Litli Bergþór - 01.12.1988, Page 22
Gamla samkomuhúsið á Vatnsleysu
Það mun hafa verið í kringum fardaga
1926 að ráðist var í að byggja
samkomuhús í Biskupstungum eða
fundarhús eins og það var oft kallað. Svo
kallað þinghús hafði verið á Vatnsleysu
mjög lengi. Var það í tengslum við gamla
bæinn í vesturbænum. Einhverjar
smádeilur urðu um hvort flytja ætti
þingstaðinn í Reykholt og byggja
fundarhús þar. En gamli þingstaðurinn
varð fyrir valinu enda mjög miðsvæðis í
sveitinni, en þá skipti vegalengd miklu
máli. Ráðinn var smiður. Hinrik hét hann
ívarsson, bróðir Þórdísar á Króki. Bílfær
vegur var aðeins kominn að Torfastöðum.
Þar sem Ungmennafélagið stóð fyrir
þessari byggingu voru ungmennafélagar
skyldaðir til að láta dagsverk í að sækja
efnið að vegarenda. Allt efni var því sótt
að Torfastöðum á hestvögnum eða klakk.
Hinrik smiður, eins og hann var oft
kallaður, vann allt vorið, sumarið og
veturinn við að byggja húsið ásamt
ýmsum sveitungum sem lögðu vinnu í
framkvæmdina.
Samkomuhúsið var allt byggt úr
timbriogjámi. Bárujárn að utan og panil-
klætt að innan. Húsaskipan var þannig:
gengið inn í skúr eða anddyri, salur, smá
leiksvið með gangi fyrir aftan og litlum
herbergjum til hliðar.
Unnið var við þessa byggingu fram á
vordaga 1927 og um það leyti var húsið
tekið í notkun. Upp úr 1930 var svokölluð
“viðbótarbygging” gerð. Var þar um að
ræða kaffisal, eldhús og búningsherbergi
fyrir dömur. Eftir að þetta hús kom voru
allir fundir og aðrar samkomur haldnar
þar. Dansleikir voru svona 1-2 á sumri.
Byrjuðu þeir um kl. 1-2 að deginum og
stóðu til 7-8 um kvöldið. Þá sjaldan að
voru vetrarböll, sem þá helst var um jólin,
hófustþau kl. 10 um kvöldið og stóðu alla
nóttina þar til skíma fór af degi, því þá var
fólk annað hvort gangandi eða á hestum.
Aðaltrompið var eftir að útvarpið kom til
sögunnar: “Eiríkur á Bóli spilar.” í gamla
Vatnsleysuhúsinu voru í fyrsta skipti
kynnt lög sem síðar urðu landsfræg eins
E
Sigurður Þorsteinsson.
og Ljósbrá eftir Eirík, sem hann kynnti
sjálfur og vinnumaður á Bóli söng án
míkrafóns.
Mörg leikrit voru sett á fjalimar á litla
sviðinu á Vatnsleysu. Líklega voru
Vesturfaramir með fyrstu verkunum á
þessu sviði. Þá má nefna Skugga-Svein
sem tvisvar var leikinn þar. Er mér
minnistæður Jóhannes í Ásakoti í titil-
hlutverki, Skúli í Bræðratungu sem
Sigurður í Dal, Þorsteinn á Vatnsleysu er
lék sýslumanninn og Erlendur á
Vatnsleysu sem fór með Jón sterka af
miklum tilþrifum. Að sjálfsögðu voru
mörg fleiri stór og smá leikrit sett upp á
sviðinu í Vatnsleysuhúsinu. í fjölmörg ár
söng Karlakór Biskupstungna undir
stjórn Þorsteins á Vatnsleysu á
jólasamkomum og við fleiri tækifæri í
þessu húsi. Þá má minnast á bama-
samkomur skólans í Reykholti. Árvissar
samkomur, með kórsöng, Ieikþáttum eins
og Hans og Grétu og fl.
Stjómmálafundir vom margir haldnir
í þessu samkomuhúsi, með Jörund í
Skálholti og Eirík á Hæli í fararbroddi.
Aðalstarfsemin í þessu húsi var á vegum
Ungmennafélagsins en það stóð að helstu
menningarþáttum í sveitinni.en starfsemi
félagsins var í góðum blóma á þessum
Sigurður Þorsteinsson
ámm.
Allar samkomur, hvort heldur voru
fundir, dansleikir eða leikrit voru í þessu
húsi fram yfir 1960 er Aratunga tók við
hlutverki þessa gamla húss. Urðu það
mikil umskipti, bullandi hverahiti í öllum
hornum, en gamli kola- og síðar
olíuofninn í Vatnsleysuhúsinu reykti oft,
svo mökkur var í húsinu fyrst í stað, en
fljótlega var slökkt á ofninum því allir
dönsuðu sér til hita. í þessu húsi kviknaði
mörg fyrsta ástin og varð undirstaða að
farsælu hjónabandi. “En tímamirbreytast
og mennimir með.” Lengi vel þótti ófært
að boða til dansleikjar að sumri til án þess
að hafa upplestur eðaræðumann. Upples-
ari var oft Stefán Sigurðsson skólastjóri.
Kannski Unnar Þór vilji taka að sér upp-
lestur á dansleikjum í Aratungu? Hinrik
samkomuhúsasmiður var félagslyndur og
glaðlyndur maður. Hann hafði viðurværi
á Vatnsleysubæjunum, meðan hann
byggði fundarhúsið. Móður minni gaf
hann brauðskurðarbretti er hann gerði,
með greyptri vísu til hennar sem
þakklætisvott fyrir aðhlynninguna.
Sjáðu gjöf í sæmi þig
sóma hmndin fríða.
Þetta beiddi Þorsteinn mig
þitt á bú að smíða.
Hinrik smiður er allhress ennþá.
Verður 90 ára í ágúst að sumri. Gengur
hvem dag að smíða báta fyrir landsmenn.
Reyndar sem skraut.
Sigurlaug Erlendsdóttir, ritari
1914-1915 og 1917-1928.
22
Litli Bergþór