Skólablaðið - 01.05.1992, Síða 43
SKÓLABLAÐIÐ 43
Byltist, brimar
boðar falla
alda á öldu,
óravegi.
Bátsskel brigðul,
berst í straumi,
skjóli fjarri,
skekst í vindi.
Hefjast, hníga,
herðar feigar.
Berjast, hamast,
hjörtu í brjósti.
Helblár Ægir
hramminn reiðir,
sökkvir seglum
sorgar dökkum.
Úr Ljósbroti - Ljósm. Halldór Elías Guðmundsson.
Vegferð
Rær í gráðið,
rauðeyg móðir,
ungum barmi
bifar harmur,
bitrir hvarmar
barna glitra,
brostin augu
blinduð stara
Kólgu sjóir
kænu svipta,
hvergi finnur
höfn né lægi,
fjall og fjöru
felur Ægir.
Helgreip hafið,
hyldjúpt, teygir.
Heljarhildur,
háð af fáum,
bresta augu,
bátsmenn líta
æðrulausir
eigin dauða.
Pungur drúpir
dumbur himinn.
Fryssast hvítfext
friðlaust hafið,
hefst og hnígur
heimur allur,
alda á öldu,
óravegi.
Bátskel byggir
ból í djúpi.
DE
Sannanir má læra, líkt og hvert annað Ijóð. - Biggi göngufrí.
4Y »» IV