Freyr - 15.09.1979, Síða 42
Til Stofnlánadeildar skv. lögum sjóðsins, verðtryggt að 1/2 .kr. 164 milljónir
Til Stofnlánadeildar vegna bústofnslána, vísitölutr. að 1/4 hluta .kr. 160 milljónir
Til íbúðabygginga sjóðfélaga, óverðtryggt .................kr. 50 milljónir
Til jarðakaupa sjóðfélaga, óverðtryggt ....................kr. 50 milljónir
Til Framkvæmdasjóðs íslands, verðtryggt að fullu .....kr. 150 milljónir
Alls kr. 574 milljónir
Áætluð útlán sjóðsins á þessu ári eru:
Til bústofnskaupa ..................kr. 160 millj. verðtr. að fullu.
Til íbúðalána ......................kr. 100 millj. óverðtryggt.
Til Stofnlánad. skv. skyldu ........kr. 284 millj. verðtr. að hálfu.
Til Framkvæmdasj., Byggingarsj......kr. 300 millj. verðtr. að fullu.
Lán til bústofnskaupa miðast við skattmat og að öðru leyti óbreyttar reglur.
íbúðalánin hækka í 2 milljónir króna að hámarki. —
Útgáfa Landverndar
Tvívegis á sl. ári gaf Landvernd út bæklinga,
sem hafa verið sendir í skóla til upplýsinga
og sem námsefni.
í þessum bæklingum hafa komið fram full-
yrðingar, sem annað tveggja hafa verið ve-
fengjanlegar eða beinlínis rangar varðandi
beitarþol og gróðurfar.
Reynt var að fá þetta leiðrétt eða að þess-
um upplýsingum yrði ekki dreift sem
kennsluefni. Ekki fékkst það samþykkt.
Stjórnin hefur því rætt þann möguleika, að
sambandið segi sig úr Landvernd, verði ekki
breyting á útgáfustarfsemi samtakanna.
Reglugerðir og þingmál.
Þá var fylgst með reglugerðarsetningu um
nýbyggingargjald og reynt að hafa áhrif á, að
það legðist ekki á landbúnaðinn og lamaði
framkvæmdagetu hans á óeðlilegan hátt.
•
Fjallað var um nokkur þingmál svo sem
breytingu þá, sem gerð var á jarðræktarlög-
um á síðasta þingi, frv. til laga um forfalla-
þjónustu, og tilnefndir voru menn í nefnd til
að gera uppkast að reglugerð um fram-
kvæmd þess máls. í þeirri nefnd eru af hálfu
sambandsins þeir Jón Kr. Magnússon og
Böðvar Pálsson.
Fjallað var um þingsályktunartillögu um
fæðingarorlof, svo og aðra þingsályktunar-
tillögu um gjald á veiðileyfi útlendinga í ís-
lenskum laxveiðiám og þeim skatti mótmælt.
Upp úr því varskiþuð nefnd til að kanna þetta
mál og mun Árni Jónasson gera grein fyrir
starfi þeirrar nefndar.
Þá var fjallað um þingsályktunartillögu
þeirra Jóns Helgasonar og Vilhjálms Hjálm-
arssonar um þjóðhagslegt gildi landbún-
aðarins. Lögð hefur verið áhersla á, að at-
hugun sú, er í tillögunni felst, verði
framkvæmd. Stjórnin hefur rætt um, hvort
möguleiki væri á, að sambandið legði því
máli lið í verki, vegna mikilvægi þess fyrir
dreifbýlið, en telur þó árangursríkara, að
verkið verði unnið af opinberri stofnun.
Breytingar á starfsliði o. fl.
Á sl. hausti lét Hákon Sigurgrímsson af starfi
sem fulltrúi á skrifstofu sambandsins um óá-
kveðinn tíma. Var þá Steinþór Gestsson
ráðinn í hans stað til bráðabirgða.
Stjórnin hefur tilnefnt menn í stjórnir og
nefndir eftir ósk landbúnaðarráðherra eða
ríkisstjórnar.
606
FREYR