Freyr - 15.07.1998, Síða 20
Nœringarefni í jarðvegi
- | Binding, ferli og forði -
Inngangur
Á seinustu árum hefur umræða um
útskolun næringarefna úr ræktunar-
jörð og mengun frá landbúnaði ver-
ið mikil í nágrannalöndum okkar og
búskaparhættir eru í æ ríkari mæli
að færast yfir í svokallaðan „vist-
vænan landbúnað", þar sem mark-
vissrar efnanotkunar er krafist.
Smærri í sniðinu en áberandi í al-
mennri umræðu er hin svokallaða
lífræna ræktun, en í lífrænni ræktun
er notkun á auðleystum tilbúnum
áburði ekki leyfð.
Hvort sem um er að ræða tap
næringarefna með útskolun, bind-
ingu í jarðvegi eða nýtingu næring-
arefna jarðvegsins í hefðbundinni,
vistvænni eða lífrænni ræktun, þá er
nauðsynlegt að gera sér grein fyrir
magni og hegðun þeirra í jarðvegin-
um. I þessari grein er fjallað um
magn og ferli næringarefna í jarð-
vegi. Síðar verður komið að áburð-
eftir Þorstein Guð- mundsson
\ Ár
jarðvegs- fræðing
arnotkun í hefðbundnum, vistvæn-
um og lífrænum landbúnaði auk
þess sem áhrif frjósemi jarðvegs á
val á ræktunarlandi verða hugleidd.
í þessari grein er einkum byggt á
athugunum sem ekki hafa áður verið
birtar. í fyrsta lagi úr prófritgerð
Uschi Scheibe frá Hohenheim (7),
en hún tók fyrir jarðveg á melunum
fyrir ofan Fossa í Skorradal. Þetta
eru þurrir melar, að hluta lítt grónir,
og þar er frumjörð nkjandi, en á
melunum er einnig þykk og góð
móajörð. Stór hluti landsins er
óhreyfður úthagi (móajörð 1 og
frumjörð 1), en hluti landsins er í
rækt (móajörð 2 og frumjörð 2). f
öðru lagi greiningar á jarðvegi frá
Hvanneyri sem höfundur hefur gert
með nemendum í búvísindadeild á
undanfömum árum í æfingum í
jarðvegsfræði.
Binding næringarefna í
jarðvegi
Langstærsti hluti næringarefna í
jarðvegi er fast bundinn í lífrænum
efnum og í steinefnum sem eiga
uppruna sinn í bergi landsins. Hægt
er að líta á þessi fastbundnu næring-
arefni sem forða (1. mynd ). Nær-
ingarefnin losna úr forðanum við
veðrun bergefna og rotnun þeirra líf-
rænu. Ákveðinn hluti næringarefna
er það fast bundinn í forða að þau
losna ekki við veðrun nema litið sé
til mjög langs tíma. Sá hluti forðans
sem getur losnað við rotnun og
veðrun er nefndur veðranleg nær-
ingarefni.
Einungis lítill hluti forðans losn-
ar ár hvert og er mikilvægi hans fyr-
irfrjósemi jarðvegsins oft vanmetið.
Plöntur geta nýtt sér næringarefni í
lausn og eins þau sem eru auðleys-
anleg og skiptanleg. Þjónustuefna-
greiningar á jarðvegi eiga að ná til
þessa hluta næringarefnanna og gefa
ákveðna hugmynd um næringar-
efnaástand jarðvegsins.
Næringarefni berast í jarðveginn
með áfoki, gosösku, árennsli og
með áburði. Næringarefni tapast úr
jarðvegi með yfirborðsvatni og út-
skolun með jarðvatni sem sígur í
gegnum jarðveginn.
Magn jardvegs og
heildarmagn efna í efsta
jardvegslaginu
Gott er að gera sér nokkra grein fyrir
því heildarmagni jarðvegs, sem
Veðrun
Viðbót
Aburður
Regn
Áfok
Aska
N-binding
Forði
Festing
Efnabinding
Lífræn binding
Tap
Upptaka
Skolun
Jarðvegs-
Eyðing
Mynd 1. Ferli nœringarefna í jarðvegi. (Schröder, D. 1984 og Þorsteinn
Guðmundsson, 1994.)
20 - Freyr 9/98