Freyr - 15.09.1979, Blaðsíða 37
þeir uppfylla að öðru leyti skilyrði þau,
sem gerð eru til þeirra, sem rétt eiga á
þessari fyrirgreiðslu.
10. Tillagan um fæðingarorlof kvenna var
send tryggingamálaráðherra með ósk
um, að aðgerðum yrði hraðað. Mál þetta
var rætt við ýmsa alþingismenn og
einnig landbúnaðarráðherra í sambandi
við svokallaðan ,,félagsmálapakka“ á
síðasta hausti. Þá var gefið fyrirheit um
úrlausn málsins, sem enn er þó ekki
komið fram.
11. Tillagan um blöndun erlendrar ullar í ís-
lenska ull og mótmæli gegn útflutningi á
lopa og ullarbandi var send iðnaðar-
ráðuneytinu. Þá var rætt við Útflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins um gerð merkis
á hreinar ullarvörur.
Engin niðurstaða er enn komin í því
máli.
12. Tillagan um markaðsmál varsend mark-
aðsnefnd og landbúnaðarráðherra, og
hefur mikið verið fjallað um þau mál á
þessu ári, m. a. af markaðsnefnd.
13. Tillaga um breytt samningsform um
kjaramál bænda var tekin upp í frv. til
laga um breytingu á Fram-
leiðsluráðslögunum, sem fulltrúar í svo-
kallaðri „laganefnd", þeirri, er landbún-
aðarráðherra skipaði 26. maí 1976,
höfðu gert. Frv. til breytinga á Fram-
leiðsluráðslögunum var skilað til land-
búnaðarráðherra um mánaðamótin
febrúar-mars í vetur.
Nefndin klofnaði og skiluðu fulltrúar
A. S. í. og Vinnuveitendasambandsins
séráliti og tillögum, sem gengu í aðra átt
um sex meginatriði laganna en fram-
leiðendafulltrúarnir vildu.
Þessi atriði voru:
A. Samningsformið.
B. Kaupviðmiðunin.
C. Gildissvið laganna.
D. Um sjóð til styrktar búsetu.
E. Um verðjöfnunarákvæði.
F. Um útflutningsbótarétt bænda.
í öllum þessum efnum vildu fulltrúar
vinnumarkaðarins þrengja rétt bænda
og fella sumt út úr lögunum, eins og um
verðjöfnun, útflutningsbæturnar í
áföngum, styrktarsjóðinn að öllu og láta
lögin ekki ná yfir aukabúgreinarnar. Þeir
lögðu til, að samningsformið yrði
endurnýjun á sexmannanefndarkerfinu
með oddamanni frá ríkinu. A. S. í. og B.
S. R. B. tilnefndu neytendafulltrúana.
Um málið varð ekki samstaða í ríkis-
stjórninni.
Tillögur þessar voru kynntar á auka-
fundi Stéttarsambands baénda í apríl sl.,
og lýsti fundurinn yfir stuðningi við frv.,
er landbúnaðarráðherra hafði látið gera,
í meginatriðum byggt á tillögum fram-
leiðendafulltrúanna og formanns laga-
nefndarinnar. Þó voru gerðar minnihátt-
ar breytingar við nokkrar greinar.
Tillögur aukafundarins voru sendar
landbúnaðarráðherra.
Málið fóraldrei fyrir Alþingi fullmótað.
En ákvæðið um samningsformið varflutt
á Alþingi seint á þingtímanum af land-
búnaðarráðherra, en hlaut ekki af-
greiðslu.
14. Tillagan um aukinn stöðugleika í niður-
greiðslum ríkisins var send fjármálaráð-
herra, viðskiptaráðherra og landbún-
aðarráðherra.
Stjórn Stéttarsambandsins hefur
unnið að því, að niðurgreiðslum yrði ekki
breytt í stórum stökkum, og hefur reynt
að fá viðurkenningu þess sjónarmiðs, að
þær verði fastur hundraðshluti af verði
búvara.
Það er nú svo komið, að það kostar
ríkissjóð meira í launagreiðslum að
minnka niðurgreiðsluren að halda þeim
óbreyttum. Þetta mál hefur ekki verið
skoðað nógu alhliða af stjórnvöldum, og
því er ákvörðun og framkvæmd niður-
greiðslna svo ruglingsleg og henti-
stefnukennd sem raun er á.
Þetta er eitt af þeim málum, sem verð-
ur að leysa og er nátengt úrlausn svo-
FREYR
601