Freyr - 15.07.1998, Side 17
Netbíir tcemt á Sauðleysuvatni. (Ljósm. Sverrír Kristinsson.)
þá verður erfiðara að losa fiska úr
þeim. Netbúrin eru búin til í tveimur
hlutum, 60 og 75 cm. Þegar þessir
bútar eru skeyttir saman verður búr-
ið um 135 cm langt. Netbúrin þurfa
að vera stíf en ef flytja þarf þau
mikið til er gott að útbúa þau þannig
að leggja megi þau saman. Að lok-
um þarf að útbúa lok á búrin svo að
hægt sé að tæma þau. Veiðar með
netbúrum ganga best þegar vatn er
kalt og veiðin er gjarnan mest á
meðan ís er á vötnum. Þó má einnig
veiða með netbúrum að sumarlagi.
Hægt er að tæma netbúrin á
hverjum degi, en það hefur sýnt sig
að þau veiða best þegar þau fá að
vera í friði í um tvo til þrjá daga á
milli þess sem þau eru tæmd. Best er
að flytja netbúrin til á 4-5 daga
fresti. Það getur örvað veiði að
skilja nokkra fiska eftir í netbúrun-
um. Eftir að ákveðinn fjöldi fiska er
kominn í búrin hætta þau að taka
við. Það er því nauðsynlegt að tæma
búrin oftar þegar vel veiðist. Koma
má við vinnuhagræðingu með því
að hafa fleiri en eitt netbúr fest við
sama bólið. Gæta þarf þess að net-
búrin liggi rétt á botninum, ef þau
eru skökk veiða þau illa.
Til þess að lokka fiskinn í netbúr-
in er nauðsynlegt að hafa í þeim
agn. Sem agn í netbúrin er algengast
að notuð séu fersk eða söltuð þorsk-
hrogn en ýmis önnur beita hefur
einnig verið notuð. Fer það jafnvel
nokkuð eftir veiðivatni hvaða beita
gefst best. Þegar notuð eru þorsk-
hrogn er gjaman miðað við um 1 kg
af hrognum í hvert netbúr og þau
lögð í stykkjum á botninn á búrun-
um. Menn ættu þó að huga að því að
ganga þannig frá beitunni að þeir
fiskar sem fyrstir ganga í búrin nái
ekki að klára beituna þannig að
gildran hætti að veiða. Sjaldnar þarf
að vitja um netbúr en net og gæði
fiskjarins, sem helst lifandi í búrun-
um, em meiri en á netafönguðum
físki. Netbúr em því ótvíræður kost-
ur þar sem langt þarf að fara til um-
vitjana eða ætlunin er að ná í
óskaddaðan fisk til frekari geymslu
eða eldis. Sá böggull fylgir þó
skammrifi að netbúrin veiða best í
þéttsetnum vötnum af hægvaxta
bleikju. Þar sem mikið framboð er á
fæðu og skilyrði til vaxtar góð, veið-
ist bleikja yfirleitt illa í netbúr. Oft
er því litið á veiði með netbúrum
sem fyrsta skrefið í að koma á
skipulegum veiðum í vannýttum eða
ranglega nýttum vötnum.
Þeim sem vildi fá frekari upplýs-
ingar um gerð og notkun netbúra er
bent á að hafa samband við greinar-
höfund (netfang: bjarjon@krokur.is).
Heimildir
Anton Rikstad 1982. Det gár an! Kultiver-
ing av overbefolkete royevatn. Finn-
mark Jeger- og fiskerforbund. Ársbe-
retning (bls. 8).
Hans Kristian Drægni 1989. Teinefísket.
Ottar. Populærvitenskapelig tidskrift fra
Tromsp Museum Nr. 176 (bls. 38-41).
Teinefiske etter rpye. Dierektoratet for
naturforvaltning.
Ýmsar munnlegar heimildir.
Freyr 9/98 — 17