Skólablaðið - 01.05.1992, Qupperneq 71
SKÓLABLAÐIÐ 71
Quid novi?
Innan fimmta bekkjar eru margar kvikmyndastjörnur.
Sólveig Arnarsdóttir og Helga Haraldsdóttir leika í
Inguló og auk þess á Sólveig margar aðrar myndir að
baki. Egill Örn 5.R lék í Hvíta Víkingnum sællra minn-
inga og það gerði Rafn 5.R einnig. Egill átti líka að leika
í Húsinu en öll atriðin hans voru klippt burt. Kristín
Martha 5.Y lék í Útlaganum og Sigurveig 5.S lék í í
Skugga Hrafnsins. Þá lék Magnús quaestor í Hrafninum
sem flaug. Sigríður Hagalín 5.A var svo tilnefnd til Elías-
arverðlaunanna fyrir leik sinn í Börnum Náttúrunnar.
Loks brá Ottó 5.S fyrir í myndinni Once upon a time in
America en hann lék hins vegar ekki í dönsku stórmynd-
inni Otto er et Næsehorn.
*
Eldtungurnar léku um sali Útrásar á dögunum. Kveikt
var í klósetti stöðvarinnar sem var staðsett í kjallara Fjöl-
brautarskólans við Lada umboðið seint um kvöld um
daginn. Varð þetta til þess að skólastjóri F.v.L.u. rak út-
rásarmenn út úr húsi. Stöðin hefur nú fengið inni í húsi
bifreiða-eftirlitsins uppi á höfða. Haft er eftir Agli Erni
hvítvíkingi Útrásarmanni að um sé að ræða skipulagt
hryðjuverk öfgasamtakana: Sameinumst gegn BÖLINU.
í hótunarbréfi sem fylgdi með íkveikjunni kom fram ský-
laus krafa um að þætti tvímenninganna Egils Arnarssonar
og Stefáns Jónssonar verði tafarlaust hætt.
♦
Því er ekki að leyna að í Menntaskólanum starfar íþrótta-
félag. Hefur stjórn þessa félags vakið athygli fyrir ýmissa
hluta sakir, einna helsta þó fyrir afar athygli verðar aug-
lýsingar. Á þessum auglýsingum hefur stjórnin fengið út-
rás fyrir sínar bældustu hvatir með því að skrifa „áfram
kr“ og „áfram united". Mesta athygli vöktu þó piltarnir
fyrir auglýsingu sem sýndi lampa einn í fullri reisn. Hjá
þessari mynd stóð ritað: „John Holmes kemur og sveiflar
rækjum í hléi“. Eitthvað fór þetta veggspjald fyrir brjóstið
á yfirvöldum skólans þar sem þeim þótti það vera óvirðing
við látinn mann að boða komu hans á íþróttamót.
♦
Nú hefur komið í ljós að plötuspil í kjallara Kösu í vik-
unni fyrir árshátíð Framtíðarinnar var skipulagt af þeim
Guðna og Elíasi. Mun þetta hafa verið ráð þeirra til að
bæta mætingu nemenda. Eins og nemendur vita þá hafast
skróparar oft við í kjallaranum en mæting þeitta breyttist
mjög til batnaðar er Framtíðin hóf að spila plötur sínar
(sem eflaust eru jafn gamlar félaginu) daginn út og inn, í
Kösu. Aðspurður sagði Grímur Grímsson þekktur Kösu-
sætill að hann hafi barasta neyðst til að fara í tíma því væl-
ið hafið verið óbærilegt. Sannarlega vel heppnað herbragð
það.
*
Ungur maður vakti athygli fyrir ári er hann hugðist taka
að sér forsetastarf Framtíðarinnar. Eitthvað fór úrskeiðis
og Andri náði ekki kjöri en hlotnaðist ekki síður áhuga-
vert embætti. Þ.e. að verða ritstjóri hins gagnmerka tíma-
rits Yggdrasils, (sem gárungar kalla reyndar „Yggdrasl-
ið“). Því er ekki að leyna að Andra hefur tekist að leyna
Yggdrasli afar vel fyrir nemendum. Aðeins hefur komið
út eitt tölublað í vetur og annað er ekki í sjónmáli. Andri!
Við viljum að þú vitir það að fólk er svekkt. Það treysti á
þig en þú brást þeim! Andri! Fólk hefur tilfinningar.
Samúðarverðlaun Skólablaðsins: ST-menn
Samúðarverðlaun Skólablaðsins falla að þessu sinni í
hlut ritstjórnar Skólatíðinda fyrir að láta ekki hugfallast
þótt á móti blási. Það hlýtur að vera lýjandi fyrir litla
busa, að streitast við að reyna að ná vinsældum innan
skólans, en uppskera ekkert nema ónot og illar augngotur
frá skólafélögum sínum. Það er ekki gaman fyrir við-
kvæmar sálir og brothætt hjörtu, að leggja nótt við nýtan
dag í blaðaútgáfu, með svo takmörkuðum árangri sem
raun ber vitni. 3.bekkingarnir: Benedikt, Garðar, Guð-
mundur og Hrafnkell eru í raun vænstu skinn með mikinn
metnað og stóra drauma, en heimurinn er vondur og það
er ekki öllum gefið að vera sniðugir og skemmtilegir. Þó
verður að segja þeim snáðum til hróss, að þeir eru haldnir
óbilandi bjartsýni á að þeim komi til með að takast vel
upp, hvað sem á dynur. (Nema fimmti maðurinn, Ingólf-
ur, sem flúði sökkvandi fleyið og sagði sig úr ritstjórninni
í tæka tíð.)
Enda þótt enn hafi ekki örlað á fyndni í textum þeirra
St-manna, þá halda þeir áfram að reyna og þegar öllu er á
botninn hvolft, þá er skiptir ekki öllu máli að vinna, bara
að vera með. Við gefum St-mönnum 9.5 fyrir viðleitni.
Þeir eru nú komnir í þann fríða flokk fólks sem hlotið hef-
ur Samúðarverðlaunin eftirsóttu, en í fyrra féllu þau í hlut
stjórnar Framtíðarinnar, fyrir fjármálastjórnun.
Sannleikurinn er dýrmætur, förum því sparlega með hann. - Oskar Wilde.