Freyr - 01.05.2002, Page 30
Tafla 1. Kynbótamat nauta í mars 2002, frh.
Nautiö Nr. Mjólk Fitu- hl. kg Prótein- hl. kg Kynb- mat Frjó- semi Frumu-Gæða- tala röð Skrokk- ur Júgur Spenar Mjaitir Skap Heild
Haki 88021 93 104 113 100 89 101 96 100 98 97 102 72 98
Holti 88017 115 99 99 113 105 72 125 116 114 120 132 127 111
Flakkari 88015 107 96 109 110 77 76 108 92 111 124 121 91 106
Tónn 88006 101 108 101 101 86 88 102 91 100 120 106 80 99
Uggi 88004 118 85 86 110 84 99 126 79 104 93 118 114 108
Óli 88002 118 89 112 122 98 103 111 89 101 96 112 90 114
Svelgur 88001 108 106 103 110 95 111 109 95 98 93 110 70 106
Örn 87023 93 120 107 98 113 110 101 107 102 98 89 117 100
Andvari 87014 128 80 89 119 57 113 128 112 116 96 111 94 113
Flekkur 87013 97 110 105 100 77 109 104 101 122 115 110 126 104
Daði 87003 117 116 98 115 74 102 99 122 119 87 99 117 110
Þegjandi 86031 87 87 105 91 99 106 95 92 80 80 99 100 93
Bassi 86021 92 114 129 108 79 122 93 120 103 119 94 118 107
Þráður 86013 104 102 115 111 125 124 121 78 105 130 114 114 114
Listi 86002 110 67 105 111 84 91 109 95 83 117 105 104 105
Austri 85027 93 97 116 102 109 99 75 105 94 94 78 78 98
Suðri 84023 122 92 91 115 57 108 119 78 95 105 108 90 108
Þistill 84013 120 86 85 111 107 87 111 119 102 112 102 133 108
Rauður 82025 95 124 111 101 101 120 105 100 110 114 111 71 104
Hólmur 81018 98 109 127 111 124 93 102 129 108 119 95 88 107
unn frá árinu áður. Þær breyting-
ar má rekja til lækkunar í mati
fyrir próteinhlutfall og mjaltir, en
fyrir báða þessa þætti stendur
hann samt enn með ákaflega gott
mat. Eins og hjá hinum 1994
nautunum fara þama saman kost-
ir í öllum eiginleikum.
Búi 89017 hefur nú orðið að
gefa eftir efsta sætið fyrir þessum
ungu nautum, sem að framan eru
talin, en hann er í fjórða sæti með
115 í heildareinkunn og hefur
lækkað um tvö stig frá fyrra ári.
Undan Búa eru nú að mestu
komnar í framleiðslu dætur hans
eftir síðari notkunarferil. Hjá dætr-
um hans hafa því verið að bætast
við feikilega miklar upplýsingar á
síðasta ári. Breytingar hjá honum
má aðallega rekja til lækkunar í
mati á þáttum eins og frjósemi,
júgureinkunn og mjöltum. Aftur á
móti stendur hið háa mat um
afurðir hjá þessum kúm óbreytt.
Þrjú naut eru með 114 í heildar-
einkunn, en það eru Þráður 86013,
Óli 88002 og Almar 90019. Breyt-
ingar hjá gömlu köppunum Þræði
og Óla eru um eitt stig, til lækku-
nar hjá Þræði en hækkunar hjá
Óla. Hjá Almari er hins vegar um
að ræða nokkra hækkun frá fyrra
ári, en feikimiklar upplýsingar
hafa komið til viðbótar hjá honum
vegna þess að dætur hans eftir
síðari notkunarferil eru að koma
inn að fullu. Þegar nánar er hugað
að breytingum hjá honum sést að
mat um afurðir hækkar talsvert og
athygli vekur hið fymaháa mat
sem hann hefur um fituhlutfall.
Hann lækkar í mati um fijósemi
en hækkar talsvert fyrir frumutölu
og mat um skap hækkar allmikið,
þó að enn sé mat hans fyrir þann
eiginleika neikvætt.
Hér hefur aðeins verið gerð
grein fyrir þeim nautum sem efst
standa í mati og breytingum á
mati þeirra. I þeirri umQöllun
hefur verið fjallað um nokkur
nautanna úr 1994 árgangnum en
skoðum aðeins nánar breytingar í
mati þeirra nauta.
Sokki 94003 lækkar um tvö
stig í heildareinkunn og skýrist
það af lækkun á mati um aftirðir
sem eftir sem áður er með því
allra hæsta sem sést.
Klaki 94005 hækkar um tvö
sig, hækkun er í mati um mjólk-
urmagn en lækkun á próteinhlut-
falli, þó að eftir sem áður standi
hann sem eitt sterkasta prótein-
nautið. Mat á fijósemi hækkar
verulega og sömuleiðis fær hann
betra mat um mjaltir og skap.
Hamar 94009 hækkar um tvö
stig í heildareinkunn sem er fyrst
og fremst vegna mikillar hækk-
unar á mati um afurðir. Lágt mat
um fijósemi lækkar hins vegar
enn.
Hjá Pinkli 94013 er ástæða til
að benda á talsverða hækkun í
mati á próteinhlutfalli þó að
heildareinkunn standi óbreytt.
Sveipur 94016 lækkar um tvö
stig í heildareinkunn. Hann lækk-
ar enn í mati fyrir mjólkurmagn
þar sem niðurstaða hans er orðin
slök. Hins vegar hækkar hann
enn í mati um frumutölu og er
með gríðarlega hátt mat og hlýtur
þetta naut fyrst og fremst að not-
ast vegna þessara kosta.
Hjá Búra 94019, sem ekki
breytist í heildarmati, er einnig
ástæða til að benda á hækkun í
I 30 - Freyr 4/2002