Skátablaðið


Skátablaðið - 01.12.1961, Page 29

Skátablaðið - 01.12.1961, Page 29
EIRÍKUR JÓHANNESSON : LYNGBY DIVISION 50 ÁRA í BRÉFI til Skátablaðsins, sem f'ylgdi þessari grein, kemst höfundur hennar m. a. svo að orði: „Ég hef í flýti hripað niður smá ferðapistil, en margt skemmti- legt heíði verið hægt að segja um þetta sérstæða mót, og hef ég þó verið á þeim mörgum, bæði heima og erlendis. Vegna höfðingsskapar „Fóstbræðranna“ við okk- ur hér, gat ég ekki látið hjá líða að geta þeirra í málgagni okkar skátanna. Margir erlendir skátar hafa gert vel við íslenzka skáta, en ég hugsa, að fáir hafi gert meira en þeir, og þess vegna bið ég þig að taka þennan ferðapistil í blaðið.“ Þessi beiðni er hér með uppfyllt, og viljum við benda öllum skátum á að lesa frásögn Eiríks af þessu skemmtilega móti. Ritstj. þessu ári varð Lyngby Division eða Skátafélagið í Lyngby í Danmörku 50 ára. „Fóst- bræðurnir" tilheyra þessu fé- lagi, en þeir eru skátasveit nemenda við Bagsværd Kostskole. A lands- mótið 1948 komu 17 þessara „Fóstbræðra“ og eignuðust hér marga vini, bæði í Hafn- arfirði, Akureyri og Borgarnesi. Foringi „Fóstbræðranna“ var lengi rektor skólans, Sven Haderup, þekktur skólamaður í Danmörku. Þessir skátar hafa á fimnr ára fresti haldið „Jamborettur”, og hafa þá boðið íslenzkum skátum þátttöku. Tvisvar hafa ísl. skátar þegið boð þeirra og dvalið urn leið 2—3 vikur í boði þeirra og notið mikillar gestrisni. Einnig nú í sumar var íslenzkum skátum boðin þátttaka í afmæl- ismótinu, en aðeins einn þáði boðið, sem sé undirritaður, sem hefur staðið í sambandi við þá með bréfaskriftum og heimsóknum. Þetta afmælismót þeirra var haldið 28. júlí til 4. ágúst. Þeir hafa fengið til afnota fyrir mót sín gamlan dýragarð við Faxe Ladeplads á suð- austur Sjálandi, ákjósanlegasta mótstað, sem völ er á. Þó að nú væru að mestu leyti komnir nýir menn, sem höfðu forystuna á hendi, var jafn ánægjulegt og áður að heirn- sækja þá. Þrjá síðustu dagana fyrir mótið fóru þeir að venju í ferðalög með gesti sína, sem voru frá íslandi, Noregi, Svíþjóð, Eng- landi og Skotlandi. í þessum ferðum gera þeir sér far um að sýna skátunum helztu byggingar og söfn, Dýragarðinn og að ógleymdu hinu fræga Tívolí. Þessar ferðir innifelast í mótsgjald- inu, og eru menn vel nestaðir og séð fyrir þeim á sem allra beztan hátt. Einnig er alltaf farið einn daginn til Sví- þjóðar og skoðuð t. d. Dómkirkjan í Lundi og helztu staðir í Málrney. Mótið sjálft var mjög vel skipulagt og eftir því vel heppnað. Það er tvennt, sem þeir leggja aðaláherzl- una á í sambandi við þessi mót, og það er fyrst og fremst góð kynning á rneðal skáta af mismunandi þjóðerni og snyrtimennska í tjaldbúðarstörfum. Að þessu sinni höfðu þeir allt í víkingastíl, þannig að allir klædd- I 1 1 SKATABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.