Freyr - 15.09.1979, Page 67
Stj.tíð. B, nr. 348/1979.
Reglugerð
skv. lögum nr. 15/1979 um breytingu á lögum nr. 101/1966 um Framleiðsluráð landbún-
aðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarvörum o. fl.
1. gr.
Merking orða í þessari reglugerð ersem hér
segir:
„Bú“ er notað um framleiðslueiningu
bónda og maka hans og barna innan 16 ára
aldurs, að viðbættri framleiðslu annarra
sjálfstæðra framteljenda er lögheimili eiga á
sömu jörð, en ekki eru sjálfir ábúendur eða
aðilar að félagsbúi, svo og annars lögaðila
fyrirtækis eða stofnunar.
„Lögbýli" er eins og það er skilgreint í 1.
gr. ábúðarlaga nr. 64/1976 svohljóðandi:
„Jörð eða lögbýli" nefnist í lögum þessum
hvert það býli sem sérstaklega er metið til
verðs í fasteignamati, með ákveðnum
landamerkjum eða með ákveðnum tún- og
engjamerkjum, ef um hjáleigu eða býli er að
ræða sem hefur sameiginlegt beitiland með
annarri jörð eða jörðum. Ennfremur verður
býli að hafa það landrými eða búrekstrarað-
stöðu, að það framfleyti minnst 10 kúgildum.
Auk þess sé á landinu nauðsynlegur húsa-
kostur til að nytja jörðina. Jörð sem ekki hef-
ur verið setin í 2 ár eða lengur, telst eyðijörð
og þó að hús séu fallin eða rifin, telst hún
lögbýli nemajörðinni sé ráðstafaðtil annarra
nota með samþykki sveitarstjórnar og jarða-
nefndar, t. d. lögð til afréttar eða sameinuð
annarri jörð. Jörð eða lögbýli teljast enn-
fremur nýbýli, garðyrkjubýli og smábýli sem
hlotið hafa samþykki jarðanefndar og stað-
festingu landnámsstjórnar sem lögbýli.
„Ærgildi" er ein vetrarfóðruð sauðkind. í
nautgripum teljast ærgildi þannig; kýr 20
ærgildi, kelfd kvíga 12 ærgildi, vetrungur 8
ærgildi og kálfur 4 ærgildi.
FREYR
„Ærgildisafurð“ er magn kjöts, gæru,
sláturs og ullar sem ein vetrarfóðruð kind
skilarskv. landsmeðaltali þriggjasíðustu ára
og eða tilsvarandi magn mjólkur og
nautgripakjöts, miðað við verðmæti. Aðrar
tekjur af landbúnaði metast til ærgildisaf-
urða í krónutölu skv. skilgreiningu um
heildarbúvöruverðmæti,
„Framleiðandi" getur verið einstaklingur
og einnig bóndi ásamt maka hans og börn-
um þeirra o. fl. samkvæmt skilgreiningu um
bú.
2. gr.
Nú verður búvöruframleiðslan meiri en þörf
er fyrir á innlendum markaði og ekki fást
erlendir markaðir sem viðunandi teljast fyrir
það sem umfram er, að mati Framleiðsluráðs
landbúnaðarins og eru þá Framleiðsluráði,
að fengnu samþykki fulltrúafundar Stéttar-
sambands bænda og staðfestingu landbún-
aðarráðherra, heimilar eftirfarandi tíma-
bundnar ráðstafanir:
a) Að ákveða mismunandi verð á búvöru til
framleiðenda. í því sambandi er heimilt
að ákveða framleiðendum fullt grund-
vallarverð fyrir ákveðinn hluta fram-
leiðslunnar, en útflutningsverð fyrir það
sem umfram er.
Settur verði kvóti í ærgildisafurðum
fyrir framleiðslu sauðfjár- og nautgripa-
afurða aðra hvora búgreinina eða báðar
eftir því sem þurfa þykir á hverju lögbýli
og fyrir þá framleiðendur utan lögbýla
631