Freyr - 01.03.2001, Qupperneq 5
Sameinuðu þjóðanna - til lífræns
landbúnaðar en þar hefur orðið við-
horfs- og stefnubreyting síðan 1998.
Sviss í fararbroddi
Því fylgdi sérstök tilfinning að
vera staddur í Sviss, bæði á ráð-
stefnunni og í kynnisferðum tengd-
um henni. Allt frá því um 1930,
þegar áhrifa frá Rudolf Steiner var
farið að gæta, hefur lífrænum bú-
skaparháttum verið að vaxa þar
fiskur um hrygg. Bændur með líf-
ræna vottun voru orðnir 800 að tölu
árið 1990 en um nýliðin aldamót
voru þeir um 5.400. Fjölgunin á
síðasta áratug aldarinnar byggðist
einkum á þrennu; neytendur voru
famir að láta sig meira varða heil-
næmi og gæði matvæla, opinber
framlög til aðlögunarstyrkja og
faglegar starfsemi hafa verið stór-
aukin og stærstu verslanakeðjurnar,
„Coop“ og „Migros", fóru að hafa
lífrænar vörur á boðstólum í stór-
mörkuðum sínum. Nú er svo komið
að um 8% búvara í Sviss eru lífrænt
vottaðar, þ.e. grænmeti, kommeti,
ávextir, mjólk og fleiri drykkjar-
vörur, kjöt og egg. Aðeins Austur-
ríki og Svíþjóð hafa náð lengra og
Danmörk fylgir fast á eftir. Athygli
vekur að allur opinber stuðningur
við landbúnað í Sviss er umhverfis-
tengdur, þ.e. hann rennur annað
hvort til lífræns eða vistvæns bú-
skapar. Þá vekur athygli að til fjalla
og þar með í Ölpunum sem svipar
til íslenskra aðstæðna, er lífrænn
búskapur algengari en á láglendi en
aukningin er stöðug, um 25% á ári,
í samræmi við kröfur markaðarins.
Svisslendingar eru þekktir fyrir að
leggja áherslu á gæði við hvers
konar framleiðslu og þeir sýna það
vissulega í verki við þróun lífrænna
búskaparhátta, eins og nánar verður
vikið að.
Með mannspekingum í
Dornach
Sporvagnasamgöngur eru með
ágætum í Basel og við eina enda-
stöðina, um 40 mínútna akstur í
suður frá miðborginni, er Domach,
Verið er að þróa nýja aðstöðu, einskonar „opið fjós“ fyrir kýrnar á búi mið-
stöðvarinnar í Frick. Þetta eru blendingskýr, Simmental (3/4) x rauðar Holstein
Friesian(1/4), mun stærri en fslenskar kýr, og mjólka um 7000 kg. á ári. Und-
irstöðufóður er beit á sumrin og vothey á veturna, allt lífrænt vottað. Skýli með
legubásum sjást bak við kýrnar.
(Ljósm. höfundur).
fallegt þorp sem teygir sig upp í
skógi vaxnar hæðir. í Dornach gerði
Austurríkismaðurinn Rudolf Stein-
er (1861-1925) garðinn frægan á
öndverðri 20. öldinni en hann var
bæði vísindamaður og heimspek-
ingur. Lífefldur (biodynamic) land-
búnaður, lífrænt landbúnaðarkerfi
með andleg tengsl við mannspeki
(anthroposophy), þróaðist þar út frá
kenningum Steiners. Þar nam Sess-
elja Sigmundsdóttir fræði Steiners
og þannig bárust áhrif frá honum að
Sólheimum í Grímsnesi um 1930
og síðar víðar um landið. Þá ber að
geta þess að um 20 ára skeið hefur
verið rekinn lífefldur búskapur í
Skaftholti í Gnúpverjahreppi og
Waldorfskólarnir eru byggðir á
uppeldiskenningum Steiners.
Hér sjást legubásarnir í skýlunum betur (t.h.) en fþá erborinn hálmur. Flórsköfur
hreinsa flórinn þrisvar á sólarhring. Til vinstri eru mjólkurhús og fóðurbætis-
geymar. Þetta „opna fjós“ er talið henta kúnum vel, jafnvel þótt hitinn fari í 30°C
á sumrin og niður í -15°C á veturna. Heilsufar kúnna hefur batnað eftir lífræna
aðlögun og í kynbótaeinkunninni vega heislufarsþættir meira en nyt. Hefðbundin
lyfjanotkun er orðin lítil og þá helst vegna júgurbólgu. (Ljósm. höfundur).
pR€VR 2/2001 - 5