Skólablaðið - 01.05.1992, Page 11
SKÓLABLAÐIÐ 11
Kærligheden blomstrer, sem er sungið á skandinavísku,
er síðra lag, en hefur þó eitthvað við sig. Textaflutningur
er vel heppnaður, þó ekki frá faglegu sjónarhorni, og fals-
ettukafli lagsins lyftir því á æðra satirískt plan.
Árshátíðarlagið 1991, Stjörnuóður, hefur ekki sama
skemmtanagildi og þau hin fyrri lög. Þótt þar sé umvélað
af allmikilli íþrótt, ræður ekki sama græskulausa gaman
eins og í Hátíðarstund og full mikið er um hljóðgervla-
gutl; í fjarska gæti þetta lag verið með einhverri sumar-
stuðsveitinni og við nánari kynni nær það ekki að lifna.
„Textaflutningur er vel heppnað-
ur, þó ekki frá faglegu sjónar-
horni, og falsettukafli lagsins lyft-
ir því á æðra satirískt plan."
Höfundur lags og texta í árshátíðarlagi 1990, sem kall-
ast Frank Zappa, er sá sami og setti saman Stjörnuóðinn,
en heldur tókst honum betur upp 1990. Þar ræður kannski
mestu að textinn er mátulega ruglaður og flutningur al-
vörulaus að mestu, þó einnig þar hefði mátt sleppa nokkr-
um hljóðgervlagusum. Það er þó ekki vert að afskrifa þá
sem sett geta saman annan eins texta og Frank Zappa / í
svampfrakka / var að stappa krakka / í pappastampa.
Árni Matthíasson
V O N
Óhagganlegur en þó sýnilegur í myrku rökkri
Hann er aflið, viskan og dyggðin.
Grimmur. Svífst einskis.
Steyptur sem stytta. Stendur fyrir framan okkur öll.
Sofna út frá hugleiðingum.
Um kraftinn.
Sem frá honum streymir. Ógnvænlegur.
Heltekur mig alla.
Og í dögun er ég ekkert. Skuggi þess sem áður var.
Máttfarin. Aum.
í fjötrum míns eigin huga.
bjargaðu mér núna.
Því á eftir verður það of seint.
Sif og Björk 3.-B.
Stuðsamtökin Limbó sf.
Notið aldrei enga tvöfalda neitun.