Freyr - 01.03.2001, Qupperneq 33
Mjólkurskólinn
á Hvanneyri og Hvítárvöllum
- hundrað ára minning, síðari hluti
2. Stofnað til
mjólkurskóla
Það var árið 1899. Forystumenn
Búnaðarfélags íslands, sem stofnað
hafði verið á aðalfundi Búnaðarfé-
lags Suðuramtsins hinn 5. júlí þetta
ár, notuðu haustið til þess að móta
starf hins nýja félags. Réðu meðal
annars Sigurð Sigurðsson til ráðu-
nautsstarfa. Allnokkur spenningur
var á Hvanneyri fyrir hugmyndinni
um stofnun mjólkurskóla þar. Fyrir
lá loforð landsstjómarinnar staðfest
af konungi um fjármagn til þess að
hefja kennslu í mjólkurmeðferð. Æ
fleiri hugleiddu og ræddu stofnun
mjólkurbúa til smjörvinnslu.
„...dóttir dönsku
smjörgjörðarinnar... “
Skilyrði Alþingis um kunnáttu-
mann frá Danmörku var vel að
skapi Búnaðarfélagsmanna því
„...ekkert getur betur opnað mark-
aðinn ú Englandi en það, að smjör-
gjörðin islenzka sje dóttir dönsku
smjörgjörðarinnar, “ skrifaði sr.
Þórhallur Bjarnarson stjórnar-
nefndarmaður Búnaðarfélags ís-
lands.
Hinn 10. febrúar árið 1900 ritaði
svo formaður Búnaðarfélagsins,
Halldór Kr. Friðriksson, bréf til
dönsku systursamtakanna (Det kgl.
danske Landhusholdnings Sel-
skab). Erindi hans var að biðja þau
að útvega
„...en dertil egnet Mand, der
maatte vœre villig til at give Under-
visning i Mœlkeribrug heri Landet,
idetmindste i 2 Aar... Endvidere... at
hjælpe os med at anskajfe en Tegn-
ing tii et Hus, der maatte afgive
passende Lokale, til at der kunde
gives Undervisning i Behandling af
Mœlk af30-40 Köer... “.
Bjarni
Guðmundsson,
Landbúnaðar-
háskólanum
á Hvanneyri
Búnaðarfélagið danska vék er-
indinu til Bemhards Böggild, sem
þá var mjólkurfræðiráðunautur fé-
lagsins. Böggild átti síðar eftir að
verða dyggur bakhjarl ntjólkur-
fræðikennslunnar á íslandi, eins og
nánar verður vikið að.
Böggild var ekki með öllu
ókunnur íslenskum aðstæðum;
hafði rætt þær við Sigurð Sigurðs-
son og fleiri, svo sem skólastjóra
og kennara við Búnaðarskólann í
Ladelund. I svari sínu taldi Böggild
að á Islandi væri ekki aðeins þörf á
hagnýtri kennslu í smjörgerð held-
ur líka meðferð mjólkur almennt,
fóðmn kúnna en frekast þó fræðslu
um hreinlæti í fjósum og við mjólk-
urvinnsluna. Því þyrfti vel verk-
kunnandi mjólkurfræðing til starf-
ans. Böggild ráðunautur mælti ein-
dregið með Hans Grönfeldt Jepsen,
Þegar Grönfeldt kom að Hvanneyri sumarið 1900 ríkti mikil óvissa um hvorf og
þá hvernig koma ætti mjólkurmeðferðarkennslunni fyrir þar á skótastaðnum
(tiigátumynd).
f R€VR 2/2001 - 33