Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.2001, Side 12

Freyr - 01.03.2001, Side 12
RÁÐUNAUTAFUNDUR 2001 Um siðfræði búfj árframleiðslu Siðfræði er sá hluti heim- spekinnar sem fæst við spurningar um mannlega hegðun og hvernig við veljum milli réttra og rangra at- hafna. Gangstætt því sem margir, er ekki hafa kynnt sér siðfræði, halda er hér ekki endilega um að ræða botnlausar vangaveltur um ýmiss konar huglæg málefni og því síður er siðfræðin órökrétt kenningablað- ur. Hornsteinn flestra siðfræði- kenninga er rökfræðin; samhengið milli forsenda og ályktana og listin að vera sjálfum sér samkvæmur. Þótt flestar siðfræðikenningar miði að því að skilgreina hvað sé rétt og rangt, geta þær verið nokkuð á skjön við það sem almenningur á hverjum tíma telur „göfugt“. Til að mynda eru til siðfræðingar sem hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekkert athugavert sé við að kryfja lifandi dýr eða drepa gamalt og veikt fólk, svo að dæmi séu tekin (Rachels 1993). Rithöfundurinn Femando Sava- ter (1994) lýsti eitt sinn siðfræðinni á eftirfarandi hátt: Siðfrœðin fjallar ekki um hvernig maður aflar sér fœðu, verndar sig mót kulda eða hvernig maður kemitr sér yfir fljót án þess að drukkna, allt saman eitthvað sem áreiðanlega er mjög mikilvœgt þegar maður þatf að komast af undir vissum kringumstœðum. En það sem siðfræðin hefur áhuga á, og það sem er hennar sérgrein, er Itvernig maður eignast gott líf sem manneskja meðal annarra manneskja. Þannig hefur sérhver siðfræði- kenning ákveðna grunnsetningu sem skilgreinir æskilega hegðun okkar, eða er forsenda æskilegrar Torfi Jóhannessort, Landbúnaðar- háskólanum á Hvanneyri hegðunar. Ég hef valið að taka tvær þess háttar grunnsetningar til skoð- unar, og velta því upp hvor þeirra henti betur til að lýsa því sem kalla má siðfrœði búfjárframleiðsht á Is- landi. Þessar tvær kenningar eru egóismi og nytjasiðfræði. Egóismi Samkvæmt egóismanum ber okkur einungis að taka tillit til ann- arra, sjálfs okkar vegna (Rachels 1993). „Ég klóra þér og þú klórar mér“. Þannig er eðlilegt fyrir bónd- ann að sinna umhverfisvernd svo lengi sem hann græðir sjálfur á því, og eins ber honum að taka tillit til velferðar dýranna ef hann græðir á því, en að öðrum kosti ekki. Það er margt í nútímasamfélagi okkar - ekki síst í því hvernig við umgöngumst dýr - sem fær mann til að trúa á þessa kenningu. Þannig er fólk yfirleitt mjög upptekið af velferð gæludýra, enda er vellíðan þeirra forsenda þess að við njótum þess að vera með þeim. Á sama tíma eru önnur dýr - svokölluð meindýr - réttdræp hvar sem til þeirra næst og í raun með hvaða að- ferðum sem gefast, þar sem þau valda okkttr ama. Þetta þykir eðli- legt, jafnvel þótt í sumum tilfellum sé um sömu dýrategundir að ræða (t.d. mýs). Vandamálið við að viðurkenna egóismann sem heppilega samfé- lagssiðfræði er að á honum eru ákveðnir gallar. I fyrsta lagi felst í því mótsögn að vera fylgismaður egóismans. Sem slíkur telur maður sína eigin hagsmuni æðri öllum öðr- um. En á sama tíma vill maður að nágranni manns sé líka egóisti. Það þýðir að maður óskar þess að hann sniðgangi okkar óskir...sem er jú ná- kvæmlega það sem maður vill ekki! En kenningin leiðir okkur einnig fljótt í hagnýt vandamál. Hvemig eigum við að meðhöndla gamalt fólk, fatlaða og veika, sem óneitan- lega getur verið byrði á okkur sjálf- um og samfélaginu sem heild? Egó- isminn segir okkur að hagsmunir þessara hópa komi okkur ekki við. Egóisminn hefur fleiri galla, sem gera það að verkum að fæstir hefðu í alvöru áhuga á búa í samfélagi sem byggðist á kenningunni. Okk- ur finnst flestum að það sé eðlilegt að allir þegnar samfélagsins hafi lágmarks réttindi og að tekið sé til- lit til þessara réttinda. Það er hér sem nytjasiðfræðin kemur til sög- unnar. Nytjasiðfræði Nytjasiðfræðin er ein áhrifa- mesta siðfræðikenning seinni tíma, en hornsteinninn að henni var lagð- ur í Bretlandi á seinni hluta 18. ald- ar og fyrri hluta þeirrar 19. (sjá t.d. Bentham 1970 og Mill 1957). Sam- kvæmt henni skal sá sem á val milli tveggja eða fleiri athafna, velja þá athöfn sem hámarkar samanlögð „nyt“ allra þeirra sem athöfnin snertir. Þannig gilda hagsmunir allra hlutaðeigandi jafnt, óháð því hvort þeir standa okkur nær eða fjær. En hver eru þessi ”nyt”? Mis- munandi útgáfur nytjasiðfræðinnar skilgreina þau á mismunandi hátt, en í grófum dráttum má segja að „nyt“ sé það sama og „hamingja“ eða ”góð líðan”. 12 - pR€VR 2/2001

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.