Litli Bergþór - 01.12.1988, Blaðsíða 56
Iþróttavöllurinn í
Reykholti
Gunnar Sverrisson
Síðastliðið sumar var nýr íþróttavöllur,
sem Umf. Bisk.á, tekinn í notkun hér í
sveit, og hefur Ungmennafélagið staðið
fyrir framkvæmdum frá upphafi. En það
eru rétt níu ár síðan framkvæmdir hófust
og er ffágangi ekki að fullu lokið þegar
þetta er sett á blað.
Undanfarin 10 ár höfum við ekki haft
neina sérstaka aðstöðu til útifþrótta, svo
ljóst er að nýi völlurinn bætir úr brýnni
þörf.
Þegar forráðamenn Ungmenna-
félagsins ákváðu að fara út í vallargerð,
voru að sjálfsögðu rifjaðar upp gamlar
hugmyndir um íþróttamannvirki á
svæðinu. Þrátt fyrir að ljóst væri að
allkostnaðarsamt og ekki síður tímafrekt
væri að ræsa fram og þurrka vallarsvæðið,
þá var staðsetningin gagnvart öðrum
sameignum sveitarinnar það augljós, að
ákveðið var að hefjast handa á þessum
stað. Félagið sækir um styrk til
framkvæmdanna úr íþróttasjóði og fær
fyrstu fjárveitingu 1981, en lög gera ráð
fyrir að íþróttasjóður greiði 40% af
íþróttamannvirkjum sem samþykkt hafa
verið af íþróttanefnd ríkisins ; jafnframt
samþykkir sveitarstjórn að greiða 30%
kostnaðar og leggur til 1 mann í
framkvæmdamefnd á móti 2 fulltrúum frá
Umf. Bisk.
Fyrsta árið var grafinn og sprengdur
skurður undir brekkunni, til að veita burt
vatni sem kemur stöðugt með klöppinni. í
þann skurð er sett öflugt ræsi. Einnig er
svæðið jafnað þetta fyrst ár, en næstu 3 ár
er völlurinn ræstur og láúnn síga.
Uppbygging vallarins er þannig að
þvert yfir völlinn er framræslulögn í
vikurskurðum með 10 m millibili á 60 sm
dýpi. Yfir allt svæðið er svo 30 sm malar-
lag og þar yfir 15 sm sand- og gróðurlag.
Völlur er með einhliða hliðarhalla.
Af þeim ástæðum sem fyrr greinir þ.e.
að landið varð að fá að síga og ekki síður
vegna ýmissa tæknilegra erfiðleika með
malar- og efnisflutning á svæðið tók
verkið þetta langan tíma. Einnig voru
fjárráð félagsins takmörkuð því oftast
hefur staðið á greiðslum úr íþróttasjóði.
Ungmennafélagið hefur að talsverðu
leyti lagt fram sinn hluta í formi
sjálfboðavinnu og öðrum framlögum.
Framreiknaður kostnaður er nú tæpar 4
milljónir króna, en það er lægra en áætlað
Við vcrðum að telja íþróttavöllinn
verðmæta aðstöðu og vonandi verður
hann vel nýttur og vel hirtur um ókomin
ár, því vel hirtur íþróttavöllur er
staðarprýði.
Eiríkur Sveinsson vinnur við völlinn
sumarið 1986.
Möl ekið á svæðið 1983.
Vinnuflokkur við völlinn 1986.
var.
56
Litli Bergþór