Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1961, Blaðsíða 24

Skátablaðið - 01.12.1961, Blaðsíða 24
tröllastrákarnir breiddu úr teikningum sínum á enginu og byrjuðu að srníða. „Við komum bráðum,“ hrópaði Stappel og veifaði til mánans, sem lýsti á himnin- um, sívalur og brosandi. Gamall ofn varð búkur eldflaugarinnar og stall, til að láta hana standa á, gerðu þeir úr gömlu járnrúmi. Smám saman miðaði verkinu áfrarn. Þeir hömruðu og skrúfuðu, slógu og boruðu, og ekki leið á löngu þar til að úti á eng- inu fór að vaxa eitthvað upp, sem í raun og sannleika var ekki ólíkt þeim tungleld- flaugum, sem við mennirnir sjáum svo oft á myndum. Það safnaðist saman tröllafólk nær og fjær að á enginu, þar sem þessi ævintýra- legi hlutur átti að leggja af stað. Allir vildu hjálpa til á þessu tröllasögulega augnabliki eða að minnsta kosti vera við- staddir, þegar ferðin hæfist. Þess vegna vantaði hvorki hjálpsama fætur, hendur né rófur til að gera það sem gera þurfti. Einn, tveir og þrír, og svo var trölla- eldflaugin tilbúin, já, það gekk raunveru- lega svona fljótt fyrir sig. Og þarna stóð hún og það glampaði á hana í tunglsljós- inu, og öll tröllin í skóginum virtu hana fyrir sér með lotningu. „Nú eigum við eftir að skíra hana,“ til- kynnti Fífikus með hárri röddu, þar sem hann stóð á toppnum á eldflauginni, „og síðan fljúgum við Stappel af stað." „Tröllus á hún að heita,“ sagði trölla- mamma, og öllum fannst það vera reglu- lega gott nafn. Stappel málaði nafnið með stórum, livít- um bókstöfum á eldflaugina, en öll tröllin hrópuðu ferfalt húrra. „Já, þá erum við reiðubúnir að fara af stað. Stappel, fylltu benzíngeymana.“ „Skal gert, skipstjóri," svaraði Stappel, og svo stakk hann öllu því eldfima, sem Eldjlaugin þaiit af stað með brauki og bramli. hægt var að finna í Tröllaskóginum, neðst inn í eldflaugina. Það voru ljósmyndafilm- ur og steinolía, brennsluspritt og gúmmí, benzín og dýnamitsprengja og margt, margt fleira. „Nú er ekki rúm fyrir meira,“ sagði Stappel, „á ég að kveikja á því, Fifikus?" „Andartak, bróðir,“ og það var ekki laust við, að Fífikus væri orðinn hátíðlegur í málrómnum, „ég ætlaði aðeins að kveðja ykkur, gott fólk, við sjáumst bráðum aftur og þakka ykkur fyrir hjálpina." 106 SKATABLADIÐ

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.