Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1979, Page 69

Freyr - 15.09.1979, Page 69
taka mishátt verðjöfnunargjald af afurð- um sauðfjár og nautgripa eða aðeins af annarri hvorri búgreininni fyrir sig. Einnig er Framleiðsluráði heimilt að taká slíkt gjald af öðrum afurðum. Heimilt er að fella niður framleiðslugjald af búum undir ákveðnu stærðarmarki. Hæst gjald skal tekið af afurðum 1000 ærgildisbúa, og stærri og af framleiðslu þeirra, sem ekki hafa lögheimili og ábúð á lögbýli hafi þeir ekki meiri hluta tekna sinna af landbúnaði. Gjaldið miðist við bústofn á hverju býli um áramót skv. forðaskýrslum. Framleiðsluráð ákveður hversu hátt hæsta gjaldið skal vera og tilkynnir það strax að tekinni ákvörðun og jafnframt tilkynnir það gjalddaga og innheimtir gjaldið sbr. þó næstu málsgrein. Síðan skal endurgreiða af gjaldinu 7/12 hluta þess til 400 ærgilda þúa eða minni sbr. þó síðasta málslið 1. málsgreinar, d-liðar. Fyrir 400—500 ærgilda bú endurgreiðast 6/12 hlutargjaldsins. Lækkargreiðslan um V12 hluta fyrir hvert 100 ærgilda, er bætist við bústærðina upp að 1000 ærgilda búi. Um félagsbú gilda ákvæði 6. málsgreinar a-liðar eftir því sem við á. Heimilt er að nota samtímis heimildir samkv. stafliðum a, b. og c svo sem fært er. d) Hafi einhver framleiðandi ekki talið fram til skatts, skal gefa viðkomandi aðila tveggja mánaða frest til að senda upp- lýsingar sem Framleiðsluráð tekur gildar, ella tapar hann rétti til framleiðslukvóta á fullu verði. Frumbýlingurtelst sáframleiðandi sem haft hefur ábúð á jörð í þrjú ár eða skemur. Hafi hann ekki komið upp búi af þeirri stærð sem verðlagning búvara miðast við, skal réttur hans til fulls verðs skv. a-, b- og c-lið ráðast af því fram- leiðslumagni er framleitt var á viðkom- andi jörð áður en hann tók við búi og einnig af þörf hans til eðlilegrar afkomu samanborið við aðra bændur miðað við fjármagnskostnað við stofnun búsins og laun fyrir vinnu við rekstur þess í hlutfalli við verðlagsgrundvallarbú að mati Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Framleiðandi, sem hættir búrekstri á framleiðsluári, skal sæta þeirri verð- skerðingu á afurðamagni búsins sem gildir í viðkomandi búgrein á innleggs- tímaafurðanna. Ef umerað ræða innlegg hluta úr ári, skal fullt verð greiðast fyrir jafnmikiðframleiðslumagn og hann hafði rétt til, miðað við sama tíma viðmiðunar- árin. Sama gildir ef tekið er mishátt verð- jöfnunargjald. Heimilt er að greiða framleiðendum fullt verð fyrir kjöt sem til fellur vegna samdráttar bústofns um 5% eða meira, enda leggi þeir fram fullnægjandi gögn að mati Framleiðsluráðs. Ef búrekstri er hætt á lögbýli, geymist réttur viðkomandi býlis, þartil búrekstur hefst þar að nýju, nema honum hafi verið ráðstafað samkvæmt síðustu málsgrein a-liðar. e) Framleiðsluráð ákveður fyrir marslok ár hvert, hversu hátt gjald skuli taka af búvöruinnleggi til jöfnunar greiðslum til framleiðenda og jöfnunar verðs á milli þeirra söluaðila, er selja á erlendum markaði og hinna er selja innanlands. Söluaðilum er skylt að halda eftir af greiðslum til framleiðenda þeirri fjárhæð af andvirði innlagðrar búvöru sem Fram- leiðsluráð ákveður hverju sinni vegna framkvæmda ofangreindra heimilda, og standa skil á þeim fjárhæðum til Fram- leiðsluráðs. Framleiðsluráð getur falið söluaðilum afurðanna að taka mismunandi hátt gjald af framleiðendum eftir nánari fyrirmæl- um sbr. c-lið, og skulu þeir þá gera ná- kvæma grein fyrir gjaldtöku af hverjum aðila fyrir sig. Framleiðsluráð ákveður gjalddaga vegna þessara heimilda. Standi söluaðili ekki í skilum á gjald- daga, er Framleiðsluráði heimilt að taka FREYR 633

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.