Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.07.1995, Qupperneq 26

Freyr - 01.07.1995, Qupperneq 26
landbúnaðar, bæði í framleiðslu og úrvinnslu (leiðbeiningaþjónusta og afurðastöðvar). Þetta hefur leitt til þess að flutningur á gögnum milli aðila hefur verið einfaldur. Það hefur verið eðlilegt viðhorf afurða- stöðvanna að útvega einstaklings- upplýsingar um sláturgripi og koma þeim til úrvinnslu hjá skýrsluhaldi búfjárræktarinnar. Fyrst og síðast eru þetta fyrirtæki sem eiga að þjóna hagsmunum bóndans og það eru augljósir hagsmunir hans að gífurlegar breytingar á síðari árum í skýrsluhaldi nautgriparæktar um allan heim. I Danmörku hefur verið lögð gífurlega mikil áhersla á að halda upp öflugum sameiginlegum gagnagrunni þar sem allar upp- lýsingar sé ætíð að finna og þangað séu þær sóttar til dreifðra nota. Þetta hygg ég að fullyrða megi að sé lykilþáttur fyrir víðtæk not upp- lýsinganna. I þessum upplýsinga- grunni er að finna allar upplýsingar um afurðir gripanna, bæði magn og Verðlaunakýr afkyninu Rauðar danskar mjólkurkýr. þessir aðilar starfi saman að þessari upplýsingaöflun. Sé einhver alvara hér á landi í umræðu um að gera gæðaátak í nautakjötsframleiðslu er fyllilega tímabært að gera sér grein fyrir að grunnur að slíkum kerfum í dag er trygg og örugg upp- lýsingaöflun og því þarf að byggja þann grunn. Fyrirmyndirnar að því á hvern veg það er best gert höfum við. Tölvuvœðing skýrsluhaldsins. Tölvuvæðingin hefur skapað efnainnihald mjólkur ásamt frumu- tölumælingum á síðustu árum. Auk þess upplýsingar um ættemi grip- anna, örlög þeirra, sjúkdómasögu sem og upplýsingar um kjötfram- leiðslu eins og að framan er rætt. í samanburði við upplýsingaöflun hér á landi vantar okkur upplýsingar sem lúta að kjötframleiðslu og einnig skortir enn á jafn góðar upp- lýsingar um sjúkdóma hjá gripum og unnið er með í nágrannalönd- unum. A það má benda að Danir tóku ekki upp próteinmælingar í mjólk fyrr en um líkt leyti og hér á landi og mælingar á frumutölu úr einstökum kúm hófu þeir nokkru síðar en hér á landi. Ef til vill gera ekki allir sér fulla grein fyrir hve mikið upplýsinga- flæði er um að ræða í skýrsluhaldi nautgriparæktarinnar. Umfang upp- lýsinga á hverju ári hér á landi er um það bil 220-250 þúsund mælingar fyrir einstaka gripi á afurðum og fyrir um 70% af þessum mælingum fylgja auk þess upplýsingar um kjarnfóðurgjöf einstakra gripa. Fjöldi efnamælinganiðurstaðana mun vera um 80 þúsund. Fjöldi skráðra sæðinga er tæp 50 þúsund á ári. Þá eru upplýsingar um ættemi og förgun gripa, en láta mun nærri að 6-8 þúsund nýir gripir komi á skýrslu á hverju ári. Auk þess eru ýmsar aðrar upplýsingar úr skoðun gripa og spurningalistum sem eru minni að umfangi. í áðurnefndu riti er gerð grein fyrir því hvernig á því stóð að upplýsingar um fóðrun einstakra gripa féllu út í skýrsluhaldi í Danmörku. I upphafi var slík skrán- ing fyrir hendi. A fjórða áratugnum, þegar fóðrun samkvæmt þekktum fóðurnormum varð almenn, gerðist það meira og meira að farið var að skrá reiknaðar fóðurþarfir gripanna í stað upplýsinga um gefið fóður, og grunni þannig kippt undan gildi þeirra upplýsinga. Hins vegar býðst dönskum bændum í tengslum við skýrsluhaldið einhver öflugast áætl- anagerð um fóðrun sem þekkist í heiminum. Öll sú áætlangerð er byggð á þeim grunni að nýta upp- lýsingar um einstaka gripi úr skýrsluhaldinu en skrá vegna áætlunargerðarinnar hverju sinni upplýsingar um fóður. Upplýsingar um tœknileg atriði í fjósum. Þess má geta að í umræðu um framtíðarþróun er lögð áhersla á að næsta svið sem gera verði átak í upplýsingaöflun um séu upplýs- ingar um tæknileg atriði sem tengjast fjósbyggingum. Þetta segj- ast þeir verða að takast á við til að geta verið í forystu í þessum efnum. Þess má til gamans geta að nú er liðið á annað ár síðan við Torfi Jóhannesson kynntum slíkar hug- myndir hér á landi og mörg 298 FREYR - 7. ’95

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.