Freyr - 15.12.1994, Síða 24
Skýrsla Félags hrossabœnda
11. nóv. 1993 til 10. nóv. 1994
3. hluti
VI. Ýmis sérverkefni
6. 1. Söfnun á PMSG blóði úr fylfullum hryssur. ísteka hf., dótturfyrirtœki Þróun-
arfélagins, safnaði í sumar og haust (ág.-sept.) blóði úr um 250 hryssum til PMSG
framleiðslu, um 6 tonn fyrir um kr. 1,3 milljónir.
Fyrirtækið samdi til nokkurra ára
við fyrirtæki sem er sterkt á PMSG
markaði, um dreifingu framleiðslu-
vörunnar erlendis.
Stefnt hafði verið að því að taka
blóð úr 750 hryssum, en vegna
sölusamninga fyrirtækisins er nauð-
synlegt að tryggja lágmarks hráefni
til vinnslu.
Blóðtöku og greiðslum var hagað
þannig að tekið var fimm sinnum úr
hverri hryssu, 5 lítrar í senn, 25
lítrar alls svo fremi að PMSG magn
í blóð hverrar töku væri fyrir ofan
ákveðið lágmark, annars færri.
Greiðslur fóru eftir fjölda lítra. Fyrir
25 lítra af meðalvirku blóði voru
greiddar 4.300 krónur. Væri virknin
fyrir neðan viðmiðunarmörk í ein-
stakri blóðtöku var söfnun úr
viðkomandi hryssu hætt. Stefnt er að
því á næsta ári að greitt verði miðað
við virkni PMSG í blóði.
Hjá ísteka hf. er hormónalyf unnið
úr blóðinu og selt erlendis í harðri
samkeppni á heimsmarkaði. Með
rannsókna- og þróunarstarfi sem
unnið er á vegum fyrirtækisins
er leitast við að bæta nýtnina í
hormónavinnslunni, auk þess sem
verið er að þróa vinnsluferli fyrir
önnur verðmæt próteinefni úr blóð-
inu. Þegar tímar líða kemur þessi
starfsemi vonandi til með að auka
verðmætið sem fæst við vinnslu
blóðsins og styrkja samkeppnis-
hæfni fyrirtækisins. Samhliða auk-
inni verðmætasköpun er vonast til
að stígandi geti orðið í verði til
bænda sem í fyrstu byggir á betri
nýtingu í vinnsluferli hormónalyfs-
ins en síðan á fjölgun afurða úr
blóðinu. Áframhaldandi samvinna
ísteka hf. og hrossabænda getur því
leitt af sér nýja atvinnugrein í
líftækni á íslandi samhliða nýrri
verðmætri afurð fyrir bændur og er
þá til nokkurs unnið.
Skyldur eigenda gagnvart þátttöku
voru og eru eftirfarandi:
„Ekki láta stóðhesta ganga í stóð-
inu allt vorið, þar með talda fola
1 'A árs eða eldri.
Láta stóðhesta í stóðið eftir 25.
maí og fyrir 7. júní, eða á öðrum
tíma sem samið er sérstaklega um
við Isteka hf.
Skila í póst fyrir 1. júlí, lista með
númerum (1 af hverjum 10 nafn-
greind vegna tryggingar ef við á)
og köstunardegi hryssa og stað-
festingu á því hvenær hesturinn
var látinn í stóðið.
Merkja hryssuna með númeri,
taka 5 blóðdropa úr flipa með
áhöldum sem Isteka leggur til,
merkja sýnið og senda ísteka
ásamt lista yfir hryssurnar með
númerum þeirra.
Sjá um að allt sé til staðar á
blóðtökustað, svo sem blóðtöku-
bás o.fl.
Leggja til 2 fullgilda menn til
starfans.
Skila hryssum í blóðtökubás
mýldum og með bandi yfir
herðakamb.
Klippa merki (númer á belg) eða
merkja tryggilega á annan hátt.
Leggja „stasa“ á háls hryssu og
gæta hauss svo sem blóðtakan
krefst. Ath. ekki er heimilt að taka
blóð nema hver hryssa sé merkt
með númeri.
Setja lokur í bakhlið báss og
hreyfa að þörfum.
Hafa aðgang að vatni fyrir hryssur
á blóðtökustað.
Merkja blóðbrúsa með nafni
(númeri) hryssu og dagsetningu.
Koma blóði til skila í söfnun-
arstöð í héraði.
Vegna sældar hryssa og öryggis
verður að hafa í huga að hryssur séu
ekki lokaðar inni án vatns eða beit-
armöguleika of lengi á blóðtökudegi
og að þegar þeim er sleppt að blóð-
gjöf lokinni hverju sinni, eigi þær
greiðan aðgang að vatni.
Fumlaus og kyrrlát vinnubrögð
eru nauðsynleg.“
Félag hrossabænda gerði sam-
starfssamning við ísteka hf. 17.
ágúst 1994 um blóðsöfnunina. Blóð
var aðeins tekið úr hryssum í
Landeyjum og tókst framkvæmd í
alla staði vel. Þess er fastlega vœnst
að hrossabœndur taki sig saman og
undirbúi þátttöku í blóðsöfnun fyrir
nœsta ár víðsvegar á landinu að
fengnu samþykki Isteka hf.
6.2. Málefni Reiðhallarinnar.
Reiðhöllin var leigð af Stofn-
lánadeild landbúnaðarins og Fram-
leiðnisjóði til íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkurborgar til vors.
Dagana 1. til 5. mars 1994 voru
haldnir Norðlenskir hestadagar í
Reiðhöllinni í Reykjavík og Sunn-
lendingar og Fáksfélagar héldu
stórsýningu í Reiðhöllinni dagana
6., 7. og 8. maí og eins og fyrri ár
var þessi sýning haldin sömu helgi
og sýning Stóðhestastöðvarinnar í
Gunnarsholti.
Sýningamar tókust vel og var nær
fullsetin Reiðhöllin alla sýningar-
dagana. Deildir F.hrb. á viðkomandi
landssvæðum stóðu að þessum sýn-
ingum.
928 FREYR - 24*94