu gefið sem
öruggastar fréttir af.
Framsögumaður tók undir orð Einars og
skýrði tillöguna frá sjónarhóli nefndarinnar.
Gunnar Guðbjartsson lagði áherslu á, að
mörkin fyrir mishátt verðjöfnunargjald verði
það lág, að unnt verði að-standa við þau.
Enn tóku til máls: Tryggvi Stefánsson, Árni
Jónasson, Einar Þorsteinsson, GunnarGuð-
bjartsson og Þórður Pálsson. Engar breyt-
ingartillögur voru lagðar fram.
A-liður tillögunnar var samþ. með 39
samhlj. atkv.
B-liður tillögunnar var samþ. með 28:2
atkv.
Össur Guðbjartsson lagði þá fram breytta
tillögu frá framleiðslunefnd um hugsanlega
fækkun búpenings:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1979 sam-
þykkirvegna hugsanlegrarfækkunar búþeningsá
hausti komanda sökum fóðurskorts, að stjórn
Stéttarsambandsins beiti sérfyrir því í samráði við
stjórn Búnaðarfélags íslands, að það verði gert
sem skipulegast með tilliti tiJ fram-
leiðsluhagkvæmni og markaðsskilyrða, enda
verði fullt tillit tekið til byggðasjónarmiða.
Samþykkt samhljóða.
Júlíus Jónsson flutti endursamda tillögu
fjárhagsnefndar um markaðsmál:
AðalfundurStéttarsambands bænda 1979 heimil-
ar stjórn sambandsins að verja verulegri fjárhæð
til kynningar á framleiðsluvörum landbúnaðarins
og markaðsleitar fyrir þær.
Einnig heimilar fundurinn stjórninni að verja
alltað lOmilljónum krónaíverðlauntil þessaðila,
er útvegar samningsbundinn markað erlendis
fyrir kindakjöt eða ost, a. m. k. 300 tonn á ári, er
FREYR
595