Freyr - 15.09.1979, Blaðsíða 64
upplýsinga um franska markaðinn. Einnig
hefur Albert Guðmundsson tekið að sér að
kanna möguieika okkar í Frakklandi.
Austuríönd nær:
Allmargarfyrirspurnir hafa boristfrá pessum
löndum um lambakjöt. Nýsjálendingar hafa
verið mjög ráðandi á þessum mörkuðum og
selja fryst kjöt og lifandi fé þangað. Hins veg-
ar hefur Iran verið lokað að undanförnu, en
það hefur verið stærsti markaðurinn.
Ekki er enn að vita, hvort einhver söluár-
angur næst í þessum löndum hvort kjötið er
að smekk fóiksins eða verð þannig, að við-
unandi sé, miðað við aðra kosti.
Banúaríki norður- Ameríku.
Neysla á kindakjöti er mjög lítil á mann, mis-
jöfn eftir svæðum, en mest á austurströnd-
inni.
Kindakjöt er dýrasta kjöttegundin, fryst
kjöt er lægra en kælt. Innlend framleiðsla er
nær eingöngu seld fersk. Lömbin eru fituð á
maís, sem gerir kjötið gríðarlega feitt og
safamikið. Það er því gjörólíkt íslensku kjöti.
Skrokkarnir eru mun stærri, oft 30—35 kg.
Bandaríska fyrirtækið Greenebaum, sem
keypti ferskt kjöt sl. haust héðan, hefur boð-
ist til að aðstoða við frekari verslun á kjöti og
kjötafurðum.
í ráði er að flytja út kæít kjöt þangað nú í
haust í flugi, og áhugi á að reyna útflutning á
frosnu kjöti í vetur, en það veltur að sjálf-
sögðu á verði. Einnig hefur þetta fyrirtæki
boðisttil að aðstoða viðframleiðslu á unnum
kjötvörum, t. d. lambaskinku. Starfsmaður
nefndarinnar og Gunnlaugur Björnsson frá
Búvörudeild SÍS munu fara utan í september
til að ræða þessi mál frekar við fyrirtækið
Greenebaum.
Nefndin hefur ekki kannað önnur mark-
aðssvæði en að framan getur. Þó berast
fyrirspurnir af og til um kjöt til markaðs-
nefndar eða Búvörudeildarinnar. Er þeim að
sjálfsögðu svarað eftir bestu getu og gefnar
verðhugmyndir. M. a. hefur nýlega borist
fyrirspurn frá Japan um veró á íslensku
dilkakjöti.
ÚTFLUTNINGUR Á FERSKU KJÖTI.
í ráði er að halda áfram tilraunum með út-
flutning á kældu kjöti í haust. Verður vænt-
anlegaflutt til Danmerkurog Bandaríkjanna.
Ekki liggur enn fyrir um magnið, sem fer eftir
verðinu, en vonast er til að geta flutt út
50—60 tn. til hvors lands fyrir sig.
Þá hefur markaðsnefndin komið á tilraun
með framleiðslu páskalamba, sem ætlunin
er að selja DAT-Schaub/lrma fyrir næstu
páska. Hafa nú rúmar 30 ær fengið eftir hor-
mónameðferð og ætlast til, að þær beri um
áramót. Einnig erfyrirhugað aó safna nokkr-
um síðsumarfæddum lömbum til eldis í
vetur. Þessi tilraun fer fram í samvinnu við
Gunnarsholtsbúið, og hefur Ólafur Dýr-
mundsson annast hormónameðferð og ann-
að þar að lútandi fyrir nefndina. Líkur benda
til, að verulega gott verð geti fengist fyrir
mjög takmarkað magn, en ekki er enn vitað,
hver aukakostnaður verður við fram-
leiðsluna.
Segja má, að þessar tilraunir með útflutn-
ing á kældu kjöti séu liður í könnun á leng-
ingu sláturtíma (og burðartíma), en segja
má, að sú regla gildi, að því fyrr, sem hægt er
að bjóða ferskt kjöt til sölu á almanaksárinu,
því hærra verð sé í boði,
ÚTFLUTNINGUR Á HEYI.
Á sl. vori var keypt hingað til lands bindivél,
sem bindur í stórbagga, 700 kg. Stéttarsam-
bandið hefur lagt fram fé til kaupanna, en
kaupverð var um 6,5 millj. kr. ásamt vara-
hlutum_og nokkru garni. Vélin hefur verið
staðsett í Eyjafirði, en lítið verið notuð, vegna
ótíðar. Ekki hafaverið gerðar athuganir með
útflutning á heyi nú vegna takmarkaðs
heyfengs. Nokkirtugirtonna munu þófaratil
Færeyja frá bændum á Héraði.
628
FREYR