Freyr - 01.05.2002, Side 36
3. tafla. Helstu niðurstöður úr fóðurtilraun á Stóra-Ármóti veturinn 2000-2001.
+ ORKA - ORKA Mism + PROT. - PROT. Mism. BYGG MAÍS Mism
Prótein %, kvöld 3,14 3,06 0,08 3,18 3,04 0,13 ** 3,11 3,16 -0,05
Prótein %, morgun 3,04 3,01 0,03 3,10 2,97 0,13 ** 3,04 3,05 -0,01
Prótein %, 24 klst 3,08 3,03 0,05 3,13 3,00 0,13 ** 3,07 3,09 -0,02
Prótein g, 24 klst 590 557 33 * 601 556 44 ** 583 596 -13
Fita %, kvöld 4,38 4,20 0,18 4,36 4,29 0,08 4,47 4,30 0,16
Fita %, morgun 3,47 3,50 -0,03 3,34 3,62 -0,27 ** 3,53 3,41 0,12
Fita %, 24 klst 3,86 3,79 0,07 3,77 3,90 -0,14 * 3,92 3,79 0,12
Fita g, 24 klst 738 700 37 ** 722 729 -7 744 731 13
Nyt kg, 24 klst 19,18 18,50 0,68 * 19,24 18,67 0,57 * 19,06 19,30 -0,25
OLM kg, 24 klst 18,34 17,51 0,83 ** 18,23 17,90 0,33 18,33 18,36 -0,03
Prótein-fituhlutfall 0,804 0,807 -0,002 0,837 0,773 0,064 ** 0,788 0,821 -0,033 *
Urea mM/l, kvöld 3,96 3,91 0,05 4,71 3,18 1,53 ** 4,41 3,51 0,90 *
Urea mM/l, morqun 2,23 2,59 -0,37 3,09 1,60 1,49 ** 2,73 1,72 1,01**
OLM: orkuleiörétt mjólk
**P<0,01 * P<0,05
Bæði prótein- og orkustyrkur í
fóðri höfðu marktæk áhrif á nyt-
hæð. Skýr áhrif af próteinstyrk í
fóðri komu fram á próteinhlut-
falli í mjólk. Orkustyrkur í fóðri
hafði minni áhrif, og ekki töl-
fræðilega marktæk, á
próteinhlutfall í mjólk. Bæði
prótein og orkustyrkur í fóðri
höfðu áhrif á heildarframleiðslu
mjólkurpróteins á sólarhring,
orkustyrkurinn aðallega vegna
aukinnar nytar. Próteinstyrkur i
fóðri hafði áhrif til lækkunar á
fituhlutfalli í mjólk í morgun-
málið og þar af leiðandi lækkað
fituhlutfall í heild á sólarhring
sem gerði það að verkum að
heildarfituframleiðsla á sólar-
hring jókst ekki þrátt fyrir hærri
nyt. Orkustyrkur í fóðri hafði lítil
áhrif á fituhlutfall í mjólk en
vegna aukningar í nyt jókst fítu-
framleiðsla á sólarhring og
myndun á orkuleiðréttri mjólk.
Vegna áhrifa próteinstyrks í fóðri
til hækkunar á próteinhlutfalli og
lækkunar á fituhlutfalli í mjólk
varð prótein-fitu hlutfall mun
hærra (0,84 á móti 0,77). Orku-
styrkur í fóðri hafði hins vegar
engin áhrif á prótein-fitu hlutfall
í mjólk. Próteinstyrkur í fóðri
hafði áhrif á styrk þvagefnis í
mjólk en orkustyrkur ekki.
Samanburður á maís og byggi
sýnir tölffæðilega marktækan
mun á prótein-fitu hlutfalli
maísnum i vil (0,82 á móti 0,79).
Þetta stafar af því að maísfóðrun-
in leiðir til hærra próteinhlutfalls
og lægra fituhlutfalls í mjólk, þó
að ekki séu þessi áhrif tölfræðile-
ga marktæk hvor um sig. Sömu-
leiðis er minna þvagefni í mjólk
við fóðrun á maís, sem bendir til
betri próteinnýtingar.
Það hefur verið algeng skoðun
að orkustyrkur sé mikilvægari en
próteinstyrkur í fóðri fyrir mjólk-
urkýr. Þess ber hins vegar að geta
að í mörgum tilraunum er aukinn
orkustyrkur til kominn vegna
hærra kjamfóður-gróffóður hlut-
falls og ekki hægt að aðskilja
þessa þætti. Það hefur áhrif bæði
á gerjunamiynstur í vömb og glú-
kósabúskap kýrinnar (sjá yfirlits-
grein Bragi Líndal Ólafsson o.fl.
2000) og gefúr þess vegna ekki
rétta mynd. I þessari tilraun var
orkustyrkur í fóðrinu ekki háður
kjamfóður-gróffóðurhlutfallinu
þar sem því var haldið föstu.
Munur í orkustyrk, sem var til
kominn vegna sláttutímaáhrifa á
meltanleika og orkugildi heyja,
nægði ekki til að hafa marktæk
áhrif á próteinhlutfall í mjólk.
Þessi munur var um 10% eða
jafngildi 1,5 mjólkurfóðureininga
við 25 kg OLM. Munur í prótein-
styrk í fóðri, um 15%, sem hafði
afgerandi áhrif á próteinhlutfall í
mjólk, var kominn til að hluta
vegna þurrkstigs heyja og að
hluta vegna meiri próteinstyrks í
kjamfóðri sem náð var með fiski-
mjöli. Þessi munur var reiknaður
í grömmum af AAT. Þessir út-
reikningar taka ekki tillit til hag-
stæðara amínósýruhlutfalls í upp-
soguðu AAT þar sem fiskimjöl er
gefið. Það er því ekki hægt að
segja til um það hvort þama er að
einhverju leyti um sérstök áhrif
fiskimjöls að ræða. Hitt er vist að
útslagið á próteinhlutfalli í mjólk,
0,13 prósentustig, vegna áhrifa
próteinstyrks í fóðri er af svipaðri
stærðargráðu og sú lækkun á pró-
teinhlutfalli í innveginni mjólk
sem rætt er um að hafi átt sér
stað á undanfömum ámm. Eins
og verðlagningu á mjólk er hátt-
að í dag skiptir próteinhlutfall í
mjólk afar miklu máli fyrir verg-
ar tekjur bóndans.
Mjög mikilvægar niðurstöður
þessarar tilraunar em áhrif pró-
teinstyrks í fóðri á prótein-fitu-
hlutfallið í mjólk, sem er mikil-
vægur mælikvarði á nýtingu og
verðmæti mjólkur til vinnslu.
Niðurstöður þessarar tilraunar
| 36 - Freyr 4/2002