Freyr - 15.09.1979, Qupperneq 69
taka mishátt verðjöfnunargjald af afurð-
um sauðfjár og nautgripa eða aðeins af
annarri hvorri búgreininni fyrir sig.
Einnig er Framleiðsluráði heimilt að taká
slíkt gjald af öðrum afurðum. Heimilt er
að fella niður framleiðslugjald af búum
undir ákveðnu stærðarmarki.
Hæst gjald skal tekið af afurðum 1000
ærgildisbúa, og stærri og af framleiðslu
þeirra, sem ekki hafa lögheimili og ábúð á
lögbýli hafi þeir ekki meiri hluta tekna
sinna af landbúnaði. Gjaldið miðist við
bústofn á hverju býli um áramót skv.
forðaskýrslum.
Framleiðsluráð ákveður hversu hátt
hæsta gjaldið skal vera og tilkynnir það
strax að tekinni ákvörðun og jafnframt
tilkynnir það gjalddaga og innheimtir
gjaldið sbr. þó næstu málsgrein. Síðan
skal endurgreiða af gjaldinu 7/12 hluta
þess til 400 ærgilda þúa eða minni sbr. þó
síðasta málslið 1. málsgreinar, d-liðar.
Fyrir 400—500 ærgilda bú endurgreiðast
6/12 hlutargjaldsins. Lækkargreiðslan um
V12 hluta fyrir hvert 100 ærgilda, er bætist
við bústærðina upp að 1000 ærgilda búi.
Um félagsbú gilda ákvæði 6. málsgreinar
a-liðar eftir því sem við á.
Heimilt er að nota samtímis heimildir
samkv. stafliðum a, b. og c svo sem fært
er.
d) Hafi einhver framleiðandi ekki talið fram
til skatts, skal gefa viðkomandi aðila
tveggja mánaða frest til að senda upp-
lýsingar sem Framleiðsluráð tekur gildar,
ella tapar hann rétti til framleiðslukvóta á
fullu verði.
Frumbýlingurtelst sáframleiðandi sem
haft hefur ábúð á jörð í þrjú ár eða
skemur. Hafi hann ekki komið upp búi af
þeirri stærð sem verðlagning búvara
miðast við, skal réttur hans til fulls verðs
skv. a-, b- og c-lið ráðast af því fram-
leiðslumagni er framleitt var á viðkom-
andi jörð áður en hann tók við búi og
einnig af þörf hans til eðlilegrar afkomu
samanborið við aðra bændur miðað við
fjármagnskostnað við stofnun búsins og
laun fyrir vinnu við rekstur þess í hlutfalli
við verðlagsgrundvallarbú að mati
Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
Framleiðandi, sem hættir búrekstri á
framleiðsluári, skal sæta þeirri verð-
skerðingu á afurðamagni búsins sem
gildir í viðkomandi búgrein á innleggs-
tímaafurðanna. Ef umerað ræða innlegg
hluta úr ári, skal fullt verð greiðast fyrir
jafnmikiðframleiðslumagn og hann hafði
rétt til, miðað við sama tíma viðmiðunar-
árin. Sama gildir ef tekið er mishátt verð-
jöfnunargjald.
Heimilt er að greiða framleiðendum
fullt verð fyrir kjöt sem til fellur vegna
samdráttar bústofns um 5% eða meira,
enda leggi þeir fram fullnægjandi gögn
að mati Framleiðsluráðs.
Ef búrekstri er hætt á lögbýli, geymist
réttur viðkomandi býlis, þartil búrekstur
hefst þar að nýju, nema honum hafi verið
ráðstafað samkvæmt síðustu málsgrein
a-liðar.
e) Framleiðsluráð ákveður fyrir marslok
ár hvert, hversu hátt gjald skuli taka af
búvöruinnleggi til jöfnunar greiðslum til
framleiðenda og jöfnunar verðs á milli
þeirra söluaðila, er selja á erlendum
markaði og hinna er selja innanlands.
Söluaðilum er skylt að halda eftir af
greiðslum til framleiðenda þeirri fjárhæð
af andvirði innlagðrar búvöru sem Fram-
leiðsluráð ákveður hverju sinni vegna
framkvæmda ofangreindra heimilda, og
standa skil á þeim fjárhæðum til Fram-
leiðsluráðs.
Framleiðsluráð getur falið söluaðilum
afurðanna að taka mismunandi hátt gjald
af framleiðendum eftir nánari fyrirmæl-
um sbr. c-lið, og skulu þeir þá gera ná-
kvæma grein fyrir gjaldtöku af hverjum
aðila fyrir sig. Framleiðsluráð ákveður
gjalddaga vegna þessara heimilda.
Standi söluaðili ekki í skilum á gjald-
daga, er Framleiðsluráði heimilt að taka
FREYR
633