Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.2002, Qupperneq 46

Freyr - 01.05.2002, Qupperneq 46
Afríku og venjulegt 305 daga mjaltaskeið í hinum löndunum. Til að reikna mjaltaskeiðsnyt út frá eins dags mælingum var not- uð hin svokallda jafna Wood’s (e. Wood’s fúnction). Hlutfall amerísks Holstein- Friesian erfðaefhis. Þetta hlutfall var rannsakað með því að skoða upprunaland hjá öfúm og ömm- um gripanna, gripir frá USA og Kanada fengu gildið 0,25, gripir frá öðrum löndum og gripir með óþekktan uppruna fengu gildið 0. Til skýringar má segja að ef t.d. móðurafi og foðurafí grips í Hol- landi eru frá USA, þá er hlutfall þetta 0,5, gripurinn er 50% af norðuramerískum HF stofni. Hlutfall gripa sem lýkur mjaltaskeiði. Þessum þætti var ætlað að varpa ljósi á mismun í förgunarstefnu milli búa, vitað er að fjöldi umhverfisþátta hefúr áhrif á hann, hirðing gripanna hefúr einnig veruleg áhrif. Reikn- uð var meðallengd mjaltaskeiðs- ins á hverju búi, var litið svo á að ef gripurinn var með a.m.k. eina mælingu eftir að þessum tíma var náð, þá hefði hann lokið mjalta- skeiðinu. Ef ekki, þá er gripnum fargað áður en 1. mjaltaskeiðinu er lokið. Hlutfall fitu/próteins. Þetta hlutfall á að lýsa mismun í fóðr- un gripanna, bæði fóðurstyrk og fóðrunaraðferðum. Þetta lilutfall er t.d. hærra hjá gripum á beit og þar sem gróffóður er uppistaðan í fóðrinu, heldur en hjá gripum sem fóðraðir eru með heilfóðri (TMR). Meðal kynbótagildi feðra. Hér var reiknað meðal kynbótagildi feðra allra kúa innan hjarðarinnar m.t.t. mjólkurafkasta. Hámarks hiti. Til að lýsa veð- urfari var meðal hámarkshiti hlýjasta mánaðar ársins notaður. Reynt var að komast eins nálægt því að lýsa veðurfari svæðisins, sem búið tilheyrði, eins og unnt var. Meðalúrkoma. Reiknað sem meðal ársúrkoma á svæðinu. Niðurstöður Meðaltal hæstu dagsnytar var mjög breytilegt milli landanna, allt frá 17,1 kg á Nýja-Sjálandi til 31,4 kg í ísrael. Fjöldi daga að hæstu dagsnyt var lægri í þeim löndum þar sem afúrðir voru minni, t.d. í Sviss þar sem kýmar náðu hæstu dagsnyt eftir 52 daga ffá burði. I þeim löndum þar sem afúrðir vom miklar, í Israel og Bandaríkjunum, liðu 102 og 92 dagar ffá burði að hæstu dagsnyt. Nytsælni var mest í Israel, 0,9, þ.e.a.s. ísraelsku kýmar em enn í 90% af hæstu dagsnyt við 240 daga frá burði, ennfremur var ald- ur við 1. burð lægstur þar. Nyt- sælni var lág í löndum sem bygg- ja á beit, var orsök þess talin vera árstíðabundinn burðartími og að grasgæði rýma ört er líður á mjal- taskeiðið. Nytsælni var lægst á Nýja-Sjálandi, 0,59, en þar var hæst hlutfall kúa sem náði að ljúka fyrsta mjaltaskeiði, 91%. Aldur kúnna við fýrsta burð virtist vera lægri eftir því sem búskaparhættir vom þéttbærari (e. more intensive), hann var lægstur í ísrael og á Nýja-Sjá- landi, 24,2 mánuðir, en hæstur í Eistlandi, 31,7 mánuðir, og í Austurríki, 30,6 mánuðir. Minnstu búin vom í Finnlandi, þar bám að jafnaði 2,3 1. kálfs kvígur árlega á hverju búi. Stærst vom þau hins vegar í Ungverja- landi, þar sem hliðstæð tala er 61,7, þar náðu hins vegar hlut- fallslega fæstar kýr að ljúka mjaltaskeiðinu, 32% var fargað áður en því lauk. Hlutfall fitu og próteins var lægst í ísrael, 1,05 og hæst í Eistlandi og Tékklandi, 1,34. Tilgáta um að þetta hlutfall sé lægra í löndum sem byggja á meiri kjamfóðurgjöf og lægra hlutfalli gróffóðurs fær byr undir vængi hér. Hlutfall norðuramerískra erfða- vísa var náttúrlega hæst í USA og Kanada, 90%, afgangurinn skýr- ist að meginhluta til af skorti á ættemisfærslum. Þetta hlutfall var lægst í ísrael, 27,6%, kom það greinarhöfúndum vemlega á óvart. Sérstaklega þegar litið er til þess að kynbótagildi m.t.t. mjólkurafkasta var hæst í ísrael, + 871. Hlutfallið var einnig lágt í Finnlandi og á Nýja-Sjálandi, rúm 28%, tölur um kynbótagildi em þar - 490 og - 237. Lægsta kynbótagildi vegna afkastagetu var í Eistlandi, - 646. Meðal mjaltaskeiðsafúrðir vom lægstar í Eistlandi og á Nýja-Sjálandi, 3778 kg og 3541 kg. Hæstar vom þær i ísrael og USA, 8850 kg og 8329 kg mjólkur. Hæstur hiti var í Arizona í Bandaríkjunum, 43° C og kaldast var veðurfar að jafnaði á írlandi, meðal hámarkshiti hlýjasta mán- aðar ársins var 19°. Mest rigndi í Maine í USA og minnst í Ari- zona, að jafnaði rigndi minna á hlýrri svæðum. Kannaðar vom fylgnitölur milli þessara þátta og vom þær yfirleitt veikar, flestar á bilinu +0,2 til -0,2. Fremur sterk jákvæð fýlgni (0,56) var á milli kynbótagildis fýrir afkastagetu og hlutfalls am- erískra erfðavísa, sem kemur ekki vemlega á óvart þar sem af- kastageta hefúr haft ca. 80% vægi í ræktunarmarkmiðum Bandaríkjamanna um áratuga skeið. Neikvæð fylgni (-0,33) var hins vegar milli kynbótagildis fýrir afkastagetu og fitu/prótein hlutfalls. Ályktanir Vemlegur munur er á búskap- arháttum bænda í þessum 17 löndum, þá er jafnframt ljóst að | 46 - Freyr 4/2002

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.