Freyr - 15.09.1979, Blaðsíða 54
Hr. forsætisráðherra,
Ólafur Jóhannesson,
Forsætisráðuneytinu,
Reykjavík.
Fskj. IV Á fundi ríkisstjórnarinnar 24. júlí var sú niðurstaða
29 júní Framkvæmdastofnunar rfkisins staðfest, að útilokað sé
fyrir Framkvæmdasjóð að breyta lánskjörum sínum á
þessu ári.
Á fundi stjórnar Stofnlánadeildar landbúnaðarins 28.
júní 1979 komu til umræðu útlánakjör fjárfestingalán-
asjóða annarsvegar og nýlega auglýst vaxtakjör á full-
verðtryggðum lánum í bankakerfinu hinsvegar. Hér er
um að ræða útlánakjör sem samþykkt voru af stjórn
Stofnlánadeildar 11. maí, en þar er gert ráð fyrir 100%
verðtryggingu allra lána með 3% vöxtum á almennum
lánum til bænda, 5% til félagslegra framkvæmda og
5,5% til vinnslustöðva landbúnaðarins. Lánakjör þessi
voru ákveðin eftirað tillögur lágu fyrirfrá Seðlabankaer
fylgdu bréfi frá ráðuneyti yðardags. 3. apríl 1979, en þær
tillögur gerðu að vísu ráð fyrir 5—5,5% vöxtum á alla
lánaflokka og fyrir lá að verðtryggt lánsfé frá Fram-
kvæmdasjóði sem Stofnlánadeildin fær í ár verði með
5% vöxtum.
Með ákvörðun Seðlabankans frá 1. júní eru vaxtakjör
ákveðin í bankakerfinu með 2% vöxtum á fullverð-
tryggðum lánum og nú hefur ríkisstjórnin samþykkt
lánakjör Húsnæðismálastjórnar til samræmis við þau
vaxtakjör.
Stjórn Stofnlánadeildar lýsir megnri óánægju yfir
þessari ákvörðun, þar sem verið er að gera lánakjör
fjárfestingalánasjóðanna óhagstæðari en almenn
bankalán gagnstætt því sem áður hefur tíðkast. Því
leggur stjórnin áherslu á, að endurskoðun fari nú þegar
fram á vaxtakjörum útlána Framkvæmdasjóðs til sam-
ræmis við ákvörðun Seðlabankans um vaxtakjör lána í
bankakerfinu.
Stjórn deildarinnar leggur ríka áherzlu á að slík
endurskoðun fari fram nú þegar, enda sér hún ekki aðra
leið til leiðréttingar og samræmis á lánakjörum deild-
arinnar með öðrum hætti.
Virðingarfyllst,
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
Stofnlánadeild landbúnaðarins
Reykjavík, 24. júli 1979.
BB/AB
Stofnlánadeild landbúnaðarins,
Búnaðarbanka Islands,
Laugavegi 120,
Reykjavík.
Vísað er til bréfs yðar dags. 29. júní 1979 til forsætisráð-
herra, þarsem lögð eráherslaá, að endurskoðun fari nú
þegar fram á vaxtakjörum útlána Framkvæmdasjóðs til
yðar.
Ráðuneytið leitaði álits Framkvæmdastofnunar
ríkisins á þessum tilmælum yðar. Barst það í bréfi dags.
5. júlí 1979, sem fylgir hér með.
Ólafur Jóhannesson
Björn Bjarnason
Reykjavík, 5. júlí 1979.
Forsætisráðherra
Ólafur Jóhannesson,
Forsætisráðuneytinu,
Reykjavík.
Framkvæmdastofnunni hefir borizt til umsagnar bréf
Stofnlánadeildar landbúnaðrins dags. 29. júní varðandi
lánakjör.
Vísað er í bréfi þessu til ákvörðunar Seðlabankans um
vaxtakjör í bankakerfinu. Rétt virðist að beina athuga-
semdum varðandi þær ákvarðanir til þess aðila, er þær
reglur setur, þ. e. til Seðlabankans.
Þá er vísað til lánskjara Húsnæðismálastjórnar, sem
nú hafa verið ákveðin og samþykkt af ríkistjórn sem 2
1/4% breytilegir vextir og full verðtrygging. Þetta eru
þau kjör, sem nýir lánatakendur njóta hjá Húsnæðis-
málastjórn, þar með taldir bændur. Húsnæðismála-
stjórn mun væntanlega lána um 12. 1. milljarð kr. á
þessu ári og þar af nemaframlög markaðirtekjustofnar,
ertil Húsnæðismálastjórnar renna, um 6.1 milljarði kr.,
fé sem ekki verður endurgreitt og því síður greiddir af
vextir. Byggðist útlánageta Húsnæðismálastjórnar á
aðfengnu fé einvörðungu, yrðu útlánakjör að samsvara
markaðskjörum fjárins. Af lánsfé þarf Húsnæðismála-
stjórn að sjálfsögðu að greiðafullt gjald, t. d. 4% vexti og
fulla verðtryggingu af fé frá lífeyrissjóðum.
Áætlað er að Stofnlánadeild landbúnaðarins láni í ár
um 2500 milljónir króna. Deildin fær til sín í framlögum
og mörkuðum tekjustofnum 1634 milljónir króna. Vextir
af almennum útlánum hafa verið ákveðnir 3% og full
verðtrygging.
Til samanburðar má geta þess, að Fiskveiðasjóður
mun lána 58% lána sinna með 9% vöxtum og bundið
gengi SDR og 42% lána með 5.5% vöxtum og fullri
verðtryggingu.
Iðnlánasjóður mun veita lán til bygginga með 5 1/2%
vöxtum og fullri verðtryggingu og lán til vélakaupa með
2—4% vöxtum og fullri verðtryggingu.
Fullyrða má, að við samningu fjáröflunar- og út-
lánaáætlunar Framkvæmdasjóðs fyrir árið 1979 hafi
hluturStofnlánadeildar landbúnaðarins sízt verið látinn
eftir liggja, né hagsmunir deildarinnar fyrir borð bornir.
Við skiptingu útlánafjár Framkvæmdásjóðs til hinna
ýmsu sjóða er hlutur Stofnlánadeildar af óverðt/yggðu
fé langt umfram það, sem hlutfallsleg skipting mundi
618
FREYR