Freyr

Årgang

Freyr - 15.09.1979, Side 42

Freyr - 15.09.1979, Side 42
Til Stofnlánadeildar skv. lögum sjóðsins, verðtryggt að 1/2 .kr. 164 milljónir Til Stofnlánadeildar vegna bústofnslána, vísitölutr. að 1/4 hluta .kr. 160 milljónir Til íbúðabygginga sjóðfélaga, óverðtryggt .................kr. 50 milljónir Til jarðakaupa sjóðfélaga, óverðtryggt ....................kr. 50 milljónir Til Framkvæmdasjóðs íslands, verðtryggt að fullu .....kr. 150 milljónir Alls kr. 574 milljónir Áætluð útlán sjóðsins á þessu ári eru: Til bústofnskaupa ..................kr. 160 millj. verðtr. að fullu. Til íbúðalána ......................kr. 100 millj. óverðtryggt. Til Stofnlánad. skv. skyldu ........kr. 284 millj. verðtr. að hálfu. Til Framkvæmdasj., Byggingarsj......kr. 300 millj. verðtr. að fullu. Lán til bústofnskaupa miðast við skattmat og að öðru leyti óbreyttar reglur. íbúðalánin hækka í 2 milljónir króna að hámarki. — Útgáfa Landverndar Tvívegis á sl. ári gaf Landvernd út bæklinga, sem hafa verið sendir í skóla til upplýsinga og sem námsefni. í þessum bæklingum hafa komið fram full- yrðingar, sem annað tveggja hafa verið ve- fengjanlegar eða beinlínis rangar varðandi beitarþol og gróðurfar. Reynt var að fá þetta leiðrétt eða að þess- um upplýsingum yrði ekki dreift sem kennsluefni. Ekki fékkst það samþykkt. Stjórnin hefur því rætt þann möguleika, að sambandið segi sig úr Landvernd, verði ekki breyting á útgáfustarfsemi samtakanna. Reglugerðir og þingmál. Þá var fylgst með reglugerðarsetningu um nýbyggingargjald og reynt að hafa áhrif á, að það legðist ekki á landbúnaðinn og lamaði framkvæmdagetu hans á óeðlilegan hátt. • Fjallað var um nokkur þingmál svo sem breytingu þá, sem gerð var á jarðræktarlög- um á síðasta þingi, frv. til laga um forfalla- þjónustu, og tilnefndir voru menn í nefnd til að gera uppkast að reglugerð um fram- kvæmd þess máls. í þeirri nefnd eru af hálfu sambandsins þeir Jón Kr. Magnússon og Böðvar Pálsson. Fjallað var um þingsályktunartillögu um fæðingarorlof, svo og aðra þingsályktunar- tillögu um gjald á veiðileyfi útlendinga í ís- lenskum laxveiðiám og þeim skatti mótmælt. Upp úr því varskiþuð nefnd til að kanna þetta mál og mun Árni Jónasson gera grein fyrir starfi þeirrar nefndar. Þá var fjallað um þingsályktunartillögu þeirra Jóns Helgasonar og Vilhjálms Hjálm- arssonar um þjóðhagslegt gildi landbún- aðarins. Lögð hefur verið áhersla á, að at- hugun sú, er í tillögunni felst, verði framkvæmd. Stjórnin hefur rætt um, hvort möguleiki væri á, að sambandið legði því máli lið í verki, vegna mikilvægi þess fyrir dreifbýlið, en telur þó árangursríkara, að verkið verði unnið af opinberri stofnun. Breytingar á starfsliði o. fl. Á sl. hausti lét Hákon Sigurgrímsson af starfi sem fulltrúi á skrifstofu sambandsins um óá- kveðinn tíma. Var þá Steinþór Gestsson ráðinn í hans stað til bráðabirgða. Stjórnin hefur tilnefnt menn í stjórnir og nefndir eftir ósk landbúnaðarráðherra eða ríkisstjórnar. 606 FREYR

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.