Freyr - 15.09.1979, Blaðsíða 66
un í Svíþjóð). 3. Síhækkandi tollar í EBE-
löndunum.
Því má slá föstu, að vonlaust er að byggja
upp varanlegan útflutning búvara við ríkj-
andi aðstæður. Skráning erlends gjald-
eyristekurekki mið af markaðsaðstæðum
fyrir búvörur, heldur aðeins af fisk-
útflutningi.
Staðan í útflutningsmálunum er nú sú, að
aðeins fæst lítill hluti af skráðu verði fyrir
útflutning. 10—15% erlendar verðhækk-
anir eru eins og dropi í verðbólguhafinu
hér, og þá er dregin sú ályktun, að ekki sé
til neins að framleiða búvöru til útflutn-
ings. Menn gleyma, að mestu valda inn-
lendar aðstæður auk þeirra af erlendum
toga, sem nefndar hafa verið. Með því að
ráð bót á þessum atriðum og með aukinni
hagræðingu í sauðfjárframleiðslunni
væri hægtað stóraukaframleiðsluna með
útflutning fyrir augum í stað þess að
fækka bændum og draga saman. Enda
þótt færa þyrfti eitthvert fjármagn á milli
frá sjávarútvegi til búvöruframleiðslu í
byrjun, væri vafalaust mjög jákvætt fyrir
þjóðarheildina að gera það, því við
mundum mjög draga úr áhættunni á
skakkaföllum með aukinni fjölbreytni í
útflutningi.
Mjólkurframleiðslan minnkar.
Áhrifa harðærisins er þegar farið að gæta í
landbúnaðarframleiðslunni, Af þeim upp-
lýsingum, sem Framleiðsluráð landbún-
aðarins hefur aflað sér þegar þetta er skrifað,
virðist sem mjólkurframleiðslan hafi verið
8—9% minni í júní en í sama mánuði í fyrra. í
júní 1978 bárust 13.16 milljónir lítra til sam-
laganna, en er nú í júní um 1.1 millj. lítrum
minna. Af þessu leiddi, að smjörframleiðslan
í júní varð 50tonnum minni en í sama mánuði
í fyrra.
Þróun í mjólkurframleiðslu frá áramótum
hefur verið sem hér segir, miðað við sömu
mánuði 1978:
janúar 1979 7.4% aukning
febrúar — 6.0% —
mars — 1.2% —
apríl — 0.7% —
maí — 4.5% minnkun
júní — 8.5% —
Þessi gjörbreyting í mjólkurframleiðslunni
mun hafa víðtæk áhrif sagði Pétur
Sigurðsson, Framleiðsluráði landbúnaðar-
ins, í viðtali við Frey. í byrjun þessa verð-
lagsárs var búið að áætla, að mjólkin mundi
vaxaum 6% áárinu, en nú líturútfyrirað hún
minnki um 0.6—1 %.
Allar áætlanir um mjólkurframleiðslu
breytast, t. d. er fyrirsjáanlegt að flytja þarf
mikið af rjóma og jafnvel neyslumjólk norð-
an úr landi til þéttbýlisins á Suðvesturlandi í
vetur.
í byrjun þessa framleiðsluárs var talið að
smjörbirgðir 1. sept. 1979 yrðu 400 tonnum
meiri en sl. haust. Nú er Ijóst, að þær verða
ekki meiri en í fyrra.
Fóðurkorn.
Menn ætla, að heildaruppskera fóðurkorns
verði minni en í fyrra, en þá var hún 740
milljónir tonna. í Ameríku voru fóðurkorns-
akrar 3% minni í ár en í fyrra.
Sveinn Hallgrímsson aftur tii starfa
hjá Bf. íslands.
Sveinn Hallgrímsson, sauðfjárræktarráðu-
nautur, er nú aftur kominn til starfa hjá Bún-
aðarfélagi íslands. Hann hafði orloffrá störf-
um hjá félaginu í 11/2 ár og vann þá hjá Út-
flutningsmiðstöð iðnaðarins sem ullar- og
verkefnisstjóri.
630
FREYFS