Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1999, Side 46

Freyr - 01.12.1999, Side 46
Skýrsluhaldið í hrossarækt 1999 Þátttaka og umfang Skýrsluhald í hrossarækt er í sí- felldri endurskoðun með það að leiðarljósi að safna upplýsingum á traustum grunni, hrossaræktendum til hagsbóta. Sífellt bætast fleiri áhugasamir ræktendur við í hópinn sem vilja nýta sér þessa þjónustu og halda utan um upplýsingar um hrossastóð sitt og er það vel. Mikil vinna hefur farið í að safna örugg- um heimildum um einstök hross og ættboga þeirra, bæði af hálfu hrossaræktenda sjálfra, starfs- manna búnaðarsambanda og hjá hrossaræktardeild Bændasamtak- anna. Nú við árþúsundamót eru 118.837 hross skráð í FENG sem er hinn miðlægi gagnagrunnur í hrossarækt eins og við kjósum að nefna hann. Fjöldi hrossarækt- enda, sem taka þátt í skýrsluhald- inu, eru 1889 en síðan standa mun fleiri einstaklingar þar á bak við eða alls 4292 manns. Árlega fá all- ir þessir hrossaræktendur sendar útskriftir yfir hrossaeign sína. Á árinu 1998 voru samtals 10.279 fangfærslur skráðar, 4042 folöld bættust við, 491 hryssa var skráð geld frá stóðhesti og 79 höfðu misst fang. Þess ber þó að geta að mismunandi er staðið að skráning- um á fangi ef ekkert kemur undan. Árið 1998 var skilað inn stóðhesta- skýrslum fyrir rúmlega 200 stóð- hesta. Veruleg aukning hefur orðið á því að menn auðkenni hross sín með örmerkjum og má geta þess að nú þegar hafa verið skráð 5080 ör- merki í gagnabankann. Til saman- burðar eru frostmerkt hross 15.201 frá upphafi skráningar. Á árinu bættust við gagnasafnið 1154 kyn- bótadómar sem var óvenju lítið enda ár fyrir Landsmót. Árið 1998 eftir Ágúst Sigurðsson, Guðlaugu Hreinsdóttur og Hallveigu Fróðadóttur, Bænda- samtökum íslands voru flutt úr landi 1996 hross en ár- ið 1999 urðu þau alls 1955. Þá eru upplýsingar um blóðpróf úr ís- lenska hestinum einnig geymdar hjá BÍ. Gæðaskýrsluhald Árið 1999 fæddust fyrstu folöld- in inn í hið svonefnda gæðavottaða skýrsluhald sem þýðir að þetta er fyrsti árgangurinn sem á mögu- leika á að hljóta slíka vottun á ætt- ernisupplýsingar. Skýrsluhald með gæðavottun eða gæðaskýrsluhald er í sjálfu sér ekki flókið fyrirbæri en það felst í því að þrenns konar skýrslur eru fylltar út og sendar inn til skráningar hjá hrossaræktar- deild Bændasamtakanna í ákveð- inni röð og fyrir ákveðinn tíma. Rétt er að taka fram að þessi vott- un hefur ekkert með það að gera hvort um góð eða léleg hross er að ræða heldur einvörðungu hvort ætternisupplýsingar þær, sem hrossinu fylgja, séu mjög ábyggi- legar eða ekki. Þrepin þrjú Stóðhestaskýrsla (sendist inn til BÍJýrir 31.12. árið sem hryssan fékk). Fyrsta stigið af þremur í gæða- vottuninni er skýrsla sem umsjón- armanni stóðhests er falið að fylla út en þar koma fram allar þær hryssur sem hjá hestinum voru það tímabil sem um ræðir og upplýsing- ar um ef hryssurnar voru sónaðar og niðurstaða þeirrar skoðunar. Hryssueigandi getur einnig farið þá leið í framtíðinni að vera sjálfur með hefti með sk. fangvottorðum, sem hann fyllir út fyrir hverja hryssu sem hann leiðir undir hest, og fá þessi vottorð undirrituð af umsjónarmönnum viðkomandi stóðhesta. Heffi með fangvottorð- um voru hönnuð í sumar og er hægt að nálgast þau hjá Búnaðarsam- böndum eða BÍ. Fang- og folaldaskýrsla (sendist inn til BIfyrir 31.12. árið sem folaldið fœðist) Þessa skýrslu kannast auðvitað allir við sem hafa tekið þátt í skýrsluhaldinu, en hér er um að ræða þá hálfutfylltu skýrslu, sem berst á haustin, þar sem listaðar eru allar hryssur búsins. Hér þarf að fylla inn hvort hryssa hefur kastað, hvors kyns folaldið er, undan hvaða hesti og einstaklingsnúmer þess. Þegar þessi skýrsla hefur síðan bor- ist til BÍ eru upplýsingar um föður folaldsins samlesnar við stóðhesta- skýrsluna (fangvottorðið) og ef það stenst þá er öðru stigi í gæðavottun- inni náð. Skýrsla um einstaklingsmerkingu (sendist inn til Blfyrir 1.3. árið eftir að folaldið fœðist). Lokastigið er síðan einstaklings- merking folaldsins (frostmerking 46 - FREYR 13-14/99

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.