Freyr - 01.05.2002, Side 11
Tafla 2. Bú með meðalafurðir yfir 6500 kg af mjólk og fleiri en 10 árskýr á skýrslu árið 2001
Eiqandi Heimili Árskýr Kg mjólk Kjarnfóður, kg
Eggert og Páll Kirkjulæk II, Fljótshlíð 32,5 7.136 879
Ragnar og Magnús Birtingaholti I, Hrunamannahreppi 31,2 7.129 1.214
Bertha og Jón Miðhjáleigu, Austur-Landeyjum 28,4 7.112 1.244
Vilhjálmur Þórarinsson Litlu-Tungu II, Holtum 17,2 7.075
Ragnheiður og Klemens Dýrastöðum, Norðurárdal 18,4 6.998 1.166
Félagsbúið Baldursheimi, Mývatnssveit 14,4 6.871 1.217
Jörfabúið Jörfa, Kolbeinsstaðahreppi 18,0 6.862 989
Jóhann og Hildur Stóru-Hildisey, A-Landeyjum 34,5 6.840
Hlynur Snaer og Guðlaug Björk Voðmúlastöðum, A-Landeyjum 23,5 6.739 1.348
Viðar og Elínrós Brakanda, Skriðuhreppi 25,1 6.697 653
Félagsbúið Skútustöðum, Mývatnssveit 16,5 6.670 1.607
Daníel Magnússon Akbraut, Holtum 15,6 6.636 1.493
á milli Suður- og Norðurlands,
sem litið var á sem nánast nátt-
úrulögmál fyrir tveim áratugum,
heyrir nú greinilega sögunni til.
Athygli vekur og ef til vill
einnig tilefni til umhugsunar á
viðkomandi stöðum er að í þeim
héruðum þar sem meðalafurðir
eru minnstar, í Austur-Húna-
vatnssýslu og á Austurlandi, eru
einnig breytingar í afurðum á
milli ára miklu minni en annars
staðar á landinu.
Með mikilli afurðaaukningu
síðustu ára verða ýmsar eldri við-
miðanir úreltar. Ekki þarfa að
leita langt aftur í tímann til þeirra
ára að það þótti ágætur árangur í
einstökum nautgriparæktarfélög-
um ef meðalafurðir náðu 4000
kg. Árið 2001 gerist það í fyrsta
sinn í sögunni að þessu marki ná
öll nautgriparæktarfélög í land-
inu. í einstökum félögum eru
meðalafúrðir að þessu sinni mest-
ar í Nf. Fljótshlíðar en þar eru
92,8 árskýr og þær ná að skila að
meðaltali 5839 kg af mjólk en
kjamfóðurgjöf er 943 kg fyrir
kúna að jafnaði. Þetta félag hefúr
ekki verið á toppi í þessum sam-
anburði á síðari árum. Sú keppni
um toppinn hefur hins vegar
lengi staðið á milli tveggja fé-
laga, Nf. Auðhumlu í Hólahreppi
og Nf. Skútustaðahrepps. Nú ger-
ist það að hjá þessum gömlu
keppinautum verður bræðrabylta
vegna þess að meðalafurðir em
nákvæmlega þær sömu á árinu
2001 eða 5514 kg af mjólk eftir
kúna og koma þessi félög í slík-
um samanburði næst Fljótshlíð-
ingum. Þá kemur Nf. Búbót með
5483 kg, en það félag hefúr oft á
undangengnum ámm verið ofar-
lega á slíkum lista og þar á eftir
kemur Nf. Austur-Landeyja með
5479 kg að meðaltali eftir kúna
en það félag er nýtt í þessum
toppsamanburði og um leið lang-
stærsta félagið af þeim, sem hér
em talin þannig að árangur þeirra
verður að teljast frábær.
Með þeim miklu breytingum,
sem orðið hafa í afurðum á allra
síðustu ámm, er sú viðmiðun sem
þótti markmið fyrir um áratug að
ná 4000 kg meðalafúrðum fyrri
búið að verða alveg ómarktæk
viðmiðun. Þessum mörkum nær
meginhluti búa í skýrsluhaldinu
nú eða samtals 637 (629) af þeim
búum sem em með 10 árskýr eða
fleiri. Það em nú fjögur bú, voru
þrjú á síðasta ári, sem ná 7000 kg
meðalafúrðum, en aðeins em tvö
ár síðan það gerðist fyrsta sinni
að bú hér á landi náði þessum
mörkum. Það em 44 (25) bú sem
ná 6000 kg mörkunum og yfír
5000 kg fara nú 275 (227) bú. Til
gamans má benda á að það mun
fyrst hafa verið árið 1984 sem
fjöldi búa á landinu, sem nær
4000 kg mörkunum, verður jaíú
þeim fjölda sem nú framleiðir
yfir 5000 kg.
Afurðamestu búin
I töflu 2 er gefið yfirlit um þau
12 bú þar sem vom fleiri en 10
árskýr og meðalafúrðir vom yfir
6500 kg af mjólk. Efsta sætið að
þessu sinni skipar bú þeirra feðg-
anna Eggerts og Páls á Kirkjulæk
II í Fljósthlíð en hjá þeim vom
32,5 árskýr sem skiluðu að með-
altali 7.136 kg af mjólk, þannig
að íslandsmet félagsbúsins í
Baldursheimi frá árinu 1999
stendur enn óhaggað. Kirkju-
lækjarbúið er löngu þekkt fyrir
miklar afúrðir og hefur um langt
árabil mátt sjá á listum um af-
urðahæstu bú landsins þó að það
hafi ekki áður flaggað efsta sæt-
inu. Frá þessu búi hafa komið
margir athyglisverðir kynbóta-
gripir á undangengnum ámm og
má þar benda á Sprota 95036
sem fjallað er um í grein um af-
kvæmarannsóknir nauta á öðmm
stað i blaðinu.
Fast þar á eftir fylgir bú feðg-
anna í Birtingaholti í Hmna-
mannahreppi, Ragnars og Magn-
úsar, þar sem 31,2 árskýr vom að
Freyr 4/2002-11 j