Freyr - 01.12.1999, Qupperneq 32
sambandi að hafa í liuga að sæði,
sem tekið hefur verið úr stóðhesti
og djúpfryst, er aldrei jafn frjósamt
og ferskt eða náttúrlegt sæði, þann-
ig að sá sem notar slikt sæði í
hryssur þarf að vanda verulega til
vinnubragða við tímasetningu á
egglosi hryssunnar og sæðingu.
Sem þumalfingurregla gildir að ef
náttúrlegt sæði (þ.e.a.s. venjuleg
pörun) gefur fyljunarprósentuna
76% (niðurstöður Isteka á rúmlega
2000 hryssum í u.þ.b. 100 mismun-
andi hópum hryssna og graðhesta
undanfarin 4 ár), þá gefur sæðing
með fersku sæði okkur fyljunar-
prósentuna 60-75% (rúmlega 73%
hjá Sæðingastöðinni í Gunnarholti
vorið 1999) og sæðing með frystu
sæði gæti gefið okkur fyljunar-
prósentu upp á 40-60%, eftir þvi
hversu vel er unnið og sæðisgæðin
öflug (erlendar tölur liggja á bilinu
45-55% ).
Það er deginum ljósara að nýting-
armöguleiki stóðhestanna með
sæðistöku og sæðisdjúpfrystingu er
miklu meiri en einungis notkun á
náttúrulegan máta, þannig að segja
rná að möguleikinn á mun strangara
úrvali feðranna sé raunhæfur kostur
ef ræktunarstefnan vill taka þá
ákvörðun.
Kostirnir við sæðistöku úr stóð-
hestum og sæðingar á hryssum eru
ótvíræðir:
Hestarnir:
1. Fjölgunarmöguleiki bestu hest-
anna er miklu meiri en tíðkaður
hefur verið.
2. Hraðari erfðaframfarir (rækt-
un!).
Framhald á bls. 45
Hesta-
menn
ársins!
r
Inóvember sl. héldu hestamenn
sína árlegu uppskeruhátíð og
nú í íþróttahúsinu í Digranesi í
Kópavogi. Hátíðin var um leið 50
ára afmælisfagnaður Landssam-
bands hestamannafélaga. Út-
nefndur var knapi ársins og rækt-
unarmaður ársins. Á efri myndinni
má sjá Eirík Jónsson afhenda Sig-
urbirni Bárðarsyni viðurkenningu
fyrir að hafa verið útnefndur knapi
ársins en það er starfsmaður
Bændasamtakanna, Hallveig
Fróðadóttir, sem bíður tilbúin með
blómvöndinn. í pontu stendur
Valdimar Kristinsson, hestablaða-
maður Morgunblaðsins. Hér til
hliðar má sjá hjónin Kristbjörgu
Eyvindsdóttur og Gunnar Arnars-
son sem saman deila titlinum
ræktunarmaður ársins. Þess skal
getið að það er Fagráð í hrossa-
rækt sem velur ræktunarmanninn
en hestafréttamenn völdu knap-
ann.
32 - FREYR 13-14/99