Freyr - 15.09.1979, Síða 40
Pað varðar bændastéttina miklu hvernig Stéttarsambandinu tekst að halda á málum á milli funda. Því er jafnan
fylgst af mikilli athygli með skýrslu formanns um störf stjórnarinnar.
við tekjuöflun. Tekjur sauðfjárbænda koma
t. d. nærallaráeinum haustmánuði og tekjur
bændaeru mjög sveiflukenndarfráári til árs.
Könnun á eignarhaldi afrétta.
Stjórn Stéttarsambandsins réð á síðasta
hausti í samstarfi við stjórn Búnaðarfélags
íslands sagnfræðinema, Gunnar F. Guð-
mundsson, til að gera könnun á eignarhaldi
afrétta, og hvernig eignarrétturinn hefur
myndast. Vinnur Gunnar þetta verk sem
námsefni undir umsjón og leiðsögn Björns
Þorsteinssonar, sagnfræðings. Þess er
vænst, að þessi könnun verði gagnleg og
upplýsi margt, sem nú er óljóst í þessu efni.
Kostnaði við verkið skipta Stéttarsambandið
og Búnaðarfélagið á milli sín til helminga.
Efnahagsmál.
Stjórnin kaus í vetur nefnd til viðræðu við
ríkisstjórnina að hennar ósk um efnahags-
mál. Og þegar efnahagsmálafrumvarp for-
sætisráðherra var til meðferðar í vetur, fjall-
aði stjórnin ítarlega um það og gerði rökstutt
álit um það, sem sent var forsætisráðherra
og síðar Alþingi.
Álit þetta var birt í Frey í vetur og rek ég því
ekki efni þess. Nokkur atriði þess voru tekin
til greina, en önnur ekki.
Útflutningur á búvöru.
Miklar umræður urðu á stjórnarfundum um
útflutning búvöru.
Fyrir tilstuðlan stjórnarinnar fór Ingi
Tryggvason til írlandsáfyrra ári að kynnasér
kjötsölu írlendingatil Frakklands. íframhaldi
af því var gerð tilraun með að selja ófryst kjöt
til Frakklands í síðustu sláturtíð.
Sú tilraun tókst í alla staði vel, nema að
tollgreiðslur og söluskattur át upp megin-
hluta söluverðsins. Það, sem kom til skila
heim til söluaðila, var kr. 210,87 á kg.
Svipaðar tilraunir voru gerðar með sölu á
ófrosnu kjöti til Þýskalands, Danmerkur og
604
FREYR