Freyr - 15.09.1979, Page 41
Bandaríkjanna. Skilaverð í hverju landi fyrir
sig var sem hér segir:
Danmörk ....... kr. 463,88 á kg 32,8 %
Þýskaland ..... kr. 308,48 á kg 21,8 %
Bandaríkin .... kr. 397,98 á kg 28,1 %
Meira þarf að gera í þessu efni og prófa að
selja fleiri vörutegundir í ýmsum pakkning-
um eða umbúðum. Þetta er fyrst og fremst í
verkahring markaðsnefndar.
Þá hefur mikið verið rætt um ostakvóta í
Bandaríkjunum. Sá kvóti hefur verið ákvarð-
aður á nýjum grunni frá næstu áramótum.
Undanfarin ár höfum við haft kvóta fyrir 320
tonn af venjulegum „Gouda“ osti, en frjáls
innflutningur hefur verið á óðalsosti. Og
einnig hefur verið frjálst að kaupa kvóta ann-
arra landa, sem ekki hefur verið notaður af
þeim.
Á síðasta ári fluttum við til Bandaríkjanna
tæp 1600 tonn af osti. í ár er ráðgert að selja
þar a. m. k. 2100 tonn.
En á næsta ári átti kvóti okkar, skv. nýrri
ákvörðun, að vera 320 tonn fyrir allan ost, en
hefur fengist hækkaður í 620 tonn og bannað
ernú að verslarrreð kvótaámilli landa. Þessu
getum við illa unað og höfum gert kröfu til
stjórnvalda að beita sér fyrir úrbótum í þessu
efni.
Athugaðir hafa verið möguleikar á sölu
mjólkurvara til þróunarlandanna, sérstak-
lega mjólkurdufts, en verð á því hér er svo
hátt, að það er ekki samkeppnisfært við siíka
vöru frá Efnahagsbandalagslöndunum, sem
styrkja útflutning búvara úr landbúnaðar-
sjóðnum.
Aðstoð íslenska ríkisins við þróunarlöndin
er veitt í formi tækniaðstoðar eða fræðslu.
Því er ekki laust fé þar til að kaupa búvörur
fyrir og til að verja til að leysa úr hungurs-
neyð þessara þjóða.
Rætt hefur verið um að verja á vegum
Stéttarsambandsins nokkurri fjárfúlgu til að
veita verðlaun fyrir útvegun markaða fyrir
kjöt, enda gæfu þeir verulega hærra verð en
við höfum átt kost á að undanförnu.
Stjórninni þótti eðlilegt, að aðalfundurinn
tæki afstöðu til þeirrar hugmyndar.
•
Þá hefur stjórnin fjailað um áætlanir
Byggðastofnuna um þróun Dalabyggðar og
byggðar í Skeggjastaðahreppi í Norður-
Múlasýslu. Stjórnin mælti með þessum
áætlunum, en gerði þó athugasemdir við
einstök framkvæmdaatriði.
•
Endurskoðun hefur farið fram á reglugerð
um framleiðslu og sölu mjólkur og mjólkur-
vara.
Ingi Tryggvason var fulltrúi Stéttársam-
bandsins í nefnd, sem skipuð var til að vinna
það verk. Pétur Sigurðsson var fulltrúi
Framleiðsluráðs í nefndinni.
Nefndin er nýlega búin að skila áliti. í til-
lögum hennar felast nýmæli og allmiklar
breytingar á eldri ákvæðum um þetta efni og
er of langt mál að rekja efni þeirra.
Lífeyrisréttindi og Lífeyrissjóður bænda.
Úthlutað var fé úr Styrktarsjóði Stéttarsam-
bandsins svo sem fjárhagsáætlun heimilaði,
en Árni Jónasson gerir grein fyrir úthlutun-
inni.
í þessu sambandi vil ég geta þess, að
stjórnin fjallaði um frumvarp, er sérstök,
stjórnskipuð nefnd samdi á síðasta ari um
eftirlaun til aldraðra, sem engin lífeyris-
réttindi eiga í hinum almennu lífeyrissjóðum.
Stjórnin mælti með samþykkt frumvarpsins.
Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi en hlaut
ekki afgreiðslu þar. Samþykkt þess mundi
létta af Styrktarsjóðnum verulegum hluta
styrkjanna, er hann veitir, og samþykkt þess
mundi einnig bæta afkomu Lífeyrissjóðs
bænda.
Á árinu 1978 greiddi Lífeyrissjóður bænda
lífeyri til 1511 aðila, samtals 578,4 milljónir
króna.
Lánveitingarsjóðsins á árinu voru sem hér
segir:
FREYR
605
6