Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.07.1998, Qupperneq 21

Freyr - 15.07.1998, Qupperneq 21
1. tafla. Heildarþungi jardvegs og heildarmagn efna (tonn/ha) og magn veðranlegra og skiptan- legra næringarefna (kg/ha) í efstu 10 sm jarð- vegs á melunum ffyrir ofan Fossa í Skorradal. Jarð- vegur Heildar- þungi jarðvegs tonn/ha Heildarmagn efna - tonn/ha - Þar af veðranleg og skiptanleg - kg/ha - Ca Mg K Ca Mg K Móajörð 1 370 15 4,7 1,1 1600 2300 150 170 60 20 Móajörð 2 540 20 7,0 2,0 3700 3100 280 80 40 30 Fmmjörð 1 940 51 20,0 2,2 5400 9100 500 290 140 40 Frumjörð: 2 1000 44 15,0 2,9 5900 8300 510 160 60 70 plönturætur hafa til umráða. Rótar- dýpt og þar með rótarrými er æði misjafnt. Af ræktuðu landi eru sýni oft tekin úr 0-5 cm dýpt, þótt rótar- dýpt sé væntanlega heldur meiri. I úthaga og á skóglendi er rótardýptin oft meiri, en efsta jarðvegslagið er einnig þar mikilvægast hvað upp- töku og umsetningu næringarefna varðar. I þessari grein verður miðað við efnivið og efnamagn efstu 10 cm jarðvegsins. Heildarþungi ákveðins rúmmáls jarðvegs fer mjög eftir jarðvegs- gerð. I efstu 10 sm óframræstrar mýraijarðar (2. tafla) eru 220 tonn/ ha. Framræsta mýrin er þéttari og þar eru 350 tonn/ha en í grænmetis- garðinn í skjólbeltinu hefur verið borinn sandur til að bæta jarðveginn og þar eru 650 tonn/ha. Jarðvegur þessara þriggja staða mun í upphafi hafa verið mjög áþekkur, það er stutt á milli sýnatökustaða, en áhrif rækt- unar eru hér mjög greinileg og koma einnig fram í næringarefnabúskapn- um. Efsta lag móajarðar er það sem víða mundi vera kallað góð mold. Jarðvegurinn er fínkoma, laus í sér, klessist gjaman við verkfæri í röku ástandi, en molnar niður í fínan salla sé hann þurr og er þá hætta á mold- roki. Hér er magn jarðvegs frá tæp- um 400 tonnum og upp í 550 tonn á hektara í efstu 10 sm (l. og 2. tafla) og er það algengt í móajörð á blá- grýtissvæðum landsins. Þetta er mjög létt af steinefnajarðvegi að vera en er einkennandi fyrir móa- jörðina (Andosol). Eyrarjörðin á fitinni á Hvanneyri er fínkoma og þéttari en móajörðin með um 700 tonn/ha, en fmmjörðin á Fossamelum er þyngst með um 1000 tonn/ha í efstu 10 sm jarðvegs- ins. Heildarmagn næringarefna í jarð- vegi er mjög mikið (1. tafla), sér- staklega magn kalsíums og magnes- íums. Það má rekja til aðalefniviðar jarðvegsins sem er basalt. Hinn mikla mun milli heildarmagns þess- ara efna í móajörð og frumjörð má að hluta útskýra með því að móa- jörðin er mun léttari í sér (hefur minni rúntþyngd) og þar af leiðandi með minna efnamagn á hverja rúm- málseiningu, og að hluta með losun þessara næringarefna við veðrun og útskolun úr jarðveginum. Kalíum í móajörð 1 og frumjörð 1 hagar sér svipað og Ca og Mg, en er greini- lega hærra í landi sem er í rækt (móajörð 2 og frumjörð 2). Meira kalí getur verið vegna áburðamotk- unar, þ.e. að áborið kalí hafi safnast fyrir í jarðveginum. Einnig getur ver- ið um íblöndun af líparíti að ræða, en líparítgangar eru áberandi í fjöil- unum í kring. Það er rétt að leggja mikla áherslu á gildi líparíts sem kalígjafa í annars frekar kalísnauðu umhverfi á Islandi, jafnvel þótt lípa- rítið veðrist hægt. Losun kalís úr líparíti hefur ekki verið rannsökuð hér á landi. Veðranleg og skiptanleg næringarefni Með veðranlegum næringarefnum er átt við þann hluta sem yftr höfuð getur losnað við veðrun og rotnun. Miðað er við magn efna sem leysist í sterkri sýru. Annað hvort með suðu í 30% saltsýru eða í saltpétursýru þynntri 1:2. Aður hafa sýnin verið brennd (glædd) til að losa um öll steinefni sem eru bundin í lífrænum efnum. Skiptanleg og leysanleg næring- arefni er nálgun á því sem er nýtan- legt yfir vaxtartímann. Báðir flokk- amir eru mikilvægar fyrir gróðurinn og frjósemi landsins. Að baki stærð- anna um skiptanleg og leysanleg næringarefni í jarðvegi á Hvanneyri (2. tafla) eru sömu greiningar og þar em gerðar fyrir bændur í þjónustu- efnagreiningum (það sem losnar í ammóníumlaktatskoli eða svoköll- uð AL-greining) og hafðar til hlið- sjónar við áburðaráætlanir. Munur- inn á framsetningu er sá að hér eru þessar stærðir ekki gefnar upp sem K-tölur (mjK/lOOg jarðvegs) og P- tölur (mgP/lOOg jarðvegs) heldur umreiknaðar yfir í kg/ha. Það eru stærðareiningar sem bændur og aðr- ir landnotendur nota. Þær auðvelda samanburð við það magn, sem er fjarlægt með uppskeru og það sem borið er á. Til að glöggva sig á þess- um stærðum er einnig gefið upp hversu mikið túngrös taka að jafnaði upp yfir vaxtartímann (2). Kalsíum Ca Það er mjög mikið veðranlegt kalsí- um í jarðveginum, frá 1,2 t/ha í mýr- artúni á Hvanneyri og ailt upp í tæp Freyr 9/98 - 21

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.